miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Að bera vörur upp á.......

......... 4.hæð ER þreytandi. Tveir fullir haldapokar plús poki úr íþróttabúðinni plús 2 börn. Börnin labba reyndar sjálf en það þarf alveg að ýta á eftir þeim annað slagið, segja þeim líka að hafa ekki of hátt í stigaganginum en það bergmálar svo hrikalega og mest allt eldri borgarar sem búa hérna. Við erum eina "unga" fjölskyldan, hinir allir komnir yfir fimmtugt, sú elsta 86 ára. Það er því ekki mikið um hávaða og læti hér, engin partý eða neitt þannig. Eini hávaðinn er í okkur, Seydi trampar eins og fíll upp stigann, strákarnir síblaðrandi og ég, já ég á það til að vera hávær. Gæti heyrst í mér fram á gang annað slagið :/

Sá að það er kominn snjór á Norðurlandi, er ekki búin að kíkja í vefmyndavélina í borginni. Vonin um hvít jól eflist þegar ég sé þetta hvíta klæði hylja jörðina hjá ykkur. Hér er sól og ský til skiptis, vindur og um 10°. Eitthvað spáð kólnandi en engum vetri enda er haustið ekkert farið. RISA ryksuga sogar laufblöðin á götum og gangstéttum svo að fólk detti nú ekki ef það er blautt á. Það gæti farið illa.

Þar sem ég þyngdist um ein 3 kg. um jólin í fyrra ákvað ég að reyna að léttast um þau áður en ég færi til Íslands..........bjartsýnin að drepa mig. Fór því út að labba í morgun. Ekkert lengi, bara svona 20 mín. labb hér um hverfið en þá var mjöðmin farin að segja til sín og smá hlaupastingur kominn. Þetta var mjög hressandi enda gott gönguveður. Hitti varla sálu á leiðinni enda er þetta rólegt hverfi. Nema mín gata auðvitað enda ein af aðalgötunum. Mér datt í hug að labba framhjá skólanum, þar voru frímínútur, en ákvað að vera ekkert að "njósna" um Julian.

Eftir gönguna fór ég snöggvast í Aldi. Eins og allavega 2 síðustu ár voru þeir með Machintosh. YES, ég keypti 2 dalla (pappírs) @ 438 gr. og þeir kostuðu heilar 3,80 evrur stykkið. Frekar dýrt en hvað gerir maður ekki fyrir smá stemmingu. Sótti Julian kl.10:45 og brunaði beint til Essen að ná í varahluti, henti þeim inn á verkstæði og fór svo í Decathlon, uppáhalds íþróttabúðina. Keypti 2 jólagjafir, flíspeysu handa mér og flíspeysu, skíðavettlinga og snjóbuxur (á niðursettu verði) handa Julian. Það þarf að vera hagsýnn en þessar buxur eru sko fyrir næsta vetur..........fyrir þennan vetur keypti ég í fyrra. Það sem þær eru ekki notað oft dettur mér ekki í hug að eyða mörgum þúsundum í þær. Ekki fara að gera grín af því að ég sé nísk OK. :)

Nú er ég orðin svöng. Borðaði engan hádegismat nema nokkra Machintosh mola........já já, léttast um 3 kg. hahaha. Best að taka til kaffi og reyna að borða eitthvað af þessu kexi sem ég á.

Kveðja í snjóinn, eða ekki snjóinn, fer eftir því hvar þið eruð :)

8 ummæli:

  1. hæ miss pretty in pink...

    veistu, það er alveg hægt að léttast á machintosh - svo lengi sem þú labbar helling, og étur ekkert annað! verri ráð eru til, vertu viss! (ekki að ég sjái að þú þurfir neitt á þyngdarmissi að halda)

    já ekki veit ég hvernig þú hefur haft það af, að búa á 4. hæð með tvo orma og allt það sem þeim fylgir og jú þessum blessaða mat sem þarf að elda svo að elda þegar upp er komið(annar góður punktur við machintoshið - bara rífa bréf af og éta).
    ég þarf bara að bera mitt dótarí inn frá bílskúrnum og ég hef í huganum, í þreytu minni, hannað ansi margar rennibrautir - á einhverskonar færiböndum til að einfalda mér lífið - gæti alveg byggt eina ef húsið mitt væri aðeins öðruvísi byggt, og þetta væri svona og hitt hinseginn...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Haha, rennibraut frá bílskúr inn í eldhús :) Það sem þér dettur í hug.

    Sko, eiginlega er það mín líkamsrækt að labba/hlaupa hér upp á 4.hæð, er líka hollt fyrir strákana. Þeir eru farnir að hlaupa stiga eins og heimsmeistarar. Ég sendi þá í Empire State Building hlaupið einn góðan veður dag :D

    Machintosh er klassi, nema hvað ég sakna sumra "gömlu" molanna. Samt alltaf stemming í þessum molum.

    Takk fyrir að gefa þér tíma til að kvitta. Knús

    SvaraEyða
  3. Hæ hæ já machintoshið stendur alltaf fyrir sínu og fer fljótt af eftir stigahlaupið:) En mér finnst þú ekki nísk heldur frekar hagsýn...

    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða
  4. Já er það ekki Heiðrún, þakka þér fyrir :) Alltaf gaman að gera góð kaup (buxurnar voru á 13,90 úr 34,90)

    Kveðja í snjóinn, ertu farin að moka ;)

    SvaraEyða
  5. Sammála Heiðrúnu... þú ert ekki nýsk. Maður þarf bara að spá í svona hluti. Ég keypti snjógalla á Alexander í 66°N í sumar á útsölu, kostaði samt rúmlega 6000 kall, veit ekki hvað hann kostaði fyrir. Mig langar sjálfa í góðar snjóbuxur og úlpu en þetta kostar ógeðslega mikið. Get nú bara sagt þér að vinkona mín fór í 66°N um daginn (alltaf verið að benda manni á að velja íslenskt í dag) og ákvað að kíkja á svona snjóföt... buxurnar kostuðu um 45000 og úlpan eitthvað álíka... semsagt 90000 krónur!!! Það finnst mér nú fullmikið af því góða sko. Og úlpa á son hennar sem er 1 og hálfs árs kostaði rúmlega 22þúsund. Þeim pening myndi ég aldrei eyða í föt á börnin mín meðan þau eru svona ung. Enda keypti hún ekkert. Það er bara rugl að kaupa svona dýrt þegar þetta er ekki notað nema nokkra mánuði, tala nú ekki um eins og hjá þér þar sem snjórinn kemur varla.
    Ég er að gæla við að kaupa jólaföt fyrir næstu jól og jafnvel snjógalla og stígvél eða kuldaskó á krakkana í janúar á útsölu... er nú ekki að böggast yfir því að þau séu ekki í nýjustu tískunni hehehehe;D
    Jæja alltof langt komment hjá mér.. heyrumst

    SvaraEyða
  6. Nei sjálfsagt er ég ekkert nísk heldur hagsýn. Það sem ég hef keypt á strákana í gegnum árin hefur flest verið á útsölu, sama hvort það er H&M eða merkjavara.
    En vó, skíðagalli á 90000!!! Nei, þá væri ég nísk. Eða úlpa á 22000 á krakka, nei takk. Íslenskt eða ekki.
    Ég kaupi oft úlpur og svona á vetrarútsölum, þ.e. handa Julian, Henrik erfir svo flest. Það versta með skóna er að það er oft erfitt að vita hvaða stærð þau þurfa eftir tæplega ár......

    Knús

    SvaraEyða
  7. Já það er rétt Inga, ég hef ekki gert þetta áður, ætlaði að gera þetta í fyrra en hætti við því ég var ekki viss hvaða stærð hann myndi nota þá.
    Gallinn sem ég keypti á Alexander í sumar er einmitt drappaður á litinn því ég var viss um að það væri stelpa í bumbunni, hún getur þá notað hann seinna. Svo hef ég nú líka verið heppin að fá mikið af fötum frá Höllu systur og Lenu svilkonu minni, það munar helling að þurfa ekki að kaupa allt þegar þau eru svona lítil. Fólk má alveg kalla mig níska líka hehehe;D

    SvaraEyða