þriðjudagur, 2. desember 2008

Neglur, veikindi og annað.....

Oh, ég sem var búin að safna svona líka fínum nöglum til að vera pæja á jólunum. Núna er þær flestar brotnar :( Það er svona þegar maður nagaði neglurnar árum saman, það er ekki farið nógu varlega við hitt og þetta. Ég er alltaf rekandi neglurnar í allt sem fyrir er, veggi, borð, strákana, bara allt. Núna á ég 3 hálfar neglur eftir, 4 mini neglur og 2 alveg niðrí kviku. Nei, ég verð engin pæja á jólunum.

Við erum ekki alveg búin að ná okkur úr veikindum mæðgin. Ég enn hálf sljó í hausnum, Julian með smá hósta og Henrik kominn með hósta. Í fyrrinótt var Henrik "góður" og ég vaknaði í djúpum skít daginn eftir! Ég kem fram á bað og þar liggur náttgallinn hans útskitinn, baðteppið með skítarendur og eitt handklæði líka......
JE MINN EINI,"hvað kom fyrir????", hugsa ég. Ég fer inn í herbergi þar sem bræður sváfu saman á gólfinu. Þar liggur litla dýrið, nakið og steinsofandi. Smá kúkaslettur hér og þar á sængum og púðum. En ekkert á dýrinu sjálfu??? Hann hefur þvegið sér svona vel þarna um nóttina en var ekkert að vekja mömmu sína, nei nei. Svo sjálfstæður þessi drengur....... Það fór sem sagt allur gærdagurinn í það að þrífa, þvo, lofta út, spreyja góðri lykt osfrv. Henrik fór því ekkert í leikskólann. Julian var það hress að hann fór í skólann, mátti bara ekki fara í íþróttir. Verst að nefið má mér virkar ekki alveg þessa dagana, það getur vel verið að það sé enn skítafýla í íbúðinni?! Þetta var lífsreynsla sem mig langar ekkert til að endurtaka.......

Fór með Henrik í vinnuna í dag. Keyrði til Dorsten í einhverri þoku, svo sljó eitthvað. Þreif aðeins, setti upp jólaskraut, þvoði vél og skráði svo einn bíl þegar ég var búin að ná í Julian. Klukkan þrjú fer ég svo með strákana til læknis. Átti að mæta með Julian til að láta hlusta hann aftur og ætla líka að láta líta á hóstann í Henrik. Ætla svo að koma við hjá kjúklingasölumanninum, sem stendur hérna í götunni á þriðjudögum, og kaupa mér grillaðan kjúlla. Fínt að þurfa ekki að elda.

Í dag birti bara ekki almennilega. Voða dimmt yfir og annað slagið alveg svört ský með rigningu. Hitinn er um 5° og á að vera svipað næstu daga. Drungalegt og niðurdrepandi veður. Ég læsi mig bara inni með jólaljósin og hef það notalegt. Gæti nú haldið áfram að lesa bók eftir Yrsu Sig. Bärbel gaf mér hana, hún er sem sagt á þýsku. Byrjar allavega vel. Minnir að hún heiti "Þriðja táknið" á ísl.

Eftir 3 vikur verð ég komin í faðm fjölskyldunnar og kominn Þorláksmessa. Verð að muna að skrifa á umslögin fyrir jólakortin sem eiga að fara í póst......kominn tími á það held ég.

Jæja, best að fara að skeina og labba svo til dokksa.
Knús

13 ummæli:

  1. Tatara... gervineglur, hugsaðu þér hagræðinguna...
    Hilsen
    Bogi litli

    SvaraEyða
  2. ÆI brói, ég fíla ekki gervineglur. Myndi líka hvort eð er reka þær í og brjóta af EN það má kannski líma neglur á svona bara á jólunum ;)

    SvaraEyða
  3. ahhhh bara svona morgunstund gefur skít í lund eða þannig... jahérna, mín hefðu nú vakið mig fyrir minna það er nokkuð ljóst! vona að þið náið heilsunni á rétt ról svona fyrir jólaferðina ykkar! bestu batakveðjur

    SvaraEyða
  4. Jeminn eini Stella, þessi var snilldargóður! Morgunstund gefur skít í lund....ha ha ha. Þú ert snillingur.
    Við verðum orðin hress eftir tæplega 3 vikur, já já.
    Knús

    SvaraEyða
  5. ÚFF...öfunda þig EKKERT af skítastandinu-ojbara, en öfunda þig mikið af grillaða kjúklingnum hinum megin við götuna-væri til í tilbúinn mat sem aðeins þyrfti að teygja sig í og borga

    Láttu þér batna KNÚS&KOSS

    Rakel DH

    SvaraEyða
  6. Kjúllinn var góður, gerði þykkar frönskur og piparsósu (maggi) með.

    Er að fara að horfa á House inn í rúmi. Búin að koma gaurunum í rúmið. Var vond og neitaði Henrik um að sofa á gólfinu....ekki fyrr en hann er frískur takk fyrir.

    Góða nótt

    SvaraEyða
  7. Greinilega skítadjobb...
    Þriðja táknið er mjög góð, nýbúin að lesa hana, á íslensku reyndar.
    Sjáumst, eastenders er að byrja...Unns.

    SvaraEyða
  8. Ha ha já, skítajobb að vera mamma í aðalstarfi :)
    Ég held áfram með bókina þegar hausinn verður betri, þ.e. ekki stíflaður.
    Eastenders.....never ending story!

    SvaraEyða
  9. Hahaha... Unnur og þessir Eastenders, er hún enn að horfa á þetta?? Man eftir þessu þegar ég leigði hjá henni fyrir 10 árum eða svo;) Gaman að því:D
    Þú ert sannarlega ekki öfundsverð af þessu skítadjobbi í gærmorgun en þetta er víst eitthvað sem fylgir því að eiga börn... amk eitthvað sem maður getur átt von á.
    Mig langar alltaf svo að vera með fínar neglur en ég var víst alltaf voða svöng þegar ég var yngri og nagaði neglurnar sem gerir það að verkum að þær eru ógeðslega linar og viðkvæmar... ég reyndar á það til að smakka aðeins á þeim ennþá þegar ég er mjög stressuð... hef nú sem betur fer minnkað þetta:) Maður kannski fær sér svona gervi til að líma á fyrir jólin... jafnvel fyrir föstudagskvöldið. Erum að fara á jólahlaðborð með vinnunni hans Adda, fer í litun og plokkun á morgun, klippingu og lit á föstudaginn svo þá vantar bara að fá sér fínar neglur og fara í förðun til að fullkomna þetta:D Ætli ég reyni samt ekki bara að klessa einhverju framan í mig sjálf.
    Hlakka til að sjá þig eftir vonandi ekki mikið meira en 3 vikur;D

    SvaraEyða
  10. Mínar neglur eru einmitt frekar viðkvæmar og linar, ég er ekki nóg dugleg að dunda við þær með einhverjum meðölum sem herða þær.

    Mín bara að fara í alsherjar sjæningu? Gaman að því og góða skemmtun gella.

    SvaraEyða
  11. Stelpur, eitt naglaráð hérna megin: borða þaratöflur, virkar mjög vel...Unns.

    SvaraEyða
  12. Hæ hæ eftir ár og daga elsku Inga. Leiðinlegt að heyra með veikindín á heimilinu. Þið verðið komin í marga hringi þegar þið farið til íslands.

    Hafið það gott í gamla góða Þýskalandi og verslið nú mikið á Íslandi.....

    knús og kram
    Helga

    SvaraEyða
  13. Hæ Helga, verð að viðurkenna að ég veit ekki alveg hvaða Helga þetta er. Á nokkrar sem koma til greina. Mig grunar samt Helgu Atla????

    Við erum að hressast, þ.e. ég. Strákarnir eru búnir að ná sér....vonandi! Seydi er núna eitthvað slappur svo þetta gengur manna á milli.

    Kveðja

    SvaraEyða