miðvikudagur, 26. nóvember 2008

Í dag dreif ég í því að setja upp aðventuljósið, seríu í stofuna og stjörnuna í eldhúsgluggann. Julian stakk upp á því að við næðum í jóladótið upp á loft og því drifum við í því þegar hann var búinn í skólanum. Það var mjög spennandi fyrir hann að skoða dótið og hann tók sig til og setti nokkrar myndir í gluggann í herbergi hans og Henriks. Lestin með batteríinu er mjög spennandi og einnig syngjandi elgurinn :) Alltaf jafn gaman að taka upp jóladótið.

Fyrst af öllu fór ég samt í göngutúr. Tók pósthúsið og bæinn með í leiðinni. Keypti smá jólaskraut og annað mis nauðsynlegt. Kom því klifjum búin að ná í Julian í skólann. Það var ansi kalt í morgun en komið í um 5° núna. Snjórinn er að mestu farinn, því miður. Ég bjóst heldur ekkert við því að hann lægi lengi á.

Evran komin í rúmlega 180 krónur! Frábært fyrir mig, fáránlegt fyrir ykkur sem búa á Íslandi. Það verður bara gaman að fara í búðir á Íslandi, margt billegra en nokkru sinnum áður.

Verður ekki lengra að sinni. Þarf með Henrik í talkennslu. Skrepp í Aldi á meðan. Fínt að hafa búðina svona við hliðina á talkennslunni. Annars er fínt að sitja bara og bíða, skoða slúðurblöð og annað. Gæti rekist á kunnuleg andlit aftur. Fyrir nokkru var aftur grein um Ísland, þ.e. Lundann.

Verið sæl að sinni

2 ummæli:

  1. ja hérna, það eru allir eitthvað voðalega mikið að flýta sér að heilsa jólunum þetta árið! hér er það venjulega um þakkargjörðarhelgina, og ég hef verið að halda aftur af mér þar til eftir afmæli stelpnanna, svona svo það sé hægt að hafa afmælisþemu en ekki jólaþemu í þeirra veislum... þannig að það má segja að ég sé að verða eins og scrooge sem vildi ekki jólin í samanburði við ykkur duglegu!
    bestu kveðjur yfir atlantshafið...

    SvaraEyða
  2. Ja dugleg og ekki dugleg, vanalega er ég heldur ekki svona snemma í þessu og myndi örugglega halda aftur af mér ef ég ætti afmælisbörn snemma í des. Julian bara stakk upp á þessu og ég leyfði honum að ráða.
    Ég ætla nú samt að geyma aðalskrautið allavega fram yfir 1. í Aðventu.

    Knús til FL.

    SvaraEyða