fimmtudagur, 22. janúar 2009

Fyrst af öllu við ég byrja á því að spyrja ykkur að einu. Þekkir einhver ykkar "Sokkabandið"? Þessi grúbba (eða hvað þetta nú er) er víst með sýningar hér á listahátíðinni í sumar. Sá þetta í blaðinu í dag en þema hátíðarinnar eru "Norðurljósin", þ.e. Norðurlönd. Mér datt í hug að skella mér á þessa sýningu og bjóða Bärbel vinkonu með. Endilega látið mig vita ef þið þekkið Sokkabandið.

Skólinn féll niður í dag, heita vatnið fór af þ.e. ísakuldi skólanum svo að ég mátti ná í Julian strax rúmlega 8. Ég hringdi þá bara í leikskólann og hann mátti koma með Henrik þangað. Ég gat því unnið til að verða hálf tvö í dag. Þurfti reyndar að skutlast aðeins fyrir Seydi "eftir vinnu" en er nú komin heim núna. Strákarnir sofnuðu í bílnum svo að það má búast við ennnnn seinni svefntíma í kvöld! Það sem þessi börn þurfa lítinn svefn. Mamma sagði að ég hefði víst verið svona líka. Kannski gengur þetta í erfðir? Sérstaklega Julian virðist alveg komast af án mikils svefns.

Hér er spáð stormi á morgun með rigningu og jafnvel höglum. Það gæti nú alveg farið framhjá hér, aldrei að vita hvar versta veðrið er. Það er aðeins byrjað að hvessa en ennþá bjart og um 5° hiti.

Jæja, hef þetta ekki lengra í dag. Þarf að taka úr þvottavélinni og elda eitthvað úr kjúklingabringum sem ég á.

Kveðja í byltinguna

4 ummæli:

  1. Hæ:)

    sokkabandið, svo ég best veit er leikhópur sem hefur verið að setja upp leiksýningar um samtímann og tíðarandann hverju sinni...veit að Elma Lísa leikkona er einhver forsprakki í þessu, veit ekki meir! Veit ekki alveg hvað leikhópur hefur að gera með norðurljós, nema kannski leikrit sem tengist því??

    Kveðja, Rakel

    SvaraEyða
  2. Nei sko, þemað í ár eru ýmsir leikhópar, tónlistargrúbbur og annað frá Norðurlöndum t.d. frá DK og Norge.
    Þessi listahátíð er RISA stór, í fyrra voru t.d. Kevin Spacey og Jeff Goldblum að leika í leikriti. Í ár á hann Ethan Hawke víst að koma.

    Sá gamalt blogg frá Sokkabandinu og leist vel á. Ætla að kaupa miða og bjóða Bärbel :)

    SvaraEyða
  3. hehe, var aðeins að misskilja með norðurljósin...en já, þú verður að kíkja á þetta.

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  4. aldrei heyrt um annað sokkaband en þau er ömmurnar áttu...

    ættgegnar svefnþarfir, því trúi ég! arína sefur hér, þar og allstaðar, hefur aldrei átt við andvökur að stríða - svona alveg eins og pabbi sinn! anton er eins og ég! liggur andvaka, sefur stutt og leggur sig aldrei! alma virðist ætla herma eftir okkur antoni...

    (hjónaherbergisfriður rýrnar með árunum - ég er farin að skilja af hverju unglingar voru sendir niður á aðrar hæðir eða í forstofuherbergi fjarri hjónaherbergi - það var sko ekki til að gefa unglingunum meira næði eða frjálsræði...

    SvaraEyða