mánudagur, 15. desember 2008

Skafað í ís

Kominn tími til að blogga, ég held það bara.

Það var kalt í morgun, það kalt að ég hefði þurft að skafa af bílnum. Ég sá það þegar ég fór með Julian í skólann. Ákvað því að fara aðeins fyrr niður, nú ef ekki væri fyrir Seydi þessa elsku. Hann hringdi í mig þegar ég var komin í skóna (hann fór fyrr úr húsi) og sagði mér að það væri hált (ég var búin að segja honum það) og að hann væri búinn að skafa rúðurnar fyrir mig :) Gott mál hugsaði ég. Þegar ég kem niður er búið að skafa allar rúður........nema eina! Á henni stendur "Ich liebe dich Inga" með hjarta utan um!!! Ég viðurkenni nú að mér varð hlýtt um hjartað. Seydi er nú ekki vanur að vera rómantískur en að láta sér detta þetta í hug. Ekki halda að við höfum verið að rífast eitthvað og hann hafi þurft að afsaka sig eða eitthvað þannig, nei nei. Kom skemmtilega á óvart. Því miður þurfti ég að skafa þetta af........var hliðarrúðan bílstjóramegin. Annars hefði ég ekki séð neitt út og með opna rúðu í 1° hita (kulda) vildi ég ekki keyra.

Nú eru bara 6 dagar í Íslandsferðina. Ég er búin að koma jólakortum í póst (nema einu) og jólagjafir safna ryki uppi á skáp. Spurning um að fara að koma þeim í tösku......æi nei, þá er taskan bara fyrir mér og ég veit alveg að ég er enga stund að pakka niður. Samt þarf ég alltaf að velta því fyrir mér hvað ég taki nú með, hmmmmmmm, tek ég þennan bol með, tek ég þessa peysu með, þessar buxur osfrv. osfrv. Ég tek allavega skíðabuxur og úlpu með, passann minn, VISA kortið, myndavélina og E-miðana í flugin. Er að hugsa um að skella mér í bæinn á miðvikudagsmorguninn og kíkja smáááááá í H&M, kannski sé ég eitthvað sem mig nauðsynlega vantar........Ætla líka að kíkja á jólapeysur á strákana.

Sultan mágkona kom með krakkana í heimsókn í dag. Herbergi strákanna er því eins og eftir loftárás........Playmobil hér, Lego þar, bangsar allsstaðar! Það reddast. Ætla að fara að hita tortellini og gera jógúrtsósu með. Fljótlegur og góður matur.

Segi því bæ í bili. Skrifa allavega einu sinni áður en við komum.

8 ummæli:

  1. Yndislegur er hann! Þó þú hafir nú þurft að skafa af þessari einu hjartfólgnu rúðu...

    Veistu, alveg væri ég til í að vera í veseni með niðurpökkun FYRIR ÍSLANDSFERÐ... færð enga samúð frá mér varðandi það vesen, ónei!

    Gott að sjá blogg bæðöveij -

    bestu kveðjur (frá fimmtán stiga frosti og hvassviðri...)

    SvaraEyða
  2. Sé eftir að hafa ekki tekið mynd af rúðunni, er nú alltaf með myndavél við hendina....

    15° frost, brrrrrrr. En það á víst að vera þokkalega kalt á Fróni á næstunni.

    Knús

    SvaraEyða
  3. æji hvað Seydi er sætur, frábær hugmynd;) ...ég væri alveg til í svona morgun- búið að skafa + huggulegheit á rúðunni, ekki slæmt:)

    Farðu að pakka kona, ég skil ekkert í þér...ég væri allavega byrðu að skrifa hvað ætti að fara í tösku!¨

    Sé þig:)

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  4. Auðvitað er ég búin að skrifa það niður sem alls ekki má gleymast, m.a. allt sem ég hef keypt fyrir Unnsu undafarið ;)
    Ef ég pakka núna eru töskurnar bara fyrir mér. Ekkert pláss fyrir þær.

    Þetta reddast :)

    SvaraEyða
  5. ...skemmtilegt ef þú hefðir nú ekið á vegna þess að ástin brann í hjarta þínu, hehehe... skemmtilegt það. Bíddu við, Rakel að koma norður í meira en nokkra daga, hún er væntanlega búin að skrifa meira niður vegna norðurferðar og en þú Inga mín nokkurn tíma, elsku Rakel okkar...
    Vá, hvað minns hlakkar til að fá ykkur heim í frí, njóta þess að hafa húsið fullt af fjölskylduást, allir saman og fullt af börnun. Geta jólin orðið dásamlegri... hilsen í bili
    LITLI bróðir

    SvaraEyða
  6. Já Hjálmar, ég held að þessi jól muni verða dásamleg. Bara finn það á mér.
    Við skulum sjá til hvor okkar er með meira dót, ég eða Rakel ;)

    Knús

    SvaraEyða
  7. hehe...ég kem væntanlega með meira dót...var að hugsa um að koma með stóru grænu (sem keypt var fyrir ameríkuförina miklu)...en hún er svo plássfrek í skotti! ...er allavega að fara að pakka;)

    Hlakka til að sjá ykkur:)
    kv. Rakel

    SvaraEyða
  8. Tja, veit nú ekki hvort að þú verður með meira dót....var að pakka mínu dóti og taskan mín er FULL (reyndar með öllum jólagjöfum). Skónum verð ég að smygla með Seydi ;)

    SvaraEyða