Komið að bloggi. Hef samt ekkert merkilegt að segja. Vikan hefur verið fín. Ég var með 3 rétta í lottói. Já, ég tók þátt í lottó á miðvikudaginn. Ekki oft sem ég geri það en þar sem "Jackpot" eru heilar 28 milljónir Evra, ákvað ég að spreða 9,35 € í einn miða. Ætli ég fái ekki eitthvað svipað fyrir þessar 3 réttu. Er að hugsa um að kaupa bara nýjan miða, enginn var með 6 réttar + þessa andskotans tölu sem maður ræðu engu um :( Hún kemur sjálfkrafa á miðann. Þeir sem voru með 6 rétta fengu næstum því 1 milljón.........það hefði alveg verið nóg fyrir mig. Gerir um 160 milljónir ísl. krónur........ekki slæmt. Ég ætla að bjóða pabba á Eagles tónleika í júní ef ég vinn einhverja álitlega summu :)
Sólin skín þessa dagana enda hæð yfir landinu og því kyrrt og kalt veður. Eitthvað á að hlýna á morgun en kólna aftur á laugardagskvöldið. Þá er veðurfréttum lokið að sinni.
Fór í bæinn í gær og tók þátt í skoðanakönnun á nýju mýkingarefni. Vann mér inn 2 € fyrir það :) Ætlaði að kíkja á útsölur í bænum en náði bara að fara 1 hring í H&M og þar er engin útsala, allt löngu búið. Fyrir nokkrum árum var "útsölubyrjunardeginum" útrýmt, þ.e. búðir urðu að byrja með útsölur á vissum degi. Margir gera það, ekki H&M, þeir byrja að lækka verðið fyrir jól. En eins og ég hef sjálfsagt sagt áður, mig vantar svo sem ekkert........gæti samt fundið eitthvað í öðrum búðum. Sé til á morgun.
Ég elska facebook. Snilldar uppfinning. Fann gamla vinkonu, sem ég hef ekki séð í 100 ár. Sum ykkar muna örugglega eftir Guffý sem átti heima í "appelsínugulu" blokkinni? Loksins "fann" ég hana, eftir nokkra leit. Enn og aftur gerði facebook mig enn glaðari. Heilu ættarmótin verða örugglega plönuð þarna. Snilld og aftur snilld.
Hringdi aðeins í ömmu í gær en það geri ég alltof sjaldan. Hefði verið til í að skreppa til hennar í kaffi. Afi hefði nefnilega átt afmæli í gær.
Ég er yfir höfuð löt að hringja í fólk........hefði kannski átt að setja það sem áramótaheit. HRINGJA OFTAR Í FÓLK.
Eigið góðan dag. Er ekki snjór í borginni? Allir út að renna........
HÆ:)
SvaraEyðagastu ekki blokkað um það í gær að þú hefðir hrint í ömmu, ég alveg steingleymdi afmælinu hans afa en ætlaði SVO að muna eftir því!
En hér er jú yndislegt jólaveður, alveg kingdi niður í gær þannig að öll tré og runnar eru í sínu fínasta pússi...
Góða helgi,
kv. Rakel
Tja Rakel, ég blokkaði nú alveg á það að láta þig vita......þú meinar jafnvel BLOGGA ;)
SvaraEyðaFínt að fá jólaveður í lok janúar. Lífgar upp á umhverfið.
bestu kveðjur - takk fyrir að vera svona dugleg að blogga, eins yndisleg og fésbókin er þá kemur hún ekki í stað almennilegra pistla!
SvaraEyðaÞað er satt Stella. Svo eru t.d. mamma og pabbi ekki á facebook. Hér fæ ég smá útrás fyrir því sem mér liggur á hjarta.
SvaraEyðaTakk til baka........