mánudagur, 13. október 2008

Veðrið

Má ekki alltaf blogga/tala um veðrið? Á síðustu og verstu tímum má alveg tala um veðrið.

Ég verð reyndar lítið var við einhverja kreppu hér, lífið gengur sinn vanagang hjá mér og mínum. Sérstaklega í dag þar sem upp rann fyrsti skóladagur eftir haustfríið. Julian og Henrik voru bara mjög hressir í morgun en Henrik átti að mæta í talkennslu kl.8. Julian fór glaður og ánægður í skólann en því miður féll talkennslan niður. Konan sem átti að vera með Henrik sat einhvers staðar í biluðum bíl. Tíminn verður endurtekinn á miðvikudaginn, ekki málið.

Já og veðrið, komum nú að því. Það er svo yndislegt núna að það er alveg lygilegt. Á laugardaginn fór ég í smá hjólreiðatúr með strákana, bara hérna upp í garð. Oh, það var svo yndislegt að sitja á bekk, sólin sleikti vangana og hanarnir göluðu. Já það eru hanar í garðinum, þ.e. litla dýragarðinum. Strákarnir léku sér á leiksvæðinu á meðan. Af og til gargaði páfugl eða kindurnar og geiturnar jörmuðu. Ég hefði getað gleymt stund og stað...........

Í gær fór ég í göngutúr með Henrik, Florian og Bärbel. Um að gera að koma sér út í náttúruna, laufin falla af trjánum eins og snjókorn á fallegum vetrardegi. Sólin skein reyndar ekki fyrr en seinni partinn en veðrið var engu að síður frábært.

Í dag er sól og hlýtt, mjög hlýtt bara. Ég sat úti á svölum áðan og las "Dýragarðsbörnin", borðaði í leiðinni og drakk Capuccino. Hrikalega er þetta áhrifarík bók, vá. Er búin með 1/3 en samt er Christiane F. komin á H (heróín) ekki orðin 14 ára! Rosalega hefur það oft mikil áhrif hvar fólk elst upp, hvað verður úr því.......það er sko greinilegt.

Núna ákvað ég að blogga smá, gæti alveg setið úti áfram, eða sett stólana inn aftur en ég var svo rosalega dugleg að skúra eldhúsið! Ég þoli ekki að skúra.....ég elska að þvo þvott en að skúra, oj. Þvoði líka þvott í dag, alveg 2 vélar. Læt það duga. Handklæðin fara örugglega að verða þurr hérna úti á svölum, veðrið er jú svo fínt :)

Bestu veðurkveðjur........það gæti versnað í lok vikunnar. KNÚS og baráttukveðjur í Kreppuland.

2 ummæli:

  1. jú víst má tala um veðrið... það er eitthvað sem engum er hægt að kenna um - hvernig sem það lætur við okkur!

    hér er óvenjuhlýtt fyrir árstíma, en það á að kólna líka er líður á vikuna, það má samt bara gerst eftir morgundaginn - stefni á ferð á eplaekrur á morgun!

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Einmitt, veðrið kemur eins og það kemur, sama hverju er spáð :)

    Flott hjá þér að fara að tína epli. Bestu epli sem ég hef fengið(fyrir utan þessi eldrauðu)voru úr nágrannagarðinum hjá fjölskyldunni minni í USA. Við máttum tína eins og við vildum.

    Vonandi færðu gott veður :)

    SvaraEyða