Hæ hó úr vinnunni. Julian er með mér þar sem skólinn er lokaður í dag, einhver vinnudagur kennara en á morgun byrjar ný önn. Ætli Julian byrji þá ekki í ensku, ég er spennt.
Hef svo sem ekkert mikið að gera. Mánudagar eru oft rólegir og flestir kúnnar koma seinni partinn. Hef samt svarað nokkrum sinnum í símann og sagt þremur kúnnum að Seydi sé ekki kominn og komi bráðum......bráðum er þó sveigjanlegt. Hann er þó kominn núna og er á kafi ofan í mótor á einhverjum bíl úti. Skil ekkert í honum að vera úti, það er frekar kalt þó að sólin skíni. Ekki myndi ég vilja vinna úti núna. Það er víst nógu kalt hérna á skrifstofunni, þrátt fyrir lítinn hitablásara hérna fyrir aftan mig. Nú er gott að vera í ullarvestinu góða. TAKK UNNUR.
Fórum í sund hérna í Dorsten í gær. Það var tilbreyting og við áttum góða fjölskyldustund saman. Þær eru ekki margar, nema heima fyrir. Ekki oft sem við förum eitthvað öll saman. Við vorum greinilega ekki þau einu sem ákváðu að fara í sund í gær! Laugin var svo troðin, jeminn eini. Það var því nóg að skoða; feitir, mjóir, litlir, stórir, loðnir, rakaðir..........og allt þar á milli. Strákarnir skemmtu sér vel og það er aðalmálið. Ég fór ekki eina ferð í rennibraut. Við Henrik vorum alveg að komast að (röðin var löng) þá þarf hann endilega að pissa! Við löbbuðum því aftur niður og ég nennti ekki að fara í röðina aftur en hann bað heldur ekkert um það, sem betur fer. Mér er illa við að standa svona hálf nakin í röð í tröppum. Ég er nú ekki spéhrædd en fyrr má nú aldeilis fyrr vera.........það sést hver æð, hver kotasæla, hvert hár! Úff. Best að fá sér vatnssopa :)
Kuldaboli er mættur aftur, allt frosið í morgun. Ég þurfti s.s. að skafa rúðurnar á bílnum. Enginn snjór samt en kalt. Veturinn er sko ekkert farinn. Meðan að sólin skín er þetta bara fínt. Það kom enginn alvöru stormur hérna um daginn. Ekki sem ég kalla storm. Dúkurinn á borðinu úti brettist upp, það er allt og sumt.
Jæja, best að gera eitthvað af viti.
Sólarkveðja
gleðilegan mánudag! bráðum kemur febrúar og svo vorið...
SvaraEyðaJá, já, já, vorið er skammt undan hér. Sólin nær alveg að ylja manni vel þegar hún er hæst á lofti, indælt. Blessunin er að setjast hjá mér núna.
SvaraEyðaskil þig vel með biðina á sundlaugabakkanum-ekkert ömurlegra en að horfa á bláskræpótt lærin á sér með krumpurassinn útí loftið;) ...en fínt ofan í lauginni var það ekki:)
SvaraEyðakv. úr skítakulda hér líka, leiðinlega hvasst eitthvað.
Rakel
Hvaða krumpurass ert þú að tala um? Á mér ætla ég að vona ;)
SvaraEyðaÞað var fínt í lauginni, ein þeirra var m.a.s. 34° heit og sölt. Líka hlýtt þarna inni.
Knús
Svo dásamlegt veður hér, sól í heiði, svalur andvari og ferkst loftið blæs um mann.... Reyndar verulega hált og betra að vera á bílnum og keyra á en að detta og lærbrotna...
SvaraEyðakveðja
Hjálmar ferski...
Nú er hálkan svona slæm? Ferskt loft er alltaf af hinu góða.
SvaraEyðaFerskar kveðjur