Til að taka við þar sem Maja endaði þá var ég að enda við að kíkja á vefmyndavélina á Dalvík (og fleiri) og sá þar krakka að renna sér fyrir framan kirkjuna :) Ég kallaði í strákana og sýndi þeim, vakti hjá þeim vonir um að það yrði snjór um jólin svo þeir gætu farið að renna sér oftar en 1 sinni eins og jólin 2007! Verður maður ekki að vona það besta bara.
Þó það væri mér til mikils hags að það yrði brjálað veður og að lenda yrði á Akureyri eða Egilsstöðum ætla ég ekki að vona að veðrið verði eins og síðustu daga. Allavega ekki þá daga sem við verðum á ferðinni. Helga Jó. þú átt skilaboð á facebook ;)
Hér er enn fínt haustveður, það rignir þó annað slagið en ekkert til að vera veður útaf..... Allt fullt af laufblöðum og því eins gott að passa sig að detta ekki á blautum laufblöðum. Svo væri ekki vitlaust að setja vetrardekkin undir því að í næstu viku á að koma "snemmvetur" (Frühwinter) og hitinn að fara niður fyrir frostmark á næturna.
Hér verður bara fínn matur í kvöld en við fórum í tyrkneska markaðinn áðan og keyptum okkur bæði kálfasneiðar og lambakótelettur. Seydi þarf alltaf að kaupa fyrir heilan her þegar hann verslar. Létum krydda þetta á staðnum svo að nú þarf ég ekki að gera neitt nema henda á grillið, búa kannski til salat og sjóða kartöflur. Sjáum til hvaða meðlæti ég hef með. Seydi skrapp á verkstæðið og kemur að verða sjö.
Segi bara góða rest helgi og við SJÁUMST
Hæhæ. Eg vona nú að verði ekki mikill snjór um og kring um jolin, væri samt í lagi ef veðrið verður gott gaman fyrir strákana að renna sér. Vonandi hafið þið notið matarins, kannast við að fara með Seydi í búð maður rétt getur komið í veg fyrir að hann fari með alla búðina heim, tek hann með mér að versla fyrir jólin til að vera örugg að eiga nó. Hlakka til að sjá ykkur öll. Kveðja og knús þín mamma.
SvaraEyðaHaha mamma, góð hugmynd að taka Seydi með. Muna bara að láta hann borga líka ;)
SvaraEyðaJá það er víst óhætt að segja að það sé nógur snjór á Dalvíkinni til að renna sér... amk síðustu daga. Við fórum 3 vinkonur með strákana okkar í vikunni eftir leikskóla og leyfðum þeim að renna sér í kirkjubrekkunni (brekkunni sem þú sást í myndavélinni) og þar var sko nóg af snjó. Held reyndar að það sé byrjuð hláka núna, amk allt blautt og vindur úti, en það þarf heldur betur að hlána ef þessi snjór á allur að fara. Hér er sko verið að spara snjómokstur því það var enn verið að moka götur í gær, sennilega samdráttur þar eins og annarsstaðar í landinu, bara mokað á dagvinnutímum... eða eitthvað. En gatan mín er amk orðin fær, var ekki vel fær alla vikuna... og við á framhjóladrifnum fólksbíl... veit ekki alveg hvað við vorum að spá þegar við keyptum hann 2006 en það var líka fyrsta árið mitt á Dalvík, var ekki alveg búin að fatta hvað það er snjóþungt hérna.
SvaraEyðaEn það verður gaman að hitta ykkur um jólin:)