Mér er búið að vera illt í tungunni í nokkra daga. Lýsir þér eins og að ég hafi brennt mig illa og það lagist ekki. Það er vont að drekka appelsínusafa og annað súrt, margt er skrýtið á bragðið og á kvöldin er tungan frekar hvít með rauð sár, líka á hliðinni. Var að athuga hvort ég fyndi einhvera lausn á netinu en ég finn ekkert. Ef þetta lagast ekki núna um helgina fer ég til læknis. Spurning hvort ég hafi borðað eitthvað sem hefur "brennt" tunguna???
Kominn laugardagur, 18.október! Október er meira en hálfnaður.........bara 2 mánuðir í jólin! Ég ætti að fara að huga að jólagjöfum, jólakortum ofl. Ætli ég geymi það samt ekki fyrr en eftir Hrekkjavökuna. Þá er líka kominn nóvember og veðrið býður þá oft upp á inniveru.
Í dag ætla ég með strákana, Bärbel og Florian í bæinn til að sjá "Recklinghausen leuchtet" sýninguna eins og í fyrra. Ætlum að fara seinnipartinn af stað en ljósin verða kveikt klukkan 19.
Á morgun er flóamarkaður í leikskólanum og ætla ég að reyna að losa mig við sem flest af fötum strákanna, þ.e. það sem er of lítið á Henrik. Ætla líka að baka muffur sem verða svo seldar. Var að baka prufu muffur úr Matreiðslubókin mín og Mikka áðan. Setti súkkulaðidropa í þær og appelsínugulan glassúr ofan á. Henrik fannst þær góðar, borðaði 3 á mettíma :)
Haustið sýnir enn og aftur sínar bestu hliðar. Sólin skín og það er lítill vindur. Hitinn er reyndar frekar lítill, svona um og yfir 10°.
Knús og góða helgi
Hæ,
SvaraEyðabara að commenta en samt um nákvæmlega ekki neitt, meira bara að skilja eftir spor:)
Góða skemmtun á flóamarkaði í leikskólanum.
Kveðja
Rakel Dögg
Takk Rakel mín. Það var fínt á flóamarkaði, seldi nokkrar flíkur og gaf strákunum aurinn.
SvaraEyðaNý vika, ný tækifæri.
Haustkveðja