miðvikudagur, 24. desember 2008

Aðfangadagur

Runninn er upp aðfangadagur jóla, strákarnir horfa á teiknimyndir, mamma er að fara að sjóða möndlugrautinn, sumir sofa og aðrir eru í vinnunni. Allt yndislegt nema........snjórinn er FARINN!! Það er 8° hiti, úti eru nokkrir svellbunkar eftir og flughált. Ég er hætt að koma hingað um jólin! Það er ekki spáð úrkomu marga næstu daga. Ég ætlaði svo að fara að renna mér og jafnvel á skíði. Auðvitað er yndislegt að vera hérna í faðmi fjölskyldunnar EN mig langar svooo í snjó (hef ég minnst á það áður??) Úti er líka allt svo grátt og ljótt, það er líka hvasst í þokkabót. Ég vaknaði um miðja nótt við hávaðann í vindinum. Hvað það er hægt að láta veðrið fara í taugarnar á manni.

Ætli ég kíki ekki aðeins í bæinn á eftir. Búðir opnar milli 10 og 12. Verst að veðrið býðir ekki upp á það að njóta þess að labba í bæinn....oh, veðrið enn eina ferðina.

Mánudagurinn fór næstum því allur í verkefni sem við systkinin erum að gera. Algert leyndamál svo ég segi ekkert meir. Mamma var með skötuveislu handa tveim systkinum sínum og húsið var því angandi allan daginn, jakkinn minn og buxurnar líka, oj oj oj. Ég át pylsur.
Gærdagurinn fór í búðarráp, át, meira búðarráp, innpökkun á gjöfum ofl. Um kvöldið horfðum við svo á Borat, jólaleg mynd eða þannig.

Gleymdi alveg að segja að ferðalagið gekk mjög vel. Við fórum reyndar ekki af stað kl. 8 til Frankfurt eins og ég vildi heldur þurfti elsku Seydi endilega að skrifa nokkra reikninga þarna um morguninn. Við lögðum af stað kl. 9:15!!! Ég kominn með í magann en ferðalagið til FRA gekk svo vel að við vorum ekki 2 tíma þangað, þrátt fyrir þoku í Sauerland. Það var engin röð í inntékkun, Seydi fór svo og lagði bílnum og svo þegar hann kom fórum við í tollskoðun. Ég varð að láta þukla á mér, fara úr skónum m.a.s. Seydi og strákarnir voru komnir í gegn og ég heyri að Seydi segir "konan mín hefur sett þetta í töskuna".......ég skildi ekkert EN þegar ég kom til strákanna kom í ljós að Seydi var með HNÍF í bakpokanum sínum!!!!!!!!!! Ég hafði sett hann með til að skera niður pylsu á leiðinni. Gleymdi alveg að minnast á það við Seydi greyið og hann, svona krimmalegur, fór með hníf í tollskoðun! Ég sagði ykkur að ég myndi gleyma heilanum. Sem betur fer var tollskoðarinn rosa almennilegur ungur maður sem brosti bara þegar ég sagðist þá bara bíta í pylsuna :) Heppin við. Eftir þetta gekk allt eins og í sögu, flugið var reyndar í lengra lagi, alveg 3 og hálfur tími en strákarnir voru eins og ljós. Einar kom og náði í okkur á völlinn og við fengum gott í gogginn hjá honum og Helgu. Hún bjó til kakó handa okkur og bauð upp á fínasta bakkelsi. Einar skutlaði okkur svo í borgina og við flugum á Eyrina þar sem Unnur tók á móti okkur í fallegu vetrarveðri og snjó.........sem er farinn :(

Óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og takk fyrir góðar bloggstundir. Læt heyra í mér fljótlega.

Jólakveðja

föstudagur, 19. desember 2008

Jólin, jólin, jólin koma brátt

Já er það ekki bara? Jólin er aaaaalveg að koma, við líka. Innrás eftir 2 daga. Eins gott að það geri engin djúp lægð innrás! Ég kíki á veðurspána á hverjum degi, ef ekki oft á dag. Lítur bara ágætlega út. Lítur jafnvel út fyrir snjó í Keflavík!!! Það er nú ekkert alltaf þegar ég kem á Frón. Spurning hvort það sé nægur snjór til að upplifa þessa hitabylgju sem á að koma á Þorláksmessu?? Það eru aldeilis sveiflur í gangi.

Ég er búin að pakka næstum því öllu fyrir strákana og mig. Er búin að pakka smá fyrir Seydi en hann verður nú samt að ákveða hvaða skyrtur hann tekur með. Mér tókst að eyða pening í vikunni, fór bæði í H&M og Decathlon (íþróttabúð). Keypti mér aðrar náttbuxur, jólapeysur á gaurana, langermabol á mig, húfu á mig, kuldaskó á Julian, flísvesti á mig og....hmmm gleymi ég einhverju? Ég á eftir að gleyma passanum mínum, ég get svarið það! Eða bara heilanum.

Meira vesenið í dag. Ég ætlaði að opna bankareikning í Postbank (sem er því miður á pósthúsinu og því laaaaangar raðir). Nú ég fer þarna en þá þurfa þeir vottorð um að ég búi á Halterner Str. Ég vissi að ég ætti þannig heima svo ég fór aftur áður en ég náði í Henrik. En nei, þetta vottorð mátti ekki vera eldra en 6 mánaða! Andskotinn hafi það, ég er með bankareikning annars staðar, ég fæ póst frá ýmsum stofnunum osfrv. osfrv. Er ekki hægt að sjá það að ég búi þarna???? Og það sem meira er, kallinn sem ég talaði við fyrst minntist ekkert á að vottorðið yrði að vera nýtt og auðvitað lokar skráningarskrifstofan SNEMMA á föstudögum. Gleymum þessu bara........

Bärbel vinkona ætlar að líta við í kaffi á eftir. Ég fjárfesti í jarðarberjarúllu handa okkur. Á svo líka slatta af smákökum. Við ætluðum eiginlega á innileikvöllinn en þar sem Florian var veikur alla vikuna er hann enn hálf slappur. Frestum því fram í janúar. Gott að vera bara í rólegheitum heima. Nenni eiginlega ekki í afmæli til Demien á morgun en ætli maður skreppi ekki í smá stund allavega. Seydi mun örugglega ekki hafa tíma til að heimsækja bróðurson sinn. Best að láta Seydi ákveða hvaða skyrtur hann vill fara með, já og peysur og ég hendi því í tösku. Verst að kallinn á enga kuldaskó! Ætli einhver geti lánað honum þannig grip? Hann notar nr. 43. Ekki hægt að vera á "blænkskóm" öll jólin.

Ég gæti haldið endalaust áfram en læt þetta duga í dag. Skrifa kannski eitthvað í ath.semdirnar á morgun. Fylgist með :)

Sjáumst svo bara. Evran komin aftur í 170! Frábært fyrir mig. Mér leist ekkert á það þegar hún "datt" í rúmlega 140 í síðustu viku.

Knús

mánudagur, 15. desember 2008

Skafað í ís

Kominn tími til að blogga, ég held það bara.

Það var kalt í morgun, það kalt að ég hefði þurft að skafa af bílnum. Ég sá það þegar ég fór með Julian í skólann. Ákvað því að fara aðeins fyrr niður, nú ef ekki væri fyrir Seydi þessa elsku. Hann hringdi í mig þegar ég var komin í skóna (hann fór fyrr úr húsi) og sagði mér að það væri hált (ég var búin að segja honum það) og að hann væri búinn að skafa rúðurnar fyrir mig :) Gott mál hugsaði ég. Þegar ég kem niður er búið að skafa allar rúður........nema eina! Á henni stendur "Ich liebe dich Inga" með hjarta utan um!!! Ég viðurkenni nú að mér varð hlýtt um hjartað. Seydi er nú ekki vanur að vera rómantískur en að láta sér detta þetta í hug. Ekki halda að við höfum verið að rífast eitthvað og hann hafi þurft að afsaka sig eða eitthvað þannig, nei nei. Kom skemmtilega á óvart. Því miður þurfti ég að skafa þetta af........var hliðarrúðan bílstjóramegin. Annars hefði ég ekki séð neitt út og með opna rúðu í 1° hita (kulda) vildi ég ekki keyra.

Nú eru bara 6 dagar í Íslandsferðina. Ég er búin að koma jólakortum í póst (nema einu) og jólagjafir safna ryki uppi á skáp. Spurning um að fara að koma þeim í tösku......æi nei, þá er taskan bara fyrir mér og ég veit alveg að ég er enga stund að pakka niður. Samt þarf ég alltaf að velta því fyrir mér hvað ég taki nú með, hmmmmmmm, tek ég þennan bol með, tek ég þessa peysu með, þessar buxur osfrv. osfrv. Ég tek allavega skíðabuxur og úlpu með, passann minn, VISA kortið, myndavélina og E-miðana í flugin. Er að hugsa um að skella mér í bæinn á miðvikudagsmorguninn og kíkja smáááááá í H&M, kannski sé ég eitthvað sem mig nauðsynlega vantar........Ætla líka að kíkja á jólapeysur á strákana.

Sultan mágkona kom með krakkana í heimsókn í dag. Herbergi strákanna er því eins og eftir loftárás........Playmobil hér, Lego þar, bangsar allsstaðar! Það reddast. Ætla að fara að hita tortellini og gera jógúrtsósu með. Fljótlegur og góður matur.

Segi því bæ í bili. Skrifa allavega einu sinni áður en við komum.

miðvikudagur, 10. desember 2008

Jólasögur

Undanfarna daga hef ég sogið í mig sögurnar um jól í öðrum löndum á 640.is. Gaman að sjá hvað aðrir hafa upplifað. Gaman að bera það saman við jólin sem ég hef upplifað erlendis. Reyndar hefur enginn skrifað um jól í Noregi ennþá en nokkrir frá USA og Huld Hafliða hér frá Þýskalandi.

Ég er svo sammála henni um að fólk eigi að njóta aðventunnar betur. Hérna er aðventan mjög mikilvæg og aðventurkransar ómissandi. Reyndar er ekki skreytt eins mikið í gluggum og á Íslandi eða í USA en það hefur samt aukist mikið síðan að ég kom hingað fyrir 14 árum. Samt finnst mér eitthvað minna um jólaljós í ár, kannski að kreppan segi til sín? Þýsku jólamarkaðarnir eru heimsfrægir en einnig eru fallegir jólamarkaðir í öðrum löndum eins og t.d. í Austurríki, Slóveníu eða Belgíu.

Ég ætlaði að vera dugleg og fara á einhver jólamarkað, í stórri borg hér í kring, fyrir jólin en þar sem veikindin komu upp veit ég ekki hvort ég næ því. Ætlaði líka í einhverja stóra verslunamiðstöð til að skoða jólaskreytingar með strákunum en hef ekki komið því í verk ennþá.

Ekki geri ég það í dag því að Henrik fer í talkennslu í dag. Hann þarf allavega 10 tíma í viðbót. Sjáum svo til hvernig gengur eftir þá.

Heilsan er ágæt. Mér var samt hrikalega kalt í gær en það er svo rakt loftið hérna svo að kuldinn smýgur inn í merg og bein, brrrrrrrrrrr. Var líka voða þreytt í augunum og Julian leið svipað! Kannski eitthvað í loftinu úti?! Í dag er allavega kaldara en á Íslandi. En ég er allavega ekki með stíflaðar nefholur lengur og maginn er búinn að tæma sig og ná sér. Gat m.a.s. borðað smá súkkulaði í gær ;)

Fórum til tengdó í gærkvöld en á mánudaginn byrjaði 4ra daga fórnarhátíð múslíma og þá er siður að heimsækja ættingja og vini. Við sögðum við strákana að þetta væru jól dede og babaanne (tyrkn. afa og ömmu). Strákarnir fengu 10 € hvor frá afa sínum. Ég sagði Julian að fara með þennan seðil til Íslands og þá fengi hann meira en þúsund krónur fyrir hann :) Gæti farið oft í Kaskó og keypt bland í poka. Tengdamamma er slök, voða þreytt og sljó. Hefur meiri áhyggjur af okkar heilsufari heldur en eigin. Seydi verður bara að fara eyða meira tíma með henni, hann sagði það líka í morgun. Vona að hann standi við það en er ansi hrædd um að lítið verði úr því. Nóg að gera á verkstæðinu og vinnumaðurinn hálfgerður ónytjungur, því miður. Ljótt að segja það en það er staðreynd. Sennilega hættir hann í janúar og þá verðum við að finna einhvern nýjan. Ekki auðvelt að finna almennilega vinnukrafta þrátt fyrir atvinnuleysi. Fyrir marga er vooooooðalega þægilegt að vera bara heima, fá leiguna borgaða frá ríkinu, "vasapening" fyrir mat og öðrum nauðsynjum og jafnvel vinna svart! Það gera reyndar ekkert allir og MARGIR þurfa virkilega á hjálp að halda en ég þekki nógu mörg önnur dæmi........... Það eru alltaf tvær hliðar á félagslega kerfinu.

Ég verð að fara að koma jólakortunum í póst. Julian er ekkert spenntur fyrir því að labba í bæinn en við hefðum tíma þangað til Henrik kemur úr leikskólanum. Sé til hvort ég get "platað" hann með mér.

Knús og kveðjur

sunnudagur, 7. desember 2008

Ætla að reyna að koma nokkrum orðum niður en ég er rísa úr rekkju eftir ansi mikil veikindi, á minn mælikvarða allavega. Töflurnar mínar góðu, við nefholustíflum, virkuðu ekki nógu vel svo að ég fór til læknis á föstudaginn enda alveg að drepast í hausnum á fimmtudaginn. Sérstaklega vont þegar sársaukinn leiðir niður í tennur :/ Svo ældi ég líka á fimmtudagskvöldið, bara si svona. Læknirinn var ekki lengi að sjá að það var sýking í nefholum og lét mig hafa fúggalyf, nefdropa og slímlosandi lyf. Ég lá alveg fyrir á föstudaginn, gat engu sinnt og fengu strákarnir að leika lausum hala hérna heima.........Julian reyndar ryksugaði fyrir mig hér rétt í stofunni. Ég lá ýmist hér á sófanum eða inni í rúmi, alveg að drepast og hélt engu niðri. Tókst samt að taka þessi lyf þrátt fyrir að eiga að taka þetta slímlosandi eftir máltíð.......engin var máltíðin en ég tók það samt. Síðasti skammturinn kom þó upp aftur! Um kvöldið gat ég drukkið áður en ég fór að sofa svo það leit ekkert illa út um að mér væri að batna. Var svona ágæt í gær, gat borðað en lá mest fyrir og verður illt ef ég hugsa um að borða t.d. nammi eða drekka bjór. Get heldur ekki hugsað mér að borða kjöt eins og er. Það lagast vonandi fyrir jól. Er ágæt í dag, get samt ekki borðað neitt almennilega og er með verk í maganum. Líður samt loksins eins og manneskju en ekki einhverju hrúgaldi sem vafrar hér um eins og bogin norn. Alger horror. Seydi fór með strákana út að borða í gær svo ég gat slakað á, það var gott. Gleymdi ég að segja að ég er enn með hausverk.........en eins og ég segi, þetta er allt að koma og ég ætlaði sko ekki að hafa þetta svona langt!

Gleðilegan 2. í aðventu (er það kannski skrifað með stóru A´i?)
Afsakið ef það eru villur, ég er ekki alveg með öllu mjalla ennþá.............
Knús

Og já, eitt í viðbót. Eitt gott við svona veikindi.........ég hef lést um 1,5 kg! Þau koma reyndar strax aftur þegar ég fer að borða venjulega. Samt gaman að sjá aðra tölu fyrir framan á vigtinni ;)

þriðjudagur, 2. desember 2008

Neglur, veikindi og annað.....

Oh, ég sem var búin að safna svona líka fínum nöglum til að vera pæja á jólunum. Núna er þær flestar brotnar :( Það er svona þegar maður nagaði neglurnar árum saman, það er ekki farið nógu varlega við hitt og þetta. Ég er alltaf rekandi neglurnar í allt sem fyrir er, veggi, borð, strákana, bara allt. Núna á ég 3 hálfar neglur eftir, 4 mini neglur og 2 alveg niðrí kviku. Nei, ég verð engin pæja á jólunum.

Við erum ekki alveg búin að ná okkur úr veikindum mæðgin. Ég enn hálf sljó í hausnum, Julian með smá hósta og Henrik kominn með hósta. Í fyrrinótt var Henrik "góður" og ég vaknaði í djúpum skít daginn eftir! Ég kem fram á bað og þar liggur náttgallinn hans útskitinn, baðteppið með skítarendur og eitt handklæði líka......
JE MINN EINI,"hvað kom fyrir????", hugsa ég. Ég fer inn í herbergi þar sem bræður sváfu saman á gólfinu. Þar liggur litla dýrið, nakið og steinsofandi. Smá kúkaslettur hér og þar á sængum og púðum. En ekkert á dýrinu sjálfu??? Hann hefur þvegið sér svona vel þarna um nóttina en var ekkert að vekja mömmu sína, nei nei. Svo sjálfstæður þessi drengur....... Það fór sem sagt allur gærdagurinn í það að þrífa, þvo, lofta út, spreyja góðri lykt osfrv. Henrik fór því ekkert í leikskólann. Julian var það hress að hann fór í skólann, mátti bara ekki fara í íþróttir. Verst að nefið má mér virkar ekki alveg þessa dagana, það getur vel verið að það sé enn skítafýla í íbúðinni?! Þetta var lífsreynsla sem mig langar ekkert til að endurtaka.......

Fór með Henrik í vinnuna í dag. Keyrði til Dorsten í einhverri þoku, svo sljó eitthvað. Þreif aðeins, setti upp jólaskraut, þvoði vél og skráði svo einn bíl þegar ég var búin að ná í Julian. Klukkan þrjú fer ég svo með strákana til læknis. Átti að mæta með Julian til að láta hlusta hann aftur og ætla líka að láta líta á hóstann í Henrik. Ætla svo að koma við hjá kjúklingasölumanninum, sem stendur hérna í götunni á þriðjudögum, og kaupa mér grillaðan kjúlla. Fínt að þurfa ekki að elda.

Í dag birti bara ekki almennilega. Voða dimmt yfir og annað slagið alveg svört ský með rigningu. Hitinn er um 5° og á að vera svipað næstu daga. Drungalegt og niðurdrepandi veður. Ég læsi mig bara inni með jólaljósin og hef það notalegt. Gæti nú haldið áfram að lesa bók eftir Yrsu Sig. Bärbel gaf mér hana, hún er sem sagt á þýsku. Byrjar allavega vel. Minnir að hún heiti "Þriðja táknið" á ísl.

Eftir 3 vikur verð ég komin í faðm fjölskyldunnar og kominn Þorláksmessa. Verð að muna að skrifa á umslögin fyrir jólakortin sem eiga að fara í póst......kominn tími á það held ég.

Jæja, best að fara að skeina og labba svo til dokksa.
Knús