Þar sem ég sit hérna við tölvuna hvort eð er ætla ég rita nokkur orð. Bara óska öllum góðrar helgar. Planið hér er að fara á nýja innileikvöllinn í suðurbænum á morgun með Bärbel og Florian, annað ekki. Ætli ég haldi ekki áfram að lesa "Þriðja Táknið" eða "Das letzte Ritual" eins og hún heitir á þýsku. Spennandi, spennandi.
Keypti mér daim mola í dag, góðir, góðir! Verð að passa mig á þeim, hægt að borða heilan poka á nóinu....Keypti líka góðar karamellur, namm, namm. Keypti ekki bara óþarfa heldur líka nautasteik, epli og banana :) Og eitthvað fleira, eyddi allavega helling í real búðinni.
Sá svo fína eldri konu í dag. Hún var með fína nælu í treflinum sínum. Mér finnst svo gaman að sjá svona konur í sínum straujuðu buxum og fínu jökkunum sínum, jafnvel með fallega hatta. Stundum eru þær líka í pilsum og fallegum skóm, með uppsett hárið og varalit. Oft sé ég líka hjón svona líka fín og uppstríluð, bara eins og þau séu að fara á mannamót (annað en að labba í bænum).
Ég verð ekki svona þegar ég eldist, finnst óþarfi að strauja og efast um að ég taki upp á því á gamals aldri að ganga í pilsi og setja upp hárið.
Strákarnir horfa á föstudagsmyndina í TV, ekkert í TV fyrir mig. Best að lesa bara áfram......og fá mér kaffi og daim mola (eins gott að molar eru eins í ein- og fleirtölu) hahaha
Góða helgi
ég skil vel að þú getir ekki hætt að lesa, þetta er þannig bók að þegar maður byrjar er svo alls enginn tími fyrir neitt annað en lestur....og ekki skemma daimmolarnir fyrir;)
SvaraEyðaég einmitt er búin að kúra mig niður í sófa með nýjan Lipstick Jungle þátt og danska "skum bananer"...ofsa góðir
Góða helgi systir:*
kv. R
segi það með þér, efast um að ég fari að fara í pils á gamals aldri, nema ég tapi mér í elliglöp og finni mig einn daginn í hlutverki tinu turner...
SvaraEyðameiri líkur eru á því að ég sjáist á vafri í náttfötum með rúllur í hárinu haldandi á glasi sem varla hefur botnfylli af margarítablöndu sem ég drakk í morgunmat!
góðar helgarkveðjur til ykkar
Þessi "Lipstick Jungle" þættir eru ekki komnir hingað. Annars eru alltaf einhverjar þáttaraðir að byrja en ég hef bara ekki tíma til að horfa á þetta allt saman. Desperate og House má ég ekki missa af, CSI:N.Y. og Criminal Minds helst ekki heldur. Flest annað situr afgangi.
SvaraEyðaLas nú lítið í gærkvöld, var að kúra með Henrik inni í rúmi og datt í imbann.
Hey Stella, Tina var Köln í vikunni og verður með einhverja fleiri tónleika hér í Þýs. á næstunni. Þú ættir að skella þér :)
Sólarkveðja