Það er aldeilis kominn fínn snjór hjá sumum ykkar. Skíðasvæði opin og allt. Þetta má alveg vera svona um jólin, veðrið líka. Sýnist vera sól og blíða í dag. Vefmyndavélin á Dalvík er uppáhaldið þessa dagana. Veit ekki hvar hún er staðsett en ætli vinnumennirnir á einhverju þaki viti að þeir eru "í beinni"? Ég fylgdist aðeins með ýtu moka snjó við kirkjuna í dag :) Alger snilld, sérstaklega í svona veðri. Vefmyndavélin hjá Rafveitu R.víkur er líka góð, fer næstum því hring yfir borgina. Gaman að þessu.
Það er nú bara kalt hér. Í gær og í dag var hél á afturrúðunni. Engin skafa frekar en fyrri daginn! Sem betur fer var þetta ekki mikið svo að það dugaði að setja afturrúðuhitarann á. Ég veit ekki hvað ég hef keypt margar sköfur í gegnum árin. Svona er þetta þegar alltaf er verið að skipta um bíl og selja.........Þessa dagana skiptist ég á að keyra Ford Ka og Benzinn. Enginn munur, nei nei. Ka´inn er fínn, lítill, eyðir ekki miklu og passar vel í öll bílastæði. Verst að hann er ekki nógu traustur ef lent er í árekstri en þar sem ég er lítið á ferðinni og enn minna á hraðbrautunum er hann fínn til að skottast á.
Fór til augnlæknis í dag. Sjónin er alltaf að "batna" þ.e. nærsýnin að minnka. Er víst ofur eðlilegt á mínum aldri. Læknirinn sagði "já svona upp úr fertugu verður þú kannski að fara að huga að nýjum gleraugum þar sem þessi eru kannski of sterk". Hvað er maðurinn að meina? Upp úr fertugu hvað? Heldur hann virkilega að ég sé svona gömul? Ókey, ég er víst að verða fertug eftir 1 og hálft ár en eitthvað próf sem ég tók á facebook (og mikið að marka) sagði að ég væri tvítug! Takið eftir, 20 ára :) Ég sem svaraði öllu samviskusamlega. Þurfti bara að svindla í 1 spurningu þegar spurt var um hvort maður væri giftur, vel giftur, ekkja osfrv. Í sambúð var ekki í boði. Ég sagðist vera gift...........kannski fékk ég þessvegna þessa útkomu, hmmmmmm. En er 14 ára sambúð ekki mjög líkt því að vera gift? Hlýtur að vera.
Sólin er sest, stofan er full af böngsum og teppum og ég ætla að halda áfram að lesa "Dýragarðsbörnin".
Knús
Já Inga mín veðrið var gott í dag, kl. 6:35 í morgun, alveg indislegt að koma út og labba í vinnuna. Um hádegið var sól og Kinnarfjöllin skörtuði sínu fegursta. Það bærðist varla hár á höfði þegar eg labbaði heim kl.15:20 en það er svo mikið svell í tröppunum að eg var nærri dottin bæði á niðurleið og uppleið. það er spáð hláku á föstudaginn. Við sjáum til með snjóinn þegar líður að jólum. Sandkassinn er klár. Þúsund kossar og knús. Þín mamma.
SvaraEyðaJá mamma, mér sýndist þetta. Mætti vera svona á jólunum :)
SvaraEyðaÞú verður nú að passa þig að brjóta þig ekki í tröppunum! Stórhættulegar.......
Knús
hér er ekki kominn neinn snjór, en það er farið að kólna ískyggilega mikið á næturnar - þegar farið niður fyrir frostmarkið og eina góða við það er, að allar moksítóflugurnar eru nú dauðar - blessuð sé EKKI minning þeirra...
SvaraEyðaheyrðu vina, ég er farin að taka gleraugun mín ansi oft niður - þau eru eitthvað að trufla mig þessa dagana, getur það verið að ég sjái betur? þó það sé jákvætt að einu leiti - þá er það svooooo neikvætt að öðru - því ég vil alls ekki fá lesgleraugu, bara alls ekki ganga um með svona hálfgleraugu í keðju, eins og kellurnar á efri hæð kaupfélagsins gerðu í denn - manstu?
góðar kveðjur (já og laufey, í guðanna bænum skelltu þér í nelgda skó - ekkert grín að detta í hálkunni...)
Já vetur konungur fer örugglega að berja að dyrum hjá þér fljótlega.
SvaraEyðaEnn hlæ ég að húmornum þínum LOL, kellurnar í KÞ, já ég man :) Þú ættir að skella þér til augnlæknis og láta tékka á þessu. Ég hef minnkað um 0,5 síðan síðast.
Mamma og pabbi eru búin að moka tröppurnar. Ég fékk myndir áðan og talaði við mömmu.
Gott að mamma þín er búin að moka tröppurnar... sem betur fer eru engar tröppur hjá mér, nóg er nú hált fyrir framan íbúðina mína. Mamma fékk sér svona gorma sem hún skellir á skóna sína, kallar þetta keðjur og fæst hjá skósmiðum og í apótekum held ég, mjög sniðugt því það er ekki nauðsynlegt að taka þetta af skónum þegar maður fer inn, eyðileggur semsagt ekki gólf, engir broddar. Sniðugt fyrir mömmu þína að fá sér þannig til að nota þegar hún labbar í vinnuna:D
SvaraEyðaSýnist á myndunum að vefmyndavélin sé staðsett upp á Ráðhúsinu hér á Dalvík, finnst ég líka hafa heyrt það einhverntíman. En ég sé líka að klukkan er vitlaus, þ.e. miðað við íslenskan tíma, hún er klukkutíma á undan, sýndi 10:18 en klukkan mín er rétt að verða hálf 10 núna:)
SvaraEyðaHæ hæ Maja. Mér sýnist vera hláka og hvasst hjá þér núna. Engir kallar á þakinu heldur. Hvað er verið að byggja þarna svona fínt?
SvaraEyðaÞað er rétt með klukkuna, hún er á sama tíma og ég (vetrartímanum).
Kveðja á Dallas
Það er verið að byggja menningarhús:D Og já það er sko hvasst. Labbaði með Rakel Báru yfir til vinkonu minnar sem býr í næsta húsi og teppið fauk ofan af henni örugglega 5 sinnum og hún saup bara hveljur greyið:( En snjórinn er ekkert smá búinn að minnka við þetta.
SvaraEyða