Ég er nú bara nokkuð þreytt eftir þennan dag. Vaknaði eiturhress á undan vekjaraklukkunni í morgun en hún fer af stað kl. 6:45. Reyndar er útvarpsvekjarinn eitthvað að stríða okkur, hann argar í staðin fyrir að setja af stað útvarpið, jú það heyrist reyndar aðeins í útvarpinu á bakvið en þetta arg fer alveg í mínar fínustu. Skil ekki afhverju vekjarinn gerir þetta af og til?!
Fór nú loksins í vinnuna í dag en ég fór ekkert í síðustu viku enda tölvan hér heima og allt svona að komast af stað aftur á verkstæðinu eftir jólafríið. Ég þreif gólfin á WC og skrifstofunni, saltaði klakann fyrir utan dyrnar (með venjulegu salti, allt hitt uppselt!) og kíkti smá á bókhaldið.
Eftir að hafa sótt Julian og hann búinn með heimaverkefnin, sótti ég Henrik og við fórum beint í bæinn. Fyrst á bókasafnið, svo í dm en ég hafði keypt mér meik á laugardaginn og ætlaði svo að klína því framan í mig í morgun en haldiði að dollan hafi ekki verið TÓM!!! Búið að skafa allt meikið úr henni. Ég gat skilað þessu, afgreiðslukonan trúði mér alveg að ég hefði sko ekki gert þetta. Sagði að sennilega hefði einhver komið með tóma dolluna og tekið nýja, var ekkert hissa. Það sem fólki dettur í hug að gera.......... Næst lá leiðin í Deco, svona gjafavörubúð en mig vantaði blómavasa handa Sultan í afmælisgjöf en hún er þrítug í dag. Fann þennan líka fína "afríska" blómavasa og gaf henni túlipana með. Á leiðinni til hennar í kaffi kom ég við í búð og keypti afmælisgjöf handa einkabróðurnum. Stefni að því að senda pakkann til hans á miðvikudaginn. Verður kannski ekki kominn á föstudaginn, því miður er póstur ekki borinn út á laugardögum á Íslandi. Þú fyrirgefur mér það vonandi kæri bróðir :)
Sultan kellingin var á fullu að elda þegar ég kom og Liya lá á gólfinu og gargaði. Bara af frekju held ég, það er búið að venja prinsessuna á ýmislegt eins og að sofa helst í fanginu! Sultan hefði átt að hneykslast meira á mér þegar Julian var lítill og við vorum að svæfa hann í rúminu okkar kvöld eftir kvöld. Ég tók dúlluna bara upp og hún var bara ánægð með það. Tengdó komu líka, það voru þau sem vildu mat. Sultan ætlaði bara að vera með kökur og kaffi. Það var svo á eftir matnum. Engar íslenskar rjómatertur eða heitir réttir, nei nei, allt keyptar kökur. Ekki að þær séu ekki gómsætar en það jafnast fátt á við íslenskt kaffiboð. Ég reyni nú að vera með allavega nokkar heimalagaðar sortir þegar ég held afmæli. Einhvern veginn heimilislegra finnst mér.
Þó ég væri búin að borða, steikti ég kjötbollur þegar ég kom heim því að hakkið rann út í dag. Veit að það þýðir ekkert að frysta það, ég gleymi því bara í frystinum um ár og aldir. Var að henda kjúklingabringum fyrir jól en þær hefðu runnið út 12.9. Voru kannski í lagi en ég henti þeim samt. Strákarnir átu nokkrar bollur, Seydi er svo kannski svangur á eftir. Verður að duga handa honum í dag.
Oh, nú er ég búin að babla alltof mikið. Best að kíkja á fréttir og koma strákunum í ró.
Knús
ohh hið ljúfa mömmulíf - þrífa, kaupa inn, elda mat, er eitthvað hægt að hafa það betra?
SvaraEyðaO jæja, ljúft líf myndi ég nú ekki kalla þetta, frekar ábyrgðarfullt :) Svo erum við nú ekki "bara" mömmur heldur þú í skóla og ég að vinna líka.
SvaraEyðaVerst að fá ekki borgað fyrir að vinna heima, hahaha. Í peningum sko ;)
Knús