sunnudagur, 16. nóvember 2008

Sunnudagur

Kominn sunnudagur eina ferðina enn og nóvember meira en hálfnaður.

Ég er búin að kaupa ALLAR jólagjafir handa fjölskyldunni heima, bara Seydi, strákarnir og Helga Dóra mín kæra eftir. Ég hlýt að finna eitthvað sniðugt handa henni. Var svona að gæla við það að kaupa eitthvað handa strákunum mínum öllum, á Íslandi. Julian langar ekki í neitt nema Lego plötur með götum á, þ.e. götum til að keyra á. Ég fer nú samt varla að burðast með þannig dót til Íslands til að koma með það hingað aftur. Sjáum til hvað ég geri.

Þessar jólagjafir eru líka komnar í pappír og jólakortin eru komin í hús. Á bara eftir að skrifa á umslögin. Ég held að ég hafi aldrei verið svona snemma í því. Ég hefði m.a.s. tíma til að senda þetta allt saman ef ég væri ekki að koma sjálf um jólin. Nú er bara að vona að það verði ekki brjálað veður þarna 21.des. En það væri svo sem ekkert hægt að gera í því. Vona bara að við komumst til landsins, allt annað er aukaatriði.

Læt þetta duga í dag. Best að koma inn myndum af stjörnusöngvaranum mínum, honum Henrik, á barnaland. Hann var svo mikil dúlla að syngja fyrir framan ráðhúsið í gær. Eftir sönginn fóru bræður með pabba sínum heim á bílnum en ég ákvað að labba heim. Hef gott af því og kíkti í nokkra búðarglugga. Keypti ekki neitt samt. Alveg ókeypis að skoða í glugga :) Sá litla mús bakvið kirkjuna, hún hrökk við að sjá mig en stoppaði svo aðeins og ég fylgdist smá með henni. Svo þaut hún inni í runnann. Bless litla mús.

Góðan sunnudag. Set inn video af Henrik, vill ekki virka á barnalandi. Viðbót: Myndir frá því í gær á síðu bæjarblaðsins.


10 ummæli:

  1. Yndislegt myndband... svo innilegt. gott veganesti á jákvæðri hugsun.
    kveðja í bili
    Hjálmar

    SvaraEyða
  2. dáist af þér, svo dugleg... ég ætlaði líka að vera snemma á ferðinni í ár, en það gengur ekki neitt að koma mér í rétta gírinn - reyni að hella mér í jólinnkaupin í vikunni!

    myndbandið er svo ljúft - undarlegt þó að sjá litla orminn syngja svona á þýskunni, eitthvað sem ekki breytist hjá mér, skil ekkert í því að litlir ormar geti talað öðrum tungum en þeim er ég sjálf skil...

    SvaraEyða
  3. Það er gott að þetta litla söngbrot geti komið við hjörtu ykkar. Þetta var alveg yndisleg stund. Nú er bara að fara æfa íslensku jólalögin :)

    SvaraEyða
  4. Hæ, eins og ég hef alltaf sagt, Henrik er mesta krútt í heimi. Það hefur nú ekki breyst með þessu myndbandi. Liebe, Unns.

    SvaraEyða
  5. Já Unnur, hann var voða krútt þarna. Hreyfingarnar, svipirnir og bara allt. Voða krúttlegt.
    <3

    SvaraEyða
  6. Hæ hæ, eg er semsagt búin að missa af söngnum við ráðhúsið þetta árið það var svo gaman í fyrra. Eg vissi ekki af þessu, hefði líklega ekki komið hvort sem er. Yndislegt að sjá myndbandið og myndirnar í blaðinu, takk fyrir það. Hafðu það gott elskan og knús á kallana. Kveðja mamma

    SvaraEyða
  7. Nei mamma, þú ert ekki búin að missa af jólasöngum, hann er í lok nóv. Þetta var önnur samkoma. Komdu bara :)
    Kveðja

    SvaraEyða
  8. Æji... átti ekki að koma 2svar... sýnir bara að mér finnst þetta ofurkrúttlegt heheh:D

    SvaraEyða