Smá myndablogg frá mér í dag. Hér er allt hvítt.......já, þið lásuð rétt HVÍTT. Ég myndi segja um 15 cm jafnfallinn snjór. Og það snjóar enn. Passar vel að jólamarkaðurinn opnar í dag :) Við Bärbel ætlum að labba með strákana í bókasafnið í dag og kannski búa til snjókalla á leiðinni. Vá hvað það er jólalegt að líta útum gluggann. Íbúðin er svo mikið bjartari en vanalega. Öll tré eru hvít því að snjórinn er það blautur að hann límist á allar greinarnar. Jæja, ég lofaði myndum:

Ég fór í gönguferð á miðvikudaginn og þá leit allt svona út. Stuttu seinna rigndi.

Í fyrradag leit himininn í Dorsten frekar dökkur út


Í dag leit veröldin hér svona út. "Winter wonderland"
Snjókveðja
ekki amalaegt að fá snjó svona þegar styttist í aðventu...hér einmitt rignir...og því var bara gervisnjó dreift yfir skreytingar á þessum bæ til að lífga uppá;)
SvaraEyðaGóða nótt:*
Rakel
Rétt Rakel, sérstaklega þegar jólamarkaðurinn opnaði í gær. Það er kalt í dag svo það er enn allt hvítt en spáð hlýnandi næstu daga svo þetta verður fljótt að fara :(
SvaraEyðaKnús