Ætla að reyna að koma nokkrum orðum niður en ég er rísa úr rekkju eftir ansi mikil veikindi, á minn mælikvarða allavega. Töflurnar mínar góðu, við nefholustíflum, virkuðu ekki nógu vel svo að ég fór til læknis á föstudaginn enda alveg að drepast í hausnum á fimmtudaginn. Sérstaklega vont þegar sársaukinn leiðir niður í tennur :/ Svo ældi ég líka á fimmtudagskvöldið, bara si svona. Læknirinn var ekki lengi að sjá að það var sýking í nefholum og lét mig hafa fúggalyf, nefdropa og slímlosandi lyf. Ég lá alveg fyrir á föstudaginn, gat engu sinnt og fengu strákarnir að leika lausum hala hérna heima.........Julian reyndar ryksugaði fyrir mig hér rétt í stofunni. Ég lá ýmist hér á sófanum eða inni í rúmi, alveg að drepast og hélt engu niðri. Tókst samt að taka þessi lyf þrátt fyrir að eiga að taka þetta slímlosandi eftir máltíð.......engin var máltíðin en ég tók það samt. Síðasti skammturinn kom þó upp aftur! Um kvöldið gat ég drukkið áður en ég fór að sofa svo það leit ekkert illa út um að mér væri að batna. Var svona ágæt í gær, gat borðað en lá mest fyrir og verður illt ef ég hugsa um að borða t.d. nammi eða drekka bjór. Get heldur ekki hugsað mér að borða kjöt eins og er. Það lagast vonandi fyrir jól. Er ágæt í dag, get samt ekki borðað neitt almennilega og er með verk í maganum. Líður samt loksins eins og manneskju en ekki einhverju hrúgaldi sem vafrar hér um eins og bogin norn. Alger horror. Seydi fór með strákana út að borða í gær svo ég gat slakað á, það var gott. Gleymdi ég að segja að ég er enn með hausverk.........en eins og ég segi, þetta er allt að koma og ég ætlaði sko ekki að hafa þetta svona langt!
Gleðilegan 2. í aðventu (er það kannski skrifað með stóru A´i?)
Afsakið ef það eru villur, ég er ekki alveg með öllu mjalla ennþá.............
Knús
Og já, eitt í viðbót. Eitt gott við svona veikindi.........ég hef lést um 1,5 kg! Þau koma reyndar strax aftur þegar ég fer að borða venjulega. Samt gaman að sjá aðra tölu fyrir framan á vigtinni ;)
meira ástandið á minni. Ojbara, ferlegt að vera svona veikur, og hvað þá að fá kannski ekki allan frið í heimi þarna með grísina heima;)
SvaraEyðaVonandi verðuru frísk sem fyrst, aðventan ekki alveg tíminn til að VERA tuska...þá á maður frekar að vera MEÐ tusku, hehe.
Hafðu það gott:*
Rakel
æi essku kellingin - flýttu þér að ná þér, ekki hægt að eyða dögunum í svona rugl...
SvaraEyðalægra númer er á voginni er alltaf ánægjulegt, haha þó svo að það sé slæm leiðin þar niður!
Lykilatriði eru ferskt loft, súr græn epli og kaldur þvottapoki á kviðinn... Átt alla mína samúð elsku Inga mín... :-)
SvaraEyðaDin lille bro...
HjB
Takk fyrir kveðjurnar :)
SvaraEyðaNú er kominn mánudagsmorgun og ég er nokkuð hress, fyrir utan að vera svöng.
Þessi með tuskuna er góður Rakel :D Ég hef einmitt varla lyft tusku, nema í eldhúsinu, síðustu daga...
Nei Stella, ekki hægt að eyða dögunum í þetta rugl, svooooo lýjandi bara!
HBH, get ekki hugsað mér að borða eitthvað súrt núna og út komst ég ekki í gær, hefði þurft að hafa klósett við hendina! Kaldur þvottapoki á mallan, hmm, hef aldrei prófað það.
Takk aftur elskurnar. Knús
Æji, leitt að heyra að þú sért búin að vera svona mikið veik... það góða er að þetta verður vonandi búið áður en þið komið til Íslands... er farin að hlakka mikið til að hitta ykkur;) Hafið það sem best.
SvaraEyða