Undanfarna daga hef ég sogið í mig sögurnar um jól í öðrum löndum á 640.is. Gaman að sjá hvað aðrir hafa upplifað. Gaman að bera það saman við jólin sem ég hef upplifað erlendis. Reyndar hefur enginn skrifað um jól í Noregi ennþá en nokkrir frá USA og Huld Hafliða hér frá Þýskalandi.
Ég er svo sammála henni um að fólk eigi að njóta aðventunnar betur. Hérna er aðventan mjög mikilvæg og aðventurkransar ómissandi. Reyndar er ekki skreytt eins mikið í gluggum og á Íslandi eða í USA en það hefur samt aukist mikið síðan að ég kom hingað fyrir 14 árum. Samt finnst mér eitthvað minna um jólaljós í ár, kannski að kreppan segi til sín? Þýsku jólamarkaðarnir eru heimsfrægir en einnig eru fallegir jólamarkaðir í öðrum löndum eins og t.d. í Austurríki, Slóveníu eða Belgíu.
Ég ætlaði að vera dugleg og fara á einhver jólamarkað, í stórri borg hér í kring, fyrir jólin en þar sem veikindin komu upp veit ég ekki hvort ég næ því. Ætlaði líka í einhverja stóra verslunamiðstöð til að skoða jólaskreytingar með strákunum en hef ekki komið því í verk ennþá.
Ekki geri ég það í dag því að Henrik fer í talkennslu í dag. Hann þarf allavega 10 tíma í viðbót. Sjáum svo til hvernig gengur eftir þá.
Heilsan er ágæt. Mér var samt hrikalega kalt í gær en það er svo rakt loftið hérna svo að kuldinn smýgur inn í merg og bein, brrrrrrrrrrr. Var líka voða þreytt í augunum og Julian leið svipað! Kannski eitthvað í loftinu úti?! Í dag er allavega kaldara en á Íslandi. En ég er allavega ekki með stíflaðar nefholur lengur og maginn er búinn að tæma sig og ná sér. Gat m.a.s. borðað smá súkkulaði í gær ;)
Fórum til tengdó í gærkvöld en á mánudaginn byrjaði 4ra daga fórnarhátíð múslíma og þá er siður að heimsækja ættingja og vini. Við sögðum við strákana að þetta væru jól dede og babaanne (tyrkn. afa og ömmu). Strákarnir fengu 10 € hvor frá afa sínum. Ég sagði Julian að fara með þennan seðil til Íslands og þá fengi hann meira en þúsund krónur fyrir hann :) Gæti farið oft í Kaskó og keypt bland í poka. Tengdamamma er slök, voða þreytt og sljó. Hefur meiri áhyggjur af okkar heilsufari heldur en eigin. Seydi verður bara að fara eyða meira tíma með henni, hann sagði það líka í morgun. Vona að hann standi við það en er ansi hrædd um að lítið verði úr því. Nóg að gera á verkstæðinu og vinnumaðurinn hálfgerður ónytjungur, því miður. Ljótt að segja það en það er staðreynd. Sennilega hættir hann í janúar og þá verðum við að finna einhvern nýjan. Ekki auðvelt að finna almennilega vinnukrafta þrátt fyrir atvinnuleysi. Fyrir marga er vooooooðalega þægilegt að vera bara heima, fá leiguna borgaða frá ríkinu, "vasapening" fyrir mat og öðrum nauðsynjum og jafnvel vinna svart! Það gera reyndar ekkert allir og MARGIR þurfa virkilega á hjálp að halda en ég þekki nógu mörg önnur dæmi........... Það eru alltaf tvær hliðar á félagslega kerfinu.
Ég verð að fara að koma jólakortunum í póst. Julian er ekkert spenntur fyrir því að labba í bæinn en við hefðum tíma þangað til Henrik kemur úr leikskólanum. Sé til hvort ég get "platað" hann með mér.
Knús og kveðjur
já vina ég hef legið yfir jólasögunum á 640.is og það sem meira er, er að ég er búin að skrifa og senda þeim um jólin mín hér...(athyglissýkin að fara með mig!)
SvaraEyðavona þú sért alveg búin að ná þér og orkan fari að hlaðast á þig, hvenær ertu að fara heim?
Við fljúgum 21.des. og beint norður um kvöldið. Verðum til 5. jan.
SvaraEyðaSkrifaðir þú þá um jólin hjá fjölskyldunni eða þín eigin íslensk/amerísku jól?
Ég er orðin nokkuð góð, verð samt að passa mig að reyna ekki of mikið á mig. Orkan dugar ekki í það. Nú er hálfur leikskólinn flatur, neyðargrúbba í dag en ég varð að skilja Henrik eftir. Nennti ekki með hann í vinnuna, næ bara í hann fyrr á eftir.
Knús
Sniðugt að hafa svona jólas0gur frá ýmsum löndum... á sá 3 og las, er einhverjar fleiri?
SvaraEyðaMaja, örugglega fleiri en 3. Farðu á "skoða allar fréttir". Þar finnur þú eldri sögur :)
SvaraEyða