miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Tilkynning

Eitthvað virðist vera að hjá barnalandi. Síðurnar með nöfnunum virka ekki, hjá mér allavega. Er búin að setja inn nýja linka hérna á síðunni með "gömlu" númerum strákanna. Ætti að virka.

Hvað segir fólk annars á fyrsta degi nýrra tíma í USA? Vonandi allavega og mjög sennilega. Ég var ánægð þegar ég vaknaði klukkan rúmlega 6:30 í morgun og kveikti á sjónvarpinu og sá hver hefði unnið. Hérna var víst kosningavaka alla nóttina. Kannski á Íslandi líka. Vá hvað fólk var glatt og ánægt í USA, grét og gargaði af gleði. Nema kannski Repúblikanar.Gott mál.

Þar sem við höfðum bara 1 bíl í morgun og ég þurfti að mæta á foreldraráðsfund kl.8:30 skelltum við Henrik okkur á hjóli í leikskólann. Litli kraftakallinn minn þurfti samt að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni enda er "brekkan" hérna upp eftir ansi lúmsk. Löng en ekkert brött. Þeim mun skemmtilegra og auðveldara að renna sér heim. Rosalega var það gott að hreyfa sig aðeins. Ég hef líka ákveðið að fara út að labba eða hjóla á miðvikudögum, jafnvel á föstudögum líka. Sjáum til hvað ég er dugleg.

OH, þetta átti ekkert að verða neitt langt blogg. Ætlaði bara að segja ykkur frá barnalandi. Ó jæja, er búin að skrifa og ætla ekki að fara að eyða því.

Knús

5 ummæli:

  1. Hæ hæ. Eg hafði nú takmarkaðan áhuga á þessum kosningum en pabbi þinn er búin að skoða baráttuna undan farnar vikur og oft opnir 4-8 gluggar hér í tölvunni þegar eg hef komið að og hann filgdist með í sjónvarpinu í alla nótt. Eg vona að Obama verði góður forseti og þeir sem talað hefur verið við í fjölmiðlum hér eru ánægðir. Það er gott að labba í vinnuna og bara hressandi fyrir ykkur að hjóla en brekkan er lúmsk það er satt svona svipuð og Þverholtið. Vertu dugleg að labba, gangi þér vel. Kveðja og knús. Þín mamma P.S. Barnaland virkar.

    SvaraEyða
  2. já ég kíkti inn á barnalandi (án þess að kvitta), og engar snuðrur á leiðinni inn - bara allt eins og það á að vera!

    nú er bara að bíða og sjá með forsetann okkar nýja (sem er líka minn fylkismaður sko...) - vona svo sannarlega að hann standi sig! einhvernveginn hef ég það á tilfinningunni að hann sé fínn gaur og eigi eftir að gera góða hluti...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  3. Gott að þið lentuð ekki á vandræðum með barnaland. Lénið "henriklevent.barnaland.is" og Julians virðast ekki virka lengur. Ég breytti því í gamla horfið.

    Mér varð svo hugsað til þín Stella í þessum kosningum. Sá að Obama kaus í Chicago, hélt líka sigurræðuna þar. Hér var sýnt frá undirbúningnum líka. Ef ég sé Chicago í TV hugsa ég til þín, alveg sama hvað það er. CSI:NY þáttur í vikunni var m.a. tekinn upp þar. Þú hefur ekkert rekist á Hollywood stjörnur þegar þú ferð "í bæinn"?

    Kveðja

    SvaraEyða
  4. Sæl já flott hjá Obama..líst vel á kappann.Það væri gaman að hittast eitthvað um jólin ef það væri möguleiki. En kannski verður nóg að gera í kaffi og jólaboðum en við sjáum til. En ef Unni seinkar að ná í ykkur gæti ég boðið ykkur í kvöldkaffi hehe:)

    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða
  5. Takk fyrir gott boð Heiðrún. Hef það bakvið eyrað :)

    SvaraEyða