Ég var búin að minnast á það að mér væri illt í tungunni, hún væri bólgin og sár. Í gær ákvað ég að fara til læknis í dag til að láta líta á þetta. Alveg ómögulegt að vera svona, vont að borða, tala og kyngja.
Eftir að hafa "hent" öllum karlmönnunum út, seinnipartinn í gær, sat ég hér í makindum mínum við tölvuna og kíkti hingað og þangað á netinu. Eftir nokkurn tíma fann ég eitthvað hart á tungunni og ákvað að fara með tennurnar það og mér tókst að skafa eitthvað fram og tók það út úr mér. "Þetta" minnti helst á svona lítinn brúnan enda af "hommaspennu", þið vitið, lítið hringlótt. Ég læt "þetta" hverfa og hugsa ekkert meira út í það. Allt í einu fór ég að finna fyrir skrýtnum fiðring í tungunni, eins og hún væri að skreppa saman.
Eftir svona hálftíma koma Seydi heim og þá var tungan orðin minna sár og minnkuð um helling. Ég bað Seydi að kíkja á þetta og rak tunguna út úr mér :Þ
Hann sagðist sjá mun. Ég finn að tungan er orðin virkilega góð og fæ mér því að borða en ég var búin að missa alla lyst.
Í morgun er bara, næstum því, eins og tungan hafi aldrei verið bólgin!!!!!! Hún er ljósrauð og fín, bara eins og alltaf. Finn aðeins fiðring en það virðast bara var eftirköst eftir sárin. Nú er ég búin að velta þessu fyrir mér í allan dag. Hvað gæti þetta hafa verið? Var þetta kannski einhver eitursveppur sem eitraði allt munnholið út frá sér? Svo kom ég með mínar tennur og reif hann upp með rótum? Hlýtur bara að vera. Hefur einhver lent í svona? Þetta er bara eins og lygasaga, nema það að hún er SÖNN. Ég fór því ekkert til læknis í dag. Fer samt strax ef ég finn einhverjar bólgur aftur. Það er á hreinu.
Annars ekkert að frétta. Það er orðið dimmt fyrir kl. sex. Best að leggjast bara undir hýði svona á haustin/veturna. Það varð ekkert bjart í dag, skýin héngu neðarlega í dag. Veður til að vera heima, drekka kakó og lesa bók (lesist: hanga á netinu). En ég þurfti að vinna, ná í Julian og skreppa svo til Essen að ná í varahluti.
Ég er alger innipúki, elska að vera bara heim. Strákarnir eru að verða eins. Þeim finnst samt alveg gaman að vera úti en þeim mun betra að koma svo heim. Home sweet home.
Knús
Hæ, ertu viss um að kreppan sé ekki komin hjá þér líka fyrst þú ert farin að prófa að borða hommaspennur? Haha.
SvaraEyðaHér er fínt að frétta, nánast snjólaust, við höfum vinnu og ég er byrjuð á léttlopavestinu, það verður vonandi klárt um jólin.
Annars er gott að tungan er orðin nothæf.
Bestu kveðjur, Unnur Mjöll.
Hæ hæ, gott að tungan lagaðist og vonandi kemur þetta ekki aftur(passaðu matarræðið) láttu samt líta á tunguna ef hún lagast ekki. Eg hef ekki heyrt um svona áður. Þú hefur ekki langt að sækja innipúkann eða heimapúkann. Kveðja og knús, þín mamma.
SvaraEyðaUnnur, þessi var viðbjóðslega fyndinn! Ég hló upphátt :D
SvaraEyðaSjáumst á Eyrinni.
Ég skal passa matarræðið mamma. Veit samt ekki alveg hverju ég ætti að sleppa,hlýt að finna það. Sleppi allavega sítrusávöxtum þessa dagana. Get bara ekki borðað þá.
Það er fínt að vera innipúki :)
Knús
ég gæti þess vegna orðið að moldvörpu, svo mikill innipúki er ég! kann vel við mig í skammdeginu - alltaf svo öfugsnúin!
SvaraEyðaen þetta með tunguna er ekkert grín, þú bara verður að láta líta strax á hana ef þetta fer að láta verða vart við sig aftur...
bestu kveðjur
laufey, takk fyrir innlitið á mína síðu um daginn - alltaf svo ljúft að fá kveðjur)
Já Stella, ég fer beint til læknis ef ég fæ þetta aftur, klárt mál.
SvaraEyðaEr að moldvarpast núna. Var með Julian hjá tannsa, hann fór til að láta innsigla einn jaxl og í burstunarkennslu. Kom svo í ljós smá pínku hola og var gert við hana strax. Núna er komin þoka og ekta moldvörpuveður :)
Spennukveðjur til USA
Ekki samt hommaspennu.........
SvaraEyðahvað er hommaspenna? gleymdi að spyrja áðan...
SvaraEyðaHæ:)
SvaraEyðaBara að commenta, veit svosum lítið um svona tungufaralda...
Annars er alveg skítaveður hér, ROK OG RIGNING. Fínt að vera inni og kveikja á kertum og hafa kósý:)
En Stella, hommaspenna er ömmuspenna...ekki spyrja af hverju hommaspenna, held samt það hafi verið þannig að karlmaður setti slíka spennu í hárið og var talinn hommalegur með hana! svona verða nú orðin til...úr engu:)
Bestu kveðjur,
Rakel Dögg
Já Stella, ég hef þetta einmitt frá Rakel.
SvaraEyðaObama IS president. Þitt "ekki" atkvæði skipti ekki máli ;)
Vona að veðrið batni á næstu dögum. Frændi Seydi er að fljúga þangað í 1.skipti á morgun. Hann hringdi í mig áðan, spyrja svona hvort hann þyrfti kuldaskó, regnjakka osfrv. Hvar hann gæti farið út að skemmta sér (sem að ég vissi auðvitað ekki) og hvað hann ætti að kaupa. Bauðst líka til að taka eitthvað með fyrir mig en þar sem við erum að koma sagði ég að þess þyrfti örugglega ekki.
Hann er að fara hitta fólk frá Tékkkristal, selur þeim vörur.
Kveðja úr skýjuðu veðri og 12°.