mánudagur, 6. október 2008

Rós dagsins frá mér fær...

...real,- búðin hér í bænum. Eins og ég minntist á í einhverju bloggi, keypti ég mér Senseo kaffivél í september, nánar tiltekið 10.9. Oftast er ég nú dugleg að halda upp á kvittanir af tækjum og tólum, jafnvel skóm en í þetta skiptið tókst mér að týna/henda miðanum! Vélin var ekki vikugömul þegar hún fer að leka.......alveg sama hvað ég gerði, hún skildi alltaf eftir poll á bekknum. Mín var ekkert smá pirruð, já eiginlega bara mjög pirruð :/

Á laugardaginn ákváðum við að fara í real,- og athuga hvort eitthvað væri hægt að gera. Konan í upplýsingum sagðist þurfa miðann því ef þau myndu senda vélina í viðgerð gæti verið að ég yrði að borga reikninginn án miðans. Hmmmmm, nú voru góð ráð dýr. En konan sagði að ef ég vissi svona nokkurn vegin hvenær ég hefði keypt vélina og á hvaða kassa ég hefði borgað væri kannski hægt að athuga hvort miðinn finnist en ég borgaði með VISA og gat því sannað að ég hefði keypt eitthvað í búðinni þennan dag (ég keypti ekki bara vélina). Þetta gæti kannski tekið 1-2 daga. OK.

Í dag fæ ég hringingu frá real,-. Miðinn finnist ekki en þau hafi ath. allt frá 11-15 þennan dag. Ég sagðist kannski getað sagt þeim nákvæmlega hvenær ég hefði borgað en ég hafði hringt í Seydi til að spyrja hann hvort ég ætti að kaupa vélina. Því miður gat ég ekki séð sept. gemsareikninginn minn en aftur fæ ég hringingu frá real,-. Konan spyr fyrir hve háa upphæð ég hafi keypt, ég segi henni það. OK. Ég er nýkomin heim þegar enn er hringt og konan segir að miðinn sé fundinn!!!!
Vá hvað þetta er frábært fólk þarna, ég sagði líka við konuna að ég væri virkilega ánægð með þessa þjónustu. Hún sagði að þau gerðu þetta af ánægju.

Nú má ég koma til að skrifa undir eitthvað svo hægt sé að senda vélina til Philips.

Þjóðverjar ættu að kvarta meira yfir því að hér sé ekki þjónustulund :) :) :)

Farin að borða fyllt tortellini með jógúrt/hvítlaukssósu

Eigið góðan dag

PS. Eru allir í einhverju sjokki yfir ástandinu á Íslandi. Mér finnst ansi rólegt hérna hjá mér........ Góðar fréttir fyrir mig eru að peningarnir mínir eru "save". Vona það allavega :/ Ég ætti kannski að kaupa Ísland bara? Nei, grín, ég á ekki svo mikið.

4 ummæli:

  1. Já Inga mín þjóðfélagið er lamað og heimurinn allur held eg. Þetta kaupæði og brjálæði varð nú að taka enda það hef eg alltaf sagt, vonandi lærum við eitthvað af þessu allavega er Jóhanna félagsmálaráðherra að tala kjark í fólk vonandi stækkar hún ekki félagsmálapakkann. Við skulum bara róa okkur og tryggja öllum vinnu við hæfi. Flott með kaffikönnuna þeir eru mjög almennilegir hjá Real. Gangi þér vel. Kveðja og knús frá mömmu

    SvaraEyða
  2. Ég er alveg sallaróleg, eina sem ég finn fyrir eru allar þessar fréttir. Ekkert nema fréttir af krísum. Ég eyði heldur ekki um efni fram. Mig langaði mikið til að skrifa neðst í bloggið mitt að segja fólki að hætta að eyða í eitthvað sem það á ekki fyrir!!! Hætta að rúlla öllu á undan sér!!! Það er kannski auðveldara sagt en gert með öll þessi gylliboð, raðgreiðslur, lán osfrv.

    Íslendingar hefðu frekar átt að herma eftir (flestum) Evrópubúum heldur en apa eftir Kananum. Þeir eru duglegri að spara fyrst, eyða svo. Reyndar hefur þetta versnað t.d. hér. Ungt fólk er alltaf skuldugra og kreditkort orðin algengari. Samt komumst við ekki með hælana þar sem þið eruð með tærnar.

    Er þotin.....

    SvaraEyða
  3. er einhver sem skilur hvernig þessum milljörðum er rúllað fram og til baka - aftur á bak og áfram?

    ekki ég svo mikið er víst... og meðan ég skil ekki neitt í neinu ætla ég að þrýsta puttunum djúpt í eyrun og syngja lalalallaaaaaa...

    ágætt að eiga ekki neitt á skuldabréfum - í dag allavega, eða er það ekki annars?

    gott að viðskiptaþjónustan er svona góð hjá ykkur, ég missti alla trú á evrópskum viðskiptum er ég átti við dyson þetta árið... (dyson hin þriðja er þó að standa sig - enn sem komið er)

    bestu haustkveðjur

    SvaraEyða
  4. Syngjum saman, lalalallaaaaaa, með puttana í eyrunum :)

    Ekki spyrja mig, fjármálahálfvitann, hvernig þessi peingaheimur tikkar. Kannski getur litli bróðir þinn komið okkur á sporið?

    Hvar endar þetta? Spyr sá sem ekki veit og kannski enginn veit.

    SvaraEyða