Er virkilega kominn 10.nóvember?????? Það er bara rétt rúmlega mánuður í jólin! Oh, hvað ég hlakka til að koma heim um jólin. Strákarnir líka, báðir búnir að tala um ferðina í skóla/leikskóla. Jólagjafir komnar vel á veg, jólakortin tilbúin nema þessi sem fara til "útlanda" þ.e. ekki á íslensku. Verð að græja þau fljótlega.
Unnur búin að fá afmælisgjöfina sína, m.a.s. búin að opna hana......alveg óvart sagði hún :D
1. foreldraviðtalið í skólanum í dag. Ég fékk Bärbel til að líta eftir strákunum, ekki málið. Ég er svo stolt af Julian. Hann er svo duglegur, hjálpsamur, vinalegur við hina krakkana, fljótur að læra og góður. Á smá erfitt með að sitja kyrr og lætur stundum aðra hafa neikvæð áhrif á sig en ekkert til að hafa áhyggjur af. Je hvað ég man hvað pabbi var alltaf stoltur af mér þegar hann kom úr foreldraviðtali :) Gleymi því ALDREI. Núna líður mér eins og honum. Eins og mér leið nú hinsegin í síðustu viku! Svona er lífið :)
Skellti mér með strákana í sund í gær. Vá hvað það var gaman. Sultan mágkona var líka með Said-Doane og frændur skemmtu sér konunglega, já og okkur Sultan. Við hló(g)um svo af þeim þegar þeir voru að gera stökkkúnstir sínar :D Henrik er svo mikill api. Alveg eins og einhver lítill kraftakall þegar hann hoppaði þarna á bakkanum og stökk svo ofan í. Hrikalega fyndinn. Ég ætla að vera dugleg að fara með þá í sund, líka í jólafríinu.
Loksins komið veður eftir margra daga logn, ský og 12° hita. Loksins kominn vindur og rigning. Mér leiðist svona lognmolla, þ.e. ekkert veður. Hlýtur að vera í blóðinu. Það var hríð í dag, laufblaðahríð sko. Allt fallega gult en í svona hvössu fljúga laufblöðin af trjánum og útum allt. Gangstéttar og götur gular af laufblöðum. Oh, ég elska haustið sem senn tekur enda.
Knús
Til hamingju með strákinn, eg vissi alltaf að hann mundi standa sig vel í skólanum. Kveðja og knús, þín mamma
SvaraEyðaJá elsku mamma, ég vissi það alveg innst inni. Ég veit alveg líka að þú varst stolt af okkur þó þú sýndir það ekki eins og pabbi :) Fólk er bara misjafnt.
SvaraEyðaKnús
Sæl, til hamingju með Julian.
SvaraEyðaEn.. ef maður á ekki að opna pakkann fyrr en á afmælinu, þá væri kannski bara ráð að hafa PAPPÍR utan um það sem maður ætlar að gefa..
Takk fyrir gjafirnar samt. Unns.
Bíddu nú við, gleymdi ég að pakka gjöfinni inn? Setti ég bara bóluplast á þetta? Je hvað ég er rugluð. Verði þér að góðu :D
SvaraEyða