Þetta verður ekki langt, nenni ekkert að hanga hér í tölvunni í jólafríinu. Hef nóg annað að gera eins og að borða, sofa, skemmta mér, renna mér (fann snjó ofan við Húsavík), borða meira og sofa enn meira.........
Árið leggst vel í mig, ég strengi engin áramótaheit. Væri samt til í að losna við þessi kíló sem ég hef hlaðið utan á mig hérna hjá mömmu! Eins gott að ég lagði af áður en ég kom, hjúkkit bara. Við fljúgum suður á sunnudagskvöldið og "gistum" hjá Rakel í smá stund áður en við förum með flybus rúmlega 5 um á mánudagsmorguninn. Fljúgum svo kl. 8:10 heim aftur. Hversdagsleikinn tekur þá við eins og alltaf. Anna Lína sagði mér góða setningu úti í Kaskó um daginn. Einhver hafði sagt við hana "þú kemur alltaf til að fara aftur".......þannig er þetta hjá mér/okkur.
Kaffið er tilbúið, kleinur, pungar, skonsur ofl. á boðstólnum. Segi því bless í bili.
Knús
Borða og sofa, sofa aðeins meira og bæta í bamban - svona eiga jólin að vera!
SvaraEyðaGleðilegt nýtt ár mín kæra - hlakka til að fá þig í tölvusamband aftur! Bestu kveðjur til allra sem ég þekki...
Takk fyrir okkur á föstudaginn... alltaf gaman að koma og hitta ykkur á Garðarsbrautinni. Stoppuðum á Ak á bakaleið og vorum komin heim kl. 11 um kvöldið... langur dagur það hjá krökkunum. Vonandi hefur allt gengið vel, ferðalagið suður og út og keyrslan heim af flugvellinum.
SvaraEyðaKnús Maja