Nýtt líf hófst í dag. Ég er búin að lofa sjálfri mér að vera þolinmóðari við mig og alla í kringum mig. Ekki æsa mig útaf öllu mögulegu og síðast en ekki síst hætta þessu ógeðslega, ömurlega gargi.......je minn eini hvað ég er stundum þreytt á sjálfri mér. Það var kominn tími til að taka til hjá mér. Held að allir muni hljóta góðs af.
Henrik á það reyndar til að reyna alvarlega á taugarnar en það þýðir bara ekkert að æsa sig. Gerir bara illt verra, svo nokkuð er ljóst. Það er hægt að vera strangur án þess að garga. Ég skil stundum ekkert í mér að vera að æsa mig útaf einhverju, ég hef það gott. Ég á 2 yndisleg börn, ég á sálufélaga, ég hef vinnu sem ég get farið úr og komið þegar ég vil (næstum því), ég á góða vini og yndislega fjölskyldu. Hvern andsk.... er maður að kvarta og kveina? Eða hafa áhyggjur af einhverjum smáatriðum, æsa sig (alltaf að æsa mig). Nei, það er betra að vera þolinmóður. Gott máltæki segir jú "þolinmæði þrautir vinnur allar". Ég held það bara......
Er þetta ekki annars skemmtilega upplífgandi blogg hjá mér? Ætla nú ekki að drepa ykkur með einhverjum hugarórum mínum. En það er ekki alltaf hægt að vera með húmorinn á lofti, ekki alltaf en oftast samt :) Það er voða stutt í púkann í mér.
Aðhaldið gengur bara vel, allavega 1,5 kg farið, annað eins eftir. Held samt að eitthvað hafi nú bæst á áðan. Át 2 diska af taglitella núðlum með jógúrt-hvítlaukssósu mmmmmmmmmmmm. Strákarnir eru sjúkir í hvítlauk, sérstaklega Julian. Henrik var fyndinn áðan. Á þýsku heitir hvítlaukur "Knoblauch". Hann segir þegar hann sér matinn "mmmmmmm, Klobauch" :D Ef ég ætti að þýða þetta væri það "klósettmagi". Hahaha
Sá annað fyndið í slúðurfréttunum áðan. Justin Timberlake að plata Beyonce Knowles sem dansari í sokkabuxum og leikfimisbol :D. Því miður er búið að taka þetta video útaf Youtube. Ég hló upphátt þegar ég sá þetta.
Eins og ég segi, stutt í púkann.
Hér spáð snjó um helgina!! Nú er að sjá hvort að það er eitthvað að marka veðurspána. Ég væri sko alveg til í smá snjó. Öll laufin að verða farin af trjánum og þá lífgar hvíta breiðan svo mikið upp á skammdegið en hér kemur sólin upp um 8 og sest um 16:30.
Knús og kveðjur frá Ingu hinni þolinmóðu.......
Gangi þér vel í þolinmæðisátakinu elskan mín, þín mamma
SvaraEyðaTakk mamma mín, ég reyni mitt besta. Var að koma úr göngutúr, voðalega hressandi. Ætla svo að þrífa þvottaloftið.
SvaraEyðaJá þetta með þolinmæðina er alveg rétt hjá þér...en sumir dagar geta verið erfiðari en aðrir og þá bara stundum missir maður sig í einhverju leiðinlegu gaggi. En það er verra þegar maður er farin að heyra í sjálfu sér og farið að leiðast það...þá er um að skipta yfir í glaða og þolinmóða gírinn...gangi þér vel í þolinmæðinni.
SvaraEyðakveðja
Heiðrún
Takk fyrir uppörvarndi orð Heiðrún mín. Þú er líka svo glöð manneskja, mætti taka þig til fyrirmyndar.
SvaraEyðaSjáumst
mér heyrist sem við eigum háa gargtóna sameiginlega... ég reyni reglulega að hægja á mér, en það er svo ofsalega erfitt þegar börnin sýna manni enga stillingu þrátt fyrir góð tiltöl - en meðan þú ert þess vitandi að þetta sé kannski "a bit to much" þá er hægt að bíta í tunguna reglulega og telja upp að tíu og anda svo djúúúpt inn...
SvaraEyðaheldur þú að mömmur okkar hafi einhverntímann þurft að bíta í sínar tungur, einhvernveginn held ég að ég hafi verið svo obbbboslega þæg að til þess hafi ekki þurft að koma, hahaha....
góða lukku vinkona, þú ert að standa þig vel!
Takk fyrir peppið Stella mín. Þetta gengur bara mjög vel hjá mér. Lyklaborðið virðist virka núna, netið er hins vegar að stríða mér. Það er smá pirrandi en ég læt það ekki fara í taugarnar á mér.
SvaraEyðaMamma þurfti örugglega að bíta 100 sinnum í tunguna.....
Góða helgi