laugardagur, 8. nóvember 2008

Andleysi

Má segja að andleysi sé ríkjandi þessa dagana. Allavega þegar ég hugsa um að blogga, eða ekki! Ef þið hafið lesið vefdagbók Julian vitið þið kannski afhverju ég er hálf andlaus. Það er aldrei gott að fá að heyra það að barnið manns hagi sér illa, eigi við hegðunarvandamál að stríða........Ótal hugsanir hrannast upp í huganum. Sérstaklega spurningin "er ég ekki að ala barnið mitt upp almennilega?" Æi, ég veit að ég á ekkert að vera að velta mér of mikið upp úr þessu sundkennslumáli en ég skil báðar hliðar. Julian finnst kennslan leiðinleg og kennarinn "meiðir" hann með því að toga í fæturna þegar hann syndir og út frá því hagar hann sér illa, truflar kennsluna og ekki dugar að setja hann í skammarkrókinn. Það er engin afsökun, ég veit alveg hvernig hann getur hagað sér, þ.e. illa. Orðið reiður ef honum líkar ekki við eitthvað. Oftast er einhver ástæða á bakvið reiðina. Þannig sé ég þetta í dag. Á fimmtudaginn fannst mér ég ömurleg mamma með óþægt, truflandi barn með hegðunarvandamál. Verð samt að segja það að mér sjálfri finnst þessi sundkennari "unsympatisch" (finn ekkert orð á ísl.).

Nú er ég spennt að vita hvað skólakennarinn hans Julian segir um hann á mánudaginn. Þá er 1.foreldraviðtalið. Julian er ánægður í skólanum en það þýðir ekkert að hann hagi sér skikkanlega og vel. Reyndar eru víst tveir strákar í bekknum sem sjá mikið um að vera í "skammarkróknum" svo að kannski tekst ekki eftir Julian. Ég bara veit það ekki þó ég þykist þekkja barnið mitt nokkuð vel :/ Eitt veit ég þó ekki. Hvað ég á að gera við strákana á meðan ég fer í viðtal! Það er kl.14:10 og Seydi í vinnunni. Verð að taka þá með, þeir hljóta að mega leika sér úti eða eitthvað.

Vorum á ferðinni í allan dag. Fórum rúmlega 10 úr húsi í átt að Duisburg og keyptum þar bíl. Skiluðum honum svo á verkstæðið og brunuðum til Haltern og keyptum þar annan bíl. Aftur á verkstæðið og svo í búð að kaupa gervihnattadisk. Spurning hvenær hann kemust upp!!!!! Keyptum svo aðeins í matinn og skruppum svo til tengdó í mat. Sultan og co. komu líka svo það var fjör. Julian komst upp á kant við frænda sinn og bróður, fékk reiðiskast en baðst afsökunar hérna heim komin. Sá eftir því að hafa látið svona. Hann er núna búin að byggja kubbahús og er að leika í því. Eins og oft...........Fer að koma háttatími fyrir litla gaura. Tími til að bursta tennur og lesa bók. Segi því bless í bili.

Góða helgi

4 ummæli:

  1. Hvernig kenna þeir sund þarna með því að toga í fæturnar á krökkunum ég bara spyr. Óskar gamli á Laugum var að vísu með prik sem hann potaði í okkur þegar við gerðum ekki rétt, en það var af því hann mundi ekki hvað við hétum.Annars skaltu bara láta pabba þinn kenna strákunum að synda og málið er dautt. Heilsa frá Egilsstöðum.

    SvaraEyða
  2. Býst við að þetta sért þú Valla mín. Þú hefur bara rétt fyrir þér, bara láta pabba kenna þeim um jólin :) Ég er reyndar búin að heyra af góðum námskeiðum með bara 5-6 krökkum og engu togi.
    Sjáumst vonandi um jólin :D

    SvaraEyða
  3. Ég segi nú það sama og Valla, hvað hefur sundkennsla með lappatog að gera, er hann að toga fóta sundtökin eða?? Man eftir kennara sem kenndi mér þegar ég var ´í 1. og 2. bekk, hann notað kúst til að ýta á eftir þeim sem voru seinir, lenti sem betur fer aldrei í því!!! En það var í kringum 1980.
    Ég vildi að við byggjum nær hvorri annari, þá myndi ég hafa strákana fyrir þig meðan þú ferð í viðtalið:)
    Kveðja af Dalvíkinni:)

    SvaraEyða
  4. Já Maja, ég held að hann sé að taka fótatökin fyrir Julian, eitthvað þannig. Var að koma úr sundi og sem betur fer er Julian ekki búinn að missa áhugann á vatni. Það var alveg hreint rosalega gaman.

    Takk fyrir gott boð Maja mín, væri gott að hafa einhvern til að passa.

    Knús

    SvaraEyða