Nú ætti netið að vera komið í lag. Símalínan var víst ekki upp á sitt besta svona miðað við hvað margir eru komnir með DSL net og svona dót. Símaviðgerðarkallinn þurfti ekki einu sinni að koma í hús, til að laga, heldur hringdi bara í morgun, sagðist sjá að lína væri eitthvað "léleg" og kippti þessu í lag. Nú vona ég bara hið besta en get ekki hætt að líta á ljósið sem blikkaði stundum rautt...... er með einhverja paranoju að það fari að blikka aftur.
Strákarnir eru hálf slappir ennþá. Julian fékk lyf við bronkítis, læknirinn sagði að það gæti gert hann órólegan. Henrik fékk bara einn stíl í gær en hann borðaði ekkert. Gat borðað hálft rúnstykki í morgun og virðist vera að hressast. Er allavega farinn að rífa kjaft eins og honum einum er lagið!
Ég sjálf er frekar slök. Er með hálsbólgu, illt í hausnum og slöpp í kroppnum. Nenni samt ekki að fá flensu, nei bara engan veginn. Ætlaði að fara á verkstæðið að skrifa nokkra reikninga í dag en það er betra fyrir okkur þrjú að vera bara heima og slaka á. Skrifa blogg og svona líka ;)
Ég þurfti samt að þrífa stigaganginn áðan, setti í vél og setti upp seríur úti. Uppþvottavélin er líka búin að ganga í dag. Mér þykir alveg MEGA leiðinlegt að taka úr henni........sérstaklega hnífapörin. Je hvað mér þykir það ömurlega leiðinlegt. Næstum því jafn leiðinlegt og að strauja en ég drullaðist til að strauja einn jóladúk í morgun.
Nú er sólin farin að glenna sig eitthvað, annars er frekar "nóvemberlegt" veður eða þungbúið og frekar kalt. Mér sýnist vera jólalegt á Norðurlandinu allavega, snjór og alles.
Ætla að vona að Seydi kaupi eitthvað í matinn, annað hvort eitthvað til að elda eða tilbúið. En nú væri kannski best að gera einhvern hádegismat handa okkur þremur. Best að steikja soðnu kartöflurnar frá því í gær og henda á þeim eggjum, þ.e. ef ég á egg???? Veit það bara ekki, held ekki. Kannski ég setji bara dósasúpu í pott og hiti. Ég finn eitthvað.
Best að lesa yfir þetta blogg, mér finnst ég hálf dauð í hausnum, gæti verið að rugla heldur mikið!
Góða helgi
Dugnaður bara;) Ég ætla einmitt að "elda" pakkasúpu handa Adda í hádeginu:D Er búin að vera að dunda mér við að skrifa á jólakort í morgun og setja í þvottavélar og þurrkara... verð nú að fara að sinna RB, er eitthvað að væla inni í rúmi:D KNÚS:*
SvaraEyðaÞú veist að við mömmur verður aldrei veikar, gefum okkur ekki tíma til þess..... Ég er að koma til, á glimrandi fínar töflur við þessum stíflum.
SvaraEyðaSólin skín annað slagið og strákarnir eru líka að hressast.
Ég er að hugsa um að hafa ísl. fisk í matinn, er annars voða nísk á hann en þar sem ég fer að koma er um að gera að rýmka til í frystinum :)
Knús á ykkur í snjónum