fimmtudagur, 1. janúar 2009

Gleðilegt ár

Þetta verður ekki langt, nenni ekkert að hanga hér í tölvunni í jólafríinu. Hef nóg annað að gera eins og að borða, sofa, skemmta mér, renna mér (fann snjó ofan við Húsavík), borða meira og sofa enn meira.........

Árið leggst vel í mig, ég strengi engin áramótaheit. Væri samt til í að losna við þessi kíló sem ég hef hlaðið utan á mig hérna hjá mömmu! Eins gott að ég lagði af áður en ég kom, hjúkkit bara. Við fljúgum suður á sunnudagskvöldið og "gistum" hjá Rakel í smá stund áður en við förum með flybus rúmlega 5 um á mánudagsmorguninn. Fljúgum svo kl. 8:10 heim aftur. Hversdagsleikinn tekur þá við eins og alltaf. Anna Lína sagði mér góða setningu úti í Kaskó um daginn. Einhver hafði sagt við hana "þú kemur alltaf til að fara aftur".......þannig er þetta hjá mér/okkur.

Kaffið er tilbúið, kleinur, pungar, skonsur ofl. á boðstólnum. Segi því bless í bili.

Knús

2 ummæli:

  1. Borða og sofa, sofa aðeins meira og bæta í bamban - svona eiga jólin að vera!

    Gleðilegt nýtt ár mín kæra - hlakka til að fá þig í tölvusamband aftur! Bestu kveðjur til allra sem ég þekki...

    SvaraEyða
  2. Takk fyrir okkur á föstudaginn... alltaf gaman að koma og hitta ykkur á Garðarsbrautinni. Stoppuðum á Ak á bakaleið og vorum komin heim kl. 11 um kvöldið... langur dagur það hjá krökkunum. Vonandi hefur allt gengið vel, ferðalagið suður og út og keyrslan heim af flugvellinum.
    Knús Maja

    SvaraEyða