Og Norge malaði þessa keppni, ekki hægt að segja annað. Það var engin spenna í atkvæðagreiðslunni, bara alls engin, nema kannski um 2-4 sætið. Hjá mér voru nokkrir ættingjar Seydi mættir til að fara í brúðkaup og komu svo til mín til að horfa á Júró. Það var því keppni hérna og ég vann þá keppni auðvitað því að Ísland varð í 2.sæti en Tyrkland í því 4. (held ég). Ég leit á úrslitin frá forkeppnunum, þar voru Ísland og Norge nr. 1 og Tyrkland og Aserbaídjan nr.2, og þannig fóru þessi leikar. "The BIG 4" höfðu ekkert í okkur að gera.......Bretland komst næst því og Frakkland fékk alveg ótrúlega mörg stig, ég sofnaði næstum því yfir þessu ofur leiðinlega lagi.
En nú er þetta búið og Eurovision verður víst í Noregi á næsta ári. Ég er búin að lofa Hjálmari bróður að koma þangað. Hann og Unnur ætla víst að fara. Ætli maður verði ekki að kaupa miða núna? Það væri nú gaman að skreppa til Norge aftur, hef ekki komið þangað síðan 1993! Mig var nú samt búið að dreyma um að skreppa til Chicago í maí á næsta ári........hef nú ekki komið til USA síðan 1988!!! Það er ansi langt síðan, alveg heil mannsævi.
Nú er brúðkaup Ibo mágs búið. Herlegheitin voru í gær og tókst víst vel og hann og Seydi voru allavega sáttir í 1 dag. Þeir eru sko ekki búnir að talast við í nokkur ár......rifust útaf einhverjum smámunum. Ibo er þverhaus, hefur ALLTAF rétt fyrir sér, lætur aldrei undan og hrokinn lekur af honum. En konan hans er yndisleg og mig langaði mest í þetta brúðkaup til að gleðja hana.
Fór í kjól og alles.....keypti mér sjal við og var bara alger pæja. Kjóllinn er 11 ára gamall, jólakjóll frá 1998. Ég hef ekki notað hann síðan minnir mig. Fer nú ekki oft í síðkjóla. Gleymdi hins vegar að taka mynd af mér. Þið verðið bara að ímynda ykkur hvað ég var mikil pæja, hahahaha.
Seydi varð laus við nokkur hundruð evrur í gær.......þurfti að "borga" brúðina út. Farið er á heimili foreldra hennar (sem hún býr auðvitað ennþá) og náð í hana, hún er borguð út. Þar sem Seydi á mestan peninginn, fékk hann þann heiður. Svo fengu þau 1000 Evrur í gjöf, plús 100 sem Julian lét þau hafa (fékk hjá pabba sínum). Eins gott að ég var búin að borga miðana heim. Seydi gæti sagt, nei vina, þú getur ekki farið heim í sumar, ég hef ekki efni á að borga þér laun! Neiiiiii grín.
Það er eitthvað svo mikið um að vera þessa dagana. Íþróttavikur í skólanum, frídagur á fimmtudag, engin skóli og leikskóli á föstudag. Á síðasta föstudag keyrði ég Henrik og aðra stelpu í leikhús í suðurbæinn en allir krakkar af leikskólanum, eldri en 4ra ára, fóru að sjá "Froskakonungurinn". Svo var þetta brúðkaup, þar á undan var "gæsakvöld" á föstudagskvöldið. Eurovision tók sinn toll líka en það var bara gaman. Ég fór til tannsa og sárið eftir endajaxlinn grær vel. Fer aftur á morgun til að láta líta á framtennurnar. Mér finnst vanta smá neðan á þær, spurning um að fylla smá. Fyrir utan þetta kemur þetta hversdagslega, þvo þvott, ryksuga, laga til, sækja strákana í skóla og leikskóla, talkennsla já og að vinna. Nóg að gera.
Læt þetta líka duga núna. Er að vona að strákarnir sofni snemma í kvöld en við komum heim um miðnætti í gær og þeir þurftu auðvitað að vakna snemma í morgun. Sérstaklega Julian en Henrik getur sofið aðeins lengur. Julian var svo þreyttur að hann sagðist ætla að eyðileggja skólann!
Lifið heil en ekki í pörtum.