Runninn er upp aðfangadagur jóla, strákarnir horfa á teiknimyndir, mamma er að fara að sjóða möndlugrautinn, sumir sofa og aðrir eru í vinnunni. Allt yndislegt nema........snjórinn er FARINN!! Það er 8° hiti, úti eru nokkrir svellbunkar eftir og flughált. Ég er hætt að koma hingað um jólin! Það er ekki spáð úrkomu marga næstu daga. Ég ætlaði svo að fara að renna mér og jafnvel á skíði. Auðvitað er yndislegt að vera hérna í faðmi fjölskyldunnar EN mig langar svooo í snjó (hef ég minnst á það áður??) Úti er líka allt svo grátt og ljótt, það er líka hvasst í þokkabót. Ég vaknaði um miðja nótt við hávaðann í vindinum. Hvað það er hægt að láta veðrið fara í taugarnar á manni.
Ætli ég kíki ekki aðeins í bæinn á eftir. Búðir opnar milli 10 og 12. Verst að veðrið býðir ekki upp á það að njóta þess að labba í bæinn....oh, veðrið enn eina ferðina.
Mánudagurinn fór næstum því allur í verkefni sem við systkinin erum að gera. Algert leyndamál svo ég segi ekkert meir. Mamma var með skötuveislu handa tveim systkinum sínum og húsið var því angandi allan daginn, jakkinn minn og buxurnar líka, oj oj oj. Ég át pylsur.
Gærdagurinn fór í búðarráp, át, meira búðarráp, innpökkun á gjöfum ofl. Um kvöldið horfðum við svo á Borat, jólaleg mynd eða þannig.
Gleymdi alveg að segja að ferðalagið gekk mjög vel. Við fórum reyndar ekki af stað kl. 8 til Frankfurt eins og ég vildi heldur þurfti elsku Seydi endilega að skrifa nokkra reikninga þarna um morguninn. Við lögðum af stað kl. 9:15!!! Ég kominn með í magann en ferðalagið til FRA gekk svo vel að við vorum ekki 2 tíma þangað, þrátt fyrir þoku í Sauerland. Það var engin röð í inntékkun, Seydi fór svo og lagði bílnum og svo þegar hann kom fórum við í tollskoðun. Ég varð að láta þukla á mér, fara úr skónum m.a.s. Seydi og strákarnir voru komnir í gegn og ég heyri að Seydi segir "konan mín hefur sett þetta í töskuna".......ég skildi ekkert EN þegar ég kom til strákanna kom í ljós að Seydi var með HNÍF í bakpokanum sínum!!!!!!!!!! Ég hafði sett hann með til að skera niður pylsu á leiðinni. Gleymdi alveg að minnast á það við Seydi greyið og hann, svona krimmalegur, fór með hníf í tollskoðun! Ég sagði ykkur að ég myndi gleyma heilanum. Sem betur fer var tollskoðarinn rosa almennilegur ungur maður sem brosti bara þegar ég sagðist þá bara bíta í pylsuna :) Heppin við. Eftir þetta gekk allt eins og í sögu, flugið var reyndar í lengra lagi, alveg 3 og hálfur tími en strákarnir voru eins og ljós. Einar kom og náði í okkur á völlinn og við fengum gott í gogginn hjá honum og Helgu. Hún bjó til kakó handa okkur og bauð upp á fínasta bakkelsi. Einar skutlaði okkur svo í borgina og við flugum á Eyrina þar sem Unnur tók á móti okkur í fallegu vetrarveðri og snjó.........sem er farinn :(
Óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og takk fyrir góðar bloggstundir. Læt heyra í mér fljótlega.
Jólakveðja
það er þá heldur betur húsavíkurlegra hjá mér en ykkur! hér er allt á kafi í snjó, já bara alveg hellingur! verst að það eru hér engar hólar né hæðir til að skemmta sér almennilega í snjónum! og það sem meira er, er að það er ekki lengur svo kalt að það er í alvörunni hægt að búa til snjóbolta, snjórinn rakur og fínn (ekki það að ég held að mín börn kunni ekki að gera snjóbolta - hafa aldrei hitt snjóinn blautann áður).
SvaraEyðasendi þér vinkona, sem og allri þinni fjölskyldu, mínar bestu jólaóskir - njótið samverunnar!
Elsku Inga mín.
SvaraEyðaNjóttu lífins á Húsavík, þrátt fyrir snjóleysið.
Jólakveðja til fjölskyldunnar.
Knús og kossar
Guðlaug Sv og co
Já Stella, hér er nánast auð jörð en þvílík glitský dag eftir dag. Alveg rosalega fallegt.
SvaraEyðaErum að fara til Toddu systur mömmu seinni partinn í dag. Afi fer með gaurana og Seydi í fjöruferð á eftir.
Jólakveðja til ykkar.
Takk Guðlaug og gleðileg jól til ykkar líka. Nýt bara glitskýjanna í staðin fyrir snjóinn :)
Jólakveðja