Þolinmæðin gengur fínt, mætti vera betri því að netið er að stríða mér þessa dagana og það er pirrandi. Ég er orðin ráðalaus, stundum kemst á netið, stundum ekki, eitthvað rautt ljós á DSL tækinu blikkar og ekkert gengur, stundum er "routerinn" virkur, stundum ekki..........ferlega þreytandi. Kannski eru þeir hjá Telekom að stríða okkur en Seydi neitaði einhverju gylliboði frá þeim um ódýrara net osfrv. um daginn???? Æi ég veit það ekki.
Spáð brjáluðu veðri í dag, sums staðar er nú þegar kominn snjór. Hér kom smá él áðan en á víst að koma alvöru snjór í kvöld og í nótt. Spennt að vita hvort þetta gengur eftir.
Er að fara með strákana til Sultan á eftir. Leyfa strákunum að leika smá saman. En hringir Seydi ekki núna og biður mig að fara til Essen. Oh, hann vissi alveg að ég ætlaði til systur hans og sem betur fer var maðurinn hennar staddur á verkstæðinu og hann ætlar að fara.......vorkenndi mér af því að ég gargaði á Seydi og sagðist helst ekki vilja fara í þessu veðri og ég væri líka að fara út! Hann vissi það alveg. Hringir auðvitað akkúrat meðan að ég næ í Henrik, ég ekki með gemsann! Hann kann EKKI á klukku, hringir svo oft á þessum tíma. Ekkert verið að hringja meðan að ég er örugglega heim, nei nei. Alveg merkilegt. Nei, ég hef ekki þolinmæði í svona bull! Ég fer ekki alltaf með gemsann þegar ég sæki Henrik eða Julian. Það hringir aldrei neinn nema Seydi svo að það er ekki hundrað í hættunni.
Var í heimsókn í leikskólanum í morgun til 10:30 en þá fóru þau á leikrit á elliheimilunu á móti og ég þurfti að ná í Julian. Vá hvað sumir krakkar eru svona, æi hvað heitir það........vilja alltaf gera eitthvað með manni og stjórna öllu og öllum! Svona er fólk misjafnt, jafnvel sem krakkar.
Jæja, vona að þetta vistist........Góða helgi.
ég sé netstjóra ykkar alveg fyrir mér sitjandi á kveikja/slökkva takkanum - með illskubros á vör! hann er ábyggilega að bíða við símann eftir því að þið hringið og játið ykkur sigruð - ykkur vanti víst aðra tengingu við netheiminn, þessa sem hann bauð ykkur um daginn, þessa sem án nokkurs vafa er mikið dýrari heldur en sú sem hann er að leika sér að kveikja og slökkva á núna...
SvaraEyðaalveg er ég sammála,stundum held ég að viðskiptahættir gangi svona fyrir sig...
seydi er bara kall eins og hinir eiginmennirnir, gersamlega úti að aka með tímann - kannast alveg við þetta - minn hringir ævinlega á vitlausum tíma - og þó hefur honum verið gefinn "gluggi tækifæra"...
bestu kveðjur til þín og þinna!
Einmitt Stella, það mætti halda að þetta væri svona hjá símafyrirtækinu..... Reyndar átti þetta "Tarif" að vera mikið ódýrara og alles :/ Núna virðist netið virka og er m.a.s. hraðar en áður. Kannski var verið að gera við????
SvaraEyðaOg aftur einmitt, kallar+tímaskyn=0
Góða ferð
hæ sæta:-)
SvaraEyðavantar e-mailið þitt, þarf aðeins að bögga Seydi.
Viltu senda mér mail á helgajo@ok.is?
kv. Helga