Já er það ekki bara? Jólin er aaaaalveg að koma, við líka. Innrás eftir 2 daga. Eins gott að það geri engin djúp lægð innrás! Ég kíki á veðurspána á hverjum degi, ef ekki oft á dag. Lítur bara ágætlega út. Lítur jafnvel út fyrir snjó í Keflavík!!! Það er nú ekkert alltaf þegar ég kem á Frón. Spurning hvort það sé nægur snjór til að upplifa þessa hitabylgju sem á að koma á Þorláksmessu?? Það eru aldeilis sveiflur í gangi.
Ég er búin að pakka næstum því öllu fyrir strákana og mig. Er búin að pakka smá fyrir Seydi en hann verður nú samt að ákveða hvaða skyrtur hann tekur með. Mér tókst að eyða pening í vikunni, fór bæði í H&M og Decathlon (íþróttabúð). Keypti mér aðrar náttbuxur, jólapeysur á gaurana, langermabol á mig, húfu á mig, kuldaskó á Julian, flísvesti á mig og....hmmm gleymi ég einhverju? Ég á eftir að gleyma passanum mínum, ég get svarið það! Eða bara heilanum.
Meira vesenið í dag. Ég ætlaði að opna bankareikning í Postbank (sem er því miður á pósthúsinu og því laaaaangar raðir). Nú ég fer þarna en þá þurfa þeir vottorð um að ég búi á Halterner Str. Ég vissi að ég ætti þannig heima svo ég fór aftur áður en ég náði í Henrik. En nei, þetta vottorð mátti ekki vera eldra en 6 mánaða! Andskotinn hafi það, ég er með bankareikning annars staðar, ég fæ póst frá ýmsum stofnunum osfrv. osfrv. Er ekki hægt að sjá það að ég búi þarna???? Og það sem meira er, kallinn sem ég talaði við fyrst minntist ekkert á að vottorðið yrði að vera nýtt og auðvitað lokar skráningarskrifstofan SNEMMA á föstudögum. Gleymum þessu bara........
Bärbel vinkona ætlar að líta við í kaffi á eftir. Ég fjárfesti í jarðarberjarúllu handa okkur. Á svo líka slatta af smákökum. Við ætluðum eiginlega á innileikvöllinn en þar sem Florian var veikur alla vikuna er hann enn hálf slappur. Frestum því fram í janúar. Gott að vera bara í rólegheitum heima. Nenni eiginlega ekki í afmæli til Demien á morgun en ætli maður skreppi ekki í smá stund allavega. Seydi mun örugglega ekki hafa tíma til að heimsækja bróðurson sinn. Best að láta Seydi ákveða hvaða skyrtur hann vill fara með, já og peysur og ég hendi því í tösku. Verst að kallinn á enga kuldaskó! Ætli einhver geti lánað honum þannig grip? Hann notar nr. 43. Ekki hægt að vera á "blænkskóm" öll jólin.
Ég gæti haldið endalaust áfram en læt þetta duga í dag. Skrifa kannski eitthvað í ath.semdirnar á morgun. Fylgist með :)
Sjáumst svo bara. Evran komin aftur í 170! Frábært fyrir mig. Mér leist ekkert á það þegar hún "datt" í rúmlega 140 í síðustu viku.
Knús
já fyndið hve fljótt maður verður veruleikafyrtur þegar um gengi krónunnar er að ræða! ég skældi heima sumarið 2007 því þá var dollarinn bara 59-61. krónu virði (mátti nú alveg skæla yfir því) ... síðan þá hefur krónan hoppað og skoppað sem skopparabolti sé! dollarinn fór um daginn í 146 krónur og ég verslaði ekki neitt - og nú tími ég varla að versla á íslandsmarkaðnum því dollarinn er BARA 121 kr! illa skrítin! mér heyrist þú sleppa við jólaköttinn þetta árið, ekki víst að ég verði svo heppin - mér leiðst svo þessi óléttumussutíska að mig langar ekki í neitt nýtt...
SvaraEyðagóða ferð heim mín kæra, (hver veit nema ég hringi í kunnuglega símanúmerið um jólin) þú verður að faðma og kyssa alla tvisvar - einu sinni fyrir þig og svo aftur fyrir mig...
Ha ha, mér líður einmitt svipað með evruna. Fannst allt í lagi að hún var um 90 kr. fyrir ári síðan, var svo rosa ánægð þegar hún fór í rúmlega 180 en fúl þegar kr. var sett á flot og gengið "bara" 143! Ég er líka skrýtin....
SvaraEyðaÉg keypti mér sko engar "óléttumussur" heldur þrönga boli, bæði stutt og langerma með tölum í hálsmálinu. "Mussurnar" fara mér ekki nógu vel.......svo skulum við ekki minnast á leggings *hrollur*
Ég skal knús allt og alla :)
jeminn eini leggings, ég samþykki ekki einu sinni að láta jarða mig í slíku! - hér eru gellurnar komnar með legghlífar líka (reyndar svolítið flottar - hnepptar og skreyttar) arína mín vill ekki vera í neinu öðru en hennar jafnöldrur hér eru ekki alveg komnar í þetta svo ég er ekki alveg á því að hleypa henni í þessa gelgjulínu - en þær stærðir sem mín tólf ára passar þó í - bjóða bara ekki upp á annað þessa dagana...
SvaraEyðaHæ skvís!
SvaraEyðaHérna er allt á KAFI!! bara næstum eins og heima á víkinni fögru í gamla daga :-)
Það þarf nú eitthvað mikið að ganga á, veðurfarslega séð, svo snjórinn verði farinn þegar þið lendið.
Gangi ykkur vel á morgun og góða ferð :*
Stella, svona er að vera komin með gelgju í hús ;) (eða næstum því)
SvaraEyðaHey, en frábært Guðný og takk fyrir. Snjórinn verður allavega kyrr þangað til á morgun og hinn....gæti minnkað á þriðjudaginn en ég held að við stefnum á sleðaferðir á mánudaginn. Rakel verður örugglega til í það :D