laugardagur, 29. nóvember 2008

Jæja

Nú ætti netið að vera komið í lag. Símalínan var víst ekki upp á sitt besta svona miðað við hvað margir eru komnir með DSL net og svona dót. Símaviðgerðarkallinn þurfti ekki einu sinni að koma í hús, til að laga, heldur hringdi bara í morgun, sagðist sjá að lína væri eitthvað "léleg" og kippti þessu í lag. Nú vona ég bara hið besta en get ekki hætt að líta á ljósið sem blikkaði stundum rautt...... er með einhverja paranoju að það fari að blikka aftur.

Strákarnir eru hálf slappir ennþá. Julian fékk lyf við bronkítis, læknirinn sagði að það gæti gert hann órólegan. Henrik fékk bara einn stíl í gær en hann borðaði ekkert. Gat borðað hálft rúnstykki í morgun og virðist vera að hressast. Er allavega farinn að rífa kjaft eins og honum einum er lagið!

Ég sjálf er frekar slök. Er með hálsbólgu, illt í hausnum og slöpp í kroppnum. Nenni samt ekki að fá flensu, nei bara engan veginn. Ætlaði að fara á verkstæðið að skrifa nokkra reikninga í dag en það er betra fyrir okkur þrjú að vera bara heima og slaka á. Skrifa blogg og svona líka ;)

Ég þurfti samt að þrífa stigaganginn áðan, setti í vél og setti upp seríur úti. Uppþvottavélin er líka búin að ganga í dag. Mér þykir alveg MEGA leiðinlegt að taka úr henni........sérstaklega hnífapörin. Je hvað mér þykir það ömurlega leiðinlegt. Næstum því jafn leiðinlegt og að strauja en ég drullaðist til að strauja einn jóladúk í morgun.

Nú er sólin farin að glenna sig eitthvað, annars er frekar "nóvemberlegt" veður eða þungbúið og frekar kalt. Mér sýnist vera jólalegt á Norðurlandinu allavega, snjór og alles.

Ætla að vona að Seydi kaupi eitthvað í matinn, annað hvort eitthvað til að elda eða tilbúið. En nú væri kannski best að gera einhvern hádegismat handa okkur þremur. Best að steikja soðnu kartöflurnar frá því í gær og henda á þeim eggjum, þ.e. ef ég á egg???? Veit það bara ekki, held ekki. Kannski ég setji bara dósasúpu í pott og hiti. Ég finn eitthvað.

Best að lesa yfir þetta blogg, mér finnst ég hálf dauð í hausnum, gæti verið að rugla heldur mikið!

Góða helgi

föstudagur, 28. nóvember 2008

Smá örblogg áður en netið dettur aftur út......já það virkaði vel í nokkra daga en í gær datt það allt í einu út. Rautt ljós á einhverju tæki og allt dautt. Svo hoppar það inn aftur. Ég var svo pirruð að ég hringdi í símafyrirtækið og það kemur einhver tæknikall á morgun. Líta á línuna, virðist vera eitthvað óstabíl. Sjáum til. Vonandi getur hann komið þessu í lag fyrir fullt og allt.

Henrik er veikur, gubbaði í gær og það ekkert smá, bara eins og í "The Exorcist". Ég mátti þrífa hér baðherbergið rúmlega átta í gærkveldi. Hann er slappur núna en ekkert lasinn, smá hausverkur bara. Veit ekki hvort hann getur farið að syngja í dag, sjáum til með það líka.

Veðrið er fínt, skýjað logn og 5° hiti. Ekkert jólalegt svo sem en þurrt.

Góða helgi kæru lesendur.

miðvikudagur, 26. nóvember 2008

Í dag dreif ég í því að setja upp aðventuljósið, seríu í stofuna og stjörnuna í eldhúsgluggann. Julian stakk upp á því að við næðum í jóladótið upp á loft og því drifum við í því þegar hann var búinn í skólanum. Það var mjög spennandi fyrir hann að skoða dótið og hann tók sig til og setti nokkrar myndir í gluggann í herbergi hans og Henriks. Lestin með batteríinu er mjög spennandi og einnig syngjandi elgurinn :) Alltaf jafn gaman að taka upp jóladótið.

Fyrst af öllu fór ég samt í göngutúr. Tók pósthúsið og bæinn með í leiðinni. Keypti smá jólaskraut og annað mis nauðsynlegt. Kom því klifjum búin að ná í Julian í skólann. Það var ansi kalt í morgun en komið í um 5° núna. Snjórinn er að mestu farinn, því miður. Ég bjóst heldur ekkert við því að hann lægi lengi á.

Evran komin í rúmlega 180 krónur! Frábært fyrir mig, fáránlegt fyrir ykkur sem búa á Íslandi. Það verður bara gaman að fara í búðir á Íslandi, margt billegra en nokkru sinnum áður.

Verður ekki lengra að sinni. Þarf með Henrik í talkennslu. Skrepp í Aldi á meðan. Fínt að hafa búðina svona við hliðina á talkennslunni. Annars er fínt að sitja bara og bíða, skoða slúðurblöð og annað. Gæti rekist á kunnuleg andlit aftur. Fyrir nokkru var aftur grein um Ísland, þ.e. Lundann.

Verið sæl að sinni

mánudagur, 24. nóvember 2008

Myndir ofl.

Smá myndablogg frá mér í dag. Hér er allt hvítt.......já, þið lásuð rétt HVÍTT. Ég myndi segja um 15 cm jafnfallinn snjór. Og það snjóar enn. Passar vel að jólamarkaðurinn opnar í dag :) Við Bärbel ætlum að labba með strákana í bókasafnið í dag og kannski búa til snjókalla á leiðinni. Vá hvað það er jólalegt að líta útum gluggann. Íbúðin er svo mikið bjartari en vanalega. Öll tré eru hvít því að snjórinn er það blautur að hann límist á allar greinarnar. Jæja, ég lofaði myndum:

Ég fór í gönguferð á miðvikudaginn og þá leit allt svona út. Stuttu seinna rigndi.

Í fyrradag leit himininn í Dorsten frekar dökkur út


Í dag leit veröldin hér svona út. "Winter wonderland"

Snjókveðja

föstudagur, 21. nóvember 2008

Föstudagur

Þolinmæðin gengur fínt, mætti vera betri því að netið er að stríða mér þessa dagana og það er pirrandi. Ég er orðin ráðalaus, stundum kemst á netið, stundum ekki, eitthvað rautt ljós á DSL tækinu blikkar og ekkert gengur, stundum er "routerinn" virkur, stundum ekki..........ferlega þreytandi. Kannski eru þeir hjá Telekom að stríða okkur en Seydi neitaði einhverju gylliboði frá þeim um ódýrara net osfrv. um daginn???? Æi ég veit það ekki.

Spáð brjáluðu veðri í dag, sums staðar er nú þegar kominn snjór. Hér kom smá él áðan en á víst að koma alvöru snjór í kvöld og í nótt. Spennt að vita hvort þetta gengur eftir.

Er að fara með strákana til Sultan á eftir. Leyfa strákunum að leika smá saman. En hringir Seydi ekki núna og biður mig að fara til Essen. Oh, hann vissi alveg að ég ætlaði til systur hans og sem betur fer var maðurinn hennar staddur á verkstæðinu og hann ætlar að fara.......vorkenndi mér af því að ég gargaði á Seydi og sagðist helst ekki vilja fara í þessu veðri og ég væri líka að fara út! Hann vissi það alveg. Hringir auðvitað akkúrat meðan að ég næ í Henrik, ég ekki með gemsann! Hann kann EKKI á klukku, hringir svo oft á þessum tíma. Ekkert verið að hringja meðan að ég er örugglega heim, nei nei. Alveg merkilegt. Nei, ég hef ekki þolinmæði í svona bull! Ég fer ekki alltaf með gemsann þegar ég sæki Henrik eða Julian. Það hringir aldrei neinn nema Seydi svo að það er ekki hundrað í hættunni.

Var í heimsókn í leikskólanum í morgun til 10:30 en þá fóru þau á leikrit á elliheimilunu á móti og ég þurfti að ná í Julian. Vá hvað sumir krakkar eru svona, æi hvað heitir það........vilja alltaf gera eitthvað með manni og stjórna öllu og öllum! Svona er fólk misjafnt, jafnvel sem krakkar.

Jæja, vona að þetta vistist........Góða helgi.

þriðjudagur, 18. nóvember 2008

Anda inn, anda út, bíta á jaxlinn

Nýtt líf hófst í dag. Ég er búin að lofa sjálfri mér að vera þolinmóðari við mig og alla í kringum mig. Ekki æsa mig útaf öllu mögulegu og síðast en ekki síst hætta þessu ógeðslega, ömurlega gargi.......je minn eini hvað ég er stundum þreytt á sjálfri mér. Það var kominn tími til að taka til hjá mér. Held að allir muni hljóta góðs af.

Henrik á það reyndar til að reyna alvarlega á taugarnar en það þýðir bara ekkert að æsa sig. Gerir bara illt verra, svo nokkuð er ljóst. Það er hægt að vera strangur án þess að garga. Ég skil stundum ekkert í mér að vera að æsa mig útaf einhverju, ég hef það gott. Ég á 2 yndisleg börn,
ég á sálufélaga, ég hef vinnu sem ég get farið úr og komið þegar ég vil (næstum því), ég á góða vini og yndislega fjölskyldu. Hvern andsk.... er maður að kvarta og kveina? Eða hafa áhyggjur af einhverjum smáatriðum, æsa sig (alltaf að æsa mig). Nei, það er betra að vera þolinmóður. Gott máltæki segir jú "þolinmæði þrautir vinnur allar". Ég held það bara......

Er þetta ekki annars skemmtilega upplífgandi blogg hjá mér? Ætla nú ekki að drepa ykkur með einhverjum hugarórum mínum. En það er ekki alltaf hægt að vera með húmorinn á lofti, ekki alltaf en oftast samt :) Það er voða stutt í púkann í mér.

Aðhaldið gengur bara vel, allavega 1,5 kg farið, annað eins eftir. Held samt að eitthvað hafi nú bæst á áðan. Át 2 diska af taglitella núðlum með jógúrt-hvítlaukssósu mmmmmmmmmmmm. Strákarnir eru sjúkir í hvítlauk, sérstaklega Julian. Henrik var fyndinn áðan. Á þýsku heitir hvítlaukur "Knoblauch". Hann segir þegar hann sér matinn "mmmmmmm, Klobauch" :D Ef ég ætti að þýða þetta væri það "klósettmagi". Hahaha
Sá annað fyndið í slúðurfréttunum áðan. Justin Timberlake að plata Beyonce Knowles sem dansari í sokkabuxum og leikfimisbol :D. Því miður er búið að taka þetta video útaf Youtube. Ég hló upphátt þegar ég sá þetta.
Eins og ég segi, stutt í púkann.

Hér spáð snjó um helgina!! Nú er að sjá hvort að það er eitthvað að marka veðurspána. Ég væri sko alveg til í smá snjó. Öll laufin að verða farin af trjánum og þá lífgar hvíta breiðan svo mikið upp á skammdegið en hér kemur sólin upp um 8 og sest um 16:30.

Knús og kveðjur frá Ingu hinni þolinmóðu.......

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Sunnudagur

Kominn sunnudagur eina ferðina enn og nóvember meira en hálfnaður.

Ég er búin að kaupa ALLAR jólagjafir handa fjölskyldunni heima, bara Seydi, strákarnir og Helga Dóra mín kæra eftir. Ég hlýt að finna eitthvað sniðugt handa henni. Var svona að gæla við það að kaupa eitthvað handa strákunum mínum öllum, á Íslandi. Julian langar ekki í neitt nema Lego plötur með götum á, þ.e. götum til að keyra á. Ég fer nú samt varla að burðast með þannig dót til Íslands til að koma með það hingað aftur. Sjáum til hvað ég geri.

Þessar jólagjafir eru líka komnar í pappír og jólakortin eru komin í hús. Á bara eftir að skrifa á umslögin. Ég held að ég hafi aldrei verið svona snemma í því. Ég hefði m.a.s. tíma til að senda þetta allt saman ef ég væri ekki að koma sjálf um jólin. Nú er bara að vona að það verði ekki brjálað veður þarna 21.des. En það væri svo sem ekkert hægt að gera í því. Vona bara að við komumst til landsins, allt annað er aukaatriði.

Læt þetta duga í dag. Best að koma inn myndum af stjörnusöngvaranum mínum, honum Henrik, á barnaland. Hann var svo mikil dúlla að syngja fyrir framan ráðhúsið í gær. Eftir sönginn fóru bræður með pabba sínum heim á bílnum en ég ákvað að labba heim. Hef gott af því og kíkti í nokkra búðarglugga. Keypti ekki neitt samt. Alveg ókeypis að skoða í glugga :) Sá litla mús bakvið kirkjuna, hún hrökk við að sjá mig en stoppaði svo aðeins og ég fylgdist smá með henni. Svo þaut hún inni í runnann. Bless litla mús.

Góðan sunnudag. Set inn video af Henrik, vill ekki virka á barnalandi. Viðbót: Myndir frá því í gær á síðu bæjarblaðsins.


miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Að bera vörur upp á.......

......... 4.hæð ER þreytandi. Tveir fullir haldapokar plús poki úr íþróttabúðinni plús 2 börn. Börnin labba reyndar sjálf en það þarf alveg að ýta á eftir þeim annað slagið, segja þeim líka að hafa ekki of hátt í stigaganginum en það bergmálar svo hrikalega og mest allt eldri borgarar sem búa hérna. Við erum eina "unga" fjölskyldan, hinir allir komnir yfir fimmtugt, sú elsta 86 ára. Það er því ekki mikið um hávaða og læti hér, engin partý eða neitt þannig. Eini hávaðinn er í okkur, Seydi trampar eins og fíll upp stigann, strákarnir síblaðrandi og ég, já ég á það til að vera hávær. Gæti heyrst í mér fram á gang annað slagið :/

Sá að það er kominn snjór á Norðurlandi, er ekki búin að kíkja í vefmyndavélina í borginni. Vonin um hvít jól eflist þegar ég sé þetta hvíta klæði hylja jörðina hjá ykkur. Hér er sól og ský til skiptis, vindur og um 10°. Eitthvað spáð kólnandi en engum vetri enda er haustið ekkert farið. RISA ryksuga sogar laufblöðin á götum og gangstéttum svo að fólk detti nú ekki ef það er blautt á. Það gæti farið illa.

Þar sem ég þyngdist um ein 3 kg. um jólin í fyrra ákvað ég að reyna að léttast um þau áður en ég færi til Íslands..........bjartsýnin að drepa mig. Fór því út að labba í morgun. Ekkert lengi, bara svona 20 mín. labb hér um hverfið en þá var mjöðmin farin að segja til sín og smá hlaupastingur kominn. Þetta var mjög hressandi enda gott gönguveður. Hitti varla sálu á leiðinni enda er þetta rólegt hverfi. Nema mín gata auðvitað enda ein af aðalgötunum. Mér datt í hug að labba framhjá skólanum, þar voru frímínútur, en ákvað að vera ekkert að "njósna" um Julian.

Eftir gönguna fór ég snöggvast í Aldi. Eins og allavega 2 síðustu ár voru þeir með Machintosh. YES, ég keypti 2 dalla (pappírs) @ 438 gr. og þeir kostuðu heilar 3,80 evrur stykkið. Frekar dýrt en hvað gerir maður ekki fyrir smá stemmingu. Sótti Julian kl.10:45 og brunaði beint til Essen að ná í varahluti, henti þeim inn á verkstæði og fór svo í Decathlon, uppáhalds íþróttabúðina. Keypti 2 jólagjafir, flíspeysu handa mér og flíspeysu, skíðavettlinga og snjóbuxur (á niðursettu verði) handa Julian. Það þarf að vera hagsýnn en þessar buxur eru sko fyrir næsta vetur..........fyrir þennan vetur keypti ég í fyrra. Það sem þær eru ekki notað oft dettur mér ekki í hug að eyða mörgum þúsundum í þær. Ekki fara að gera grín af því að ég sé nísk OK. :)

Nú er ég orðin svöng. Borðaði engan hádegismat nema nokkra Machintosh mola........já já, léttast um 3 kg. hahaha. Best að taka til kaffi og reyna að borða eitthvað af þessu kexi sem ég á.

Kveðja í snjóinn, eða ekki snjóinn, fer eftir því hvar þið eruð :)

mánudagur, 10. nóvember 2008

Tíminn flýgur

Er virkilega kominn 10.nóvember?????? Það er bara rétt rúmlega mánuður í jólin! Oh, hvað ég hlakka til að koma heim um jólin. Strákarnir líka, báðir búnir að tala um ferðina í skóla/leikskóla. Jólagjafir komnar vel á veg, jólakortin tilbúin nema þessi sem fara til "útlanda" þ.e. ekki á íslensku. Verð að græja þau fljótlega.

Unnur búin að fá afmælisgjöfina sína, m.a.s. búin að opna hana......alveg óvart sagði hún :D

1. foreldraviðtalið í skólanum í dag. Ég fékk Bärbel til að líta eftir strákunum, ekki málið. Ég er svo stolt af Julian. Hann er svo duglegur, hjálpsamur, vinalegur við hina krakkana, fljótur að læra og góður. Á smá erfitt með að sitja kyrr og lætur stundum aðra hafa neikvæð áhrif á sig en ekkert til að hafa áhyggjur af. Je hvað ég man hvað pabbi var alltaf stoltur af mér þegar hann kom úr foreldraviðtali :) Gleymi því ALDREI. Núna líður mér eins og honum. Eins og mér leið nú hinsegin í síðustu viku! Svona er lífið :)

Skellti mér með strákana í sund í gær. Vá hvað það var gaman. Sultan mágkona var líka með Said-Doane og frændur skemmtu sér konunglega, já og okkur Sultan. Við hló(g)um svo af þeim þegar þeir voru að gera stökkkúnstir sínar :D Henrik er svo mikill api. Alveg eins og einhver lítill kraftakall þegar hann hoppaði þarna á bakkanum og stökk svo ofan í. Hrikalega fyndinn. Ég ætla að vera dugleg að fara með þá í sund, líka í jólafríinu.

Loksins komið veður eftir margra daga logn, ský og 12° hita. Loksins kominn vindur og rigning. Mér leiðist svona lognmolla, þ.e. ekkert veður. Hlýtur að vera í blóðinu. Það var hríð í dag, laufblaðahríð sko. Allt fallega gult en í svona hvössu fljúga laufblöðin af trjánum og útum allt. Gangstéttar og götur gular af laufblöðum. Oh, ég elska haustið sem senn tekur enda.

Knús

laugardagur, 8. nóvember 2008

Andleysi

Má segja að andleysi sé ríkjandi þessa dagana. Allavega þegar ég hugsa um að blogga, eða ekki! Ef þið hafið lesið vefdagbók Julian vitið þið kannski afhverju ég er hálf andlaus. Það er aldrei gott að fá að heyra það að barnið manns hagi sér illa, eigi við hegðunarvandamál að stríða........Ótal hugsanir hrannast upp í huganum. Sérstaklega spurningin "er ég ekki að ala barnið mitt upp almennilega?" Æi, ég veit að ég á ekkert að vera að velta mér of mikið upp úr þessu sundkennslumáli en ég skil báðar hliðar. Julian finnst kennslan leiðinleg og kennarinn "meiðir" hann með því að toga í fæturna þegar hann syndir og út frá því hagar hann sér illa, truflar kennsluna og ekki dugar að setja hann í skammarkrókinn. Það er engin afsökun, ég veit alveg hvernig hann getur hagað sér, þ.e. illa. Orðið reiður ef honum líkar ekki við eitthvað. Oftast er einhver ástæða á bakvið reiðina. Þannig sé ég þetta í dag. Á fimmtudaginn fannst mér ég ömurleg mamma með óþægt, truflandi barn með hegðunarvandamál. Verð samt að segja það að mér sjálfri finnst þessi sundkennari "unsympatisch" (finn ekkert orð á ísl.).

Nú er ég spennt að vita hvað skólakennarinn hans Julian segir um hann á mánudaginn. Þá er 1.foreldraviðtalið. Julian er ánægður í skólanum en það þýðir ekkert að hann hagi sér skikkanlega og vel. Reyndar eru víst tveir strákar í bekknum sem sjá mikið um að vera í "skammarkróknum" svo að kannski tekst ekki eftir Julian. Ég bara veit það ekki þó ég þykist þekkja barnið mitt nokkuð vel :/ Eitt veit ég þó ekki. Hvað ég á að gera við strákana á meðan ég fer í viðtal! Það er kl.14:10 og Seydi í vinnunni. Verð að taka þá með, þeir hljóta að mega leika sér úti eða eitthvað.

Vorum á ferðinni í allan dag. Fórum rúmlega 10 úr húsi í átt að Duisburg og keyptum þar bíl. Skiluðum honum svo á verkstæðið og brunuðum til Haltern og keyptum þar annan bíl. Aftur á verkstæðið og svo í búð að kaupa gervihnattadisk. Spurning hvenær hann kemust upp!!!!! Keyptum svo aðeins í matinn og skruppum svo til tengdó í mat. Sultan og co. komu líka svo það var fjör. Julian komst upp á kant við frænda sinn og bróður, fékk reiðiskast en baðst afsökunar hérna heim komin. Sá eftir því að hafa látið svona. Hann er núna búin að byggja kubbahús og er að leika í því. Eins og oft...........Fer að koma háttatími fyrir litla gaura. Tími til að bursta tennur og lesa bók. Segi því bless í bili.

Góða helgi

miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Tilkynning

Eitthvað virðist vera að hjá barnalandi. Síðurnar með nöfnunum virka ekki, hjá mér allavega. Er búin að setja inn nýja linka hérna á síðunni með "gömlu" númerum strákanna. Ætti að virka.

Hvað segir fólk annars á fyrsta degi nýrra tíma í USA? Vonandi allavega og mjög sennilega. Ég var ánægð þegar ég vaknaði klukkan rúmlega 6:30 í morgun og kveikti á sjónvarpinu og sá hver hefði unnið. Hérna var víst kosningavaka alla nóttina. Kannski á Íslandi líka. Vá hvað fólk var glatt og ánægt í USA, grét og gargaði af gleði. Nema kannski Repúblikanar.Gott mál.

Þar sem við höfðum bara 1 bíl í morgun og ég þurfti að mæta á foreldraráðsfund kl.8:30 skelltum við Henrik okkur á hjóli í leikskólann. Litli kraftakallinn minn þurfti samt að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni enda er "brekkan" hérna upp eftir ansi lúmsk. Löng en ekkert brött. Þeim mun skemmtilegra og auðveldara að renna sér heim. Rosalega var það gott að hreyfa sig aðeins. Ég hef líka ákveðið að fara út að labba eða hjóla á miðvikudögum, jafnvel á föstudögum líka. Sjáum til hvað ég er dugleg.

OH, þetta átti ekkert að verða neitt langt blogg. Ætlaði bara að segja ykkur frá barnalandi. Ó jæja, er búin að skrifa og ætla ekki að fara að eyða því.

Knús

mánudagur, 3. nóvember 2008

Lygasaga

Ég var búin að minnast á það að mér væri illt í tungunni, hún væri bólgin og sár. Í gær ákvað ég að fara til læknis í dag til að láta líta á þetta. Alveg ómögulegt að vera svona, vont að borða, tala og kyngja.
Eftir að hafa "hent" öllum karlmönnunum út, seinnipartinn í gær, sat ég hér í makindum mínum við tölvuna og kíkti hingað og þangað á netinu. Eftir nokkurn tíma fann ég eitthvað hart á tungunni og ákvað að fara með tennurnar það og mér tókst að skafa eitthvað fram og tók það út úr mér. "Þetta" minnti helst á svona lítinn brúnan enda af "hommaspennu", þið vitið, lítið hringlótt. Ég læt "þetta" hverfa og hugsa ekkert meira út í það. Allt í einu fór ég að finna fyrir skrýtnum fiðring í tungunni, eins og hún væri að skreppa saman.
Eftir svona hálftíma koma Seydi heim og þá var tungan orðin minna sár og minnkuð um helling. Ég bað Seydi að kíkja á þetta og rak tunguna út úr mér :Þ
Hann sagðist sjá mun. Ég finn að tungan er orðin virkilega góð og fæ mér því að borða en ég var búin að missa alla lyst.

Í morgun er bara, næstum því, eins og tungan hafi aldrei verið bólgin!!!!!! Hún er ljósrauð og fín, bara eins og alltaf. Finn aðeins fiðring en það virðast bara var eftirköst eftir sárin. Nú er ég búin að velta þessu fyrir mér í allan dag. Hvað gæti þetta hafa verið? Var þetta kannski einhver eitursveppur sem eitraði allt munnholið út frá sér? Svo kom ég með mínar tennur og reif hann upp með rótum? Hlýtur bara að vera. Hefur einhver lent í svona? Þetta er bara eins og lygasaga, nema það að hún er SÖNN. Ég fór því ekkert til læknis í dag. Fer samt strax ef ég finn einhverjar bólgur aftur. Það er á hreinu.

Annars ekkert að frétta. Það er orðið dimmt fyrir kl. sex. Best að leggjast bara undir hýði svona á haustin/veturna. Það varð ekkert bjart í dag, skýin héngu neðarlega í dag. Veður til að vera heima, drekka kakó og lesa bók (lesist: hanga á netinu). En ég þurfti að vinna, ná í Julian og skreppa svo til Essen að ná í varahluti.
Ég er alger innipúki, elska að vera bara heim. Strákarnir eru að verða eins. Þeim finnst samt alveg gaman að vera úti en þeim mun betra að koma svo heim. Home sweet home.

Knús