þriðjudagur, 6. janúar 2009

Komin heim

Ég er komin á ról eftir frekar langa nótt, á minn mælikvarða allavega. Ég var örugglega sofnuð fyrir ellefu og vaknaði við símann hans Seydi klukkan 8. Hefði kannski sofið enn lengur ef hann hefði ekki hringt.

Ferðalagið í gær var langt en gekk mjög vel. Rakel, þessi elska, fór á fætur um miðja nótt og keyrði okkur á BSÍ til að taka flugrútuna. Þar var mikið um manninn og alveg 3 rútur að fara þarna á sama tíma. Þessvegna var líka troðið í Leifsstöð, margir að tékka sig inn, öllum troðið í sömu röðina, sama hvort þeir voru að fara til Osló, Stokkhólms eða Frankfurt. Sumir tékkuðu sig inn sjálfir en þar voru líka langar biðraðir svo við fórum bara í "venjulegt" tékk inn. Gaurarnir stóðu sig með prýði enda vanir menn. Töskurnar voru ekki meira en 80 kg svo að það var í góðu lagi. Við gátum slappað aðeins af í Leifsstöð, fengum okkur að drekka og harðfisk að borða. Garurarnir léku sér í krakkahorninu. Ég keypti mér einn geisladisk, Simsalabimm með Ruth Reginalds :)

Ekki byrjaði nú flugið vel heldur þurftum við að bíða í næstum því klukkutíma til að mega fara af stað.........allt í klessu í Frankfurt vegna mikillar umferðar og snjóa! Sem betur fer vorum við í vél með nýju sætunum svo að græjurnar voru settar af stað til að við gætum notið afþreyingar á meðan á bið stóð. Ég byrjaði að horfa á "Sex and the city" myndina en eftir smá stund fannst mér hún heldur "gróf" fyrir litla gaura við hliðina á mér, þeir þurfa ekkert að horfa á svona í TV strax. Nestið hennar mömmu kom sér vel þarna í biðinni.

Flugið gekk mjög vel, gaurarnir sátu og horfðu á "Shrek", Henrik sofnaði og Julian horfði svo á "Simpson". Ég horfði á mynd "Monster in Law" en dottaði nú eitthvað í lokin. Hrikalega var ég orðin þreytt.........

Við flugum yfir Hjaltlandseyjar sem böðuðu sig í sólinni, í suðri sást í fjöllin í Skotlandi. Þegar við komum svo að meginlandinu var ALLT hvítt. Í Frankfurt þurftum við að bíða alllengi eftir að komast í stæðið. Sumir voru orðnir óþolinmóðir, aðallega Julian. Honum fannst hann vera búinn að bíða nóg þennan dag. Sem betur fer fengumvið töskurnar strax, Julian sá um að finna þær. Við drifum okkur svo út í snjóinn, tókum leigubíl að stæðinu þar sem bíllinn okkar stóð og drifum okkur af stað. Tókum smá útúrdúr til að kíkja á einn bíl sem Seydi fann á netinu en ekkert varð úr þeim kaupum. Nú var brunað heim. Sem betur fer voru hraðbrautirnar vel ruddar og saltaðar. Við fengum m.a.s. tvisvar saltgusu framan í okkur!

Vorum komin hingað heim um hálf sjö og hér er svo mikill snjór að annað eins hefur ekki gerst í ein 10 ár!!!!!!! Alveg 15 cm jafnfallinn snjór og göturnar illa ruddar. Svo er spáð Síberískum kulda næstu daga og nætur..........í morgun voru 8,3 gráður mínus!!! Brrrrrrrrrr

Ég held ég fari að renna með gaurunum í dag, þegar ég er búin að taka upp úr töskunum. Ég nennti því sko ekki í gærkveldi. Tók bara fiskinn, pítusósuna og Gottann upp úr og búið.

Nú hef ég verið að fara yfir þessi jól í huganum undanfarið og þau voru auðvitað yndisleg og allt það. En mig vantar svo snjóinn til að leika/renna í og mig vantar að labba í bæinn á Þorláksmessu. Þetta vantar inn í minninguna um jólin 2008. Sem betur fer fundum við snjó til að renna allavega tvisvar, það reddaði heilmiklu. Með veðrið þarna 22.-24. verður engu breytt.

Ég náði auðvitað ekki að sjá og hitta alla sem mig langaði að hitta. Þegar þetta eru bara nokkrir dagar og margir af þeim hátíðisdagar er ekki mikill tími til að heimsækja fólk. Eftir að ég eignaðist strákana geri ég líka miklu minna af því. Fólk má líka alveg koma á Garðarsbraut og hitta mig eins og elsku Maja gerði. Þú ert alveg frábær Maja mín :) Svoooo gaman að sjá þig og krílin þín.

Ég ætla mér að koma í sumar og vonast ég þá til að geta hitt fleiri og séð enda ekkert jólastress í gangi þá. Vona bara að þá komi ekki snjór, ha ha ha.

Nú er sólin farin að skína á snæviþakin þökin hér úti. Seydi er farinn að kaupa "Brötchen" og ég ætla að vekja gaurana.

Knús og kossar á ykkur öll. Takk fyrir allt elsku fjölskylda og vinir.

6 ummæli:

  1. ég skil vel að þið hafið verið orðin þreytt loks þegar þið komust heim, úff! en þú getur verið ánægð með snjóinn í Reclingh. þar sem hann vantaði algerlega heima á Hú:)
    ...þið verðið auðvitað að kíkja á brekkurnar og renna ykkur villt og galið...

    Takk sömuleiðis fyrir jólin, alveg meiriháttar að hafa ykkur heima, reyndar hafði ég það of gott um jólin og langar svo ekkert að hella mér aftur í hversdagsleikann! En ég er strax farin að hlakka til að fá ykkur í sumar, og þá með stoppi hér í borginni:)

    Knúsaðu strákana fyrir mig og heyrumst:*

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  2. Já Rakel, ég er ánægð með snjóinn þrátt fyrir kuldann. Hef ekki farið lengra en út á svalir í dag ;) Færið á götunum bíður ekki upp á bílarúnt í dag, er að hugsa um að fara út að labba með gaurana á eftir. Vorum að fá okkur hafragraut til styrkingar. Ég var farin að titra af "svengju" enda dreif ég í það að taka upp úr töskunum. Seydi var að fara svo nú get ég ryksugað en hann hefur varla farið úr símanum í morgun.

    Mér finnst fínt að koma í hversdagsleikann þrátt fyrir að hafa haft það gott um jólin. Ekki skemmir fallega vetrarveðrið fyrir :)

    Hlakka líka til að koma og stoppa hjá ykkur í borginni. Förum í Perluna og fáum okkur kakó :D

    Knús til baka

    SvaraEyða
  3. Hæhæ og gleðilegt nýttt ár.
    Já þetta er svona yfir hátíðirnar, ekki hægt að gera allt á stuttum tíma og fólk að njóta þess að vera með sínum nánustu. Datt í hug að brenna á Húsavíkina en svo var alltaf eitthvað um að vera hjá mér þannig að það hafðist ekki um þessi jólin. En það væri gaman að hittast í sumar...ætti að geta fundið tíma og kíkt á þig:)
    Bestu kveðjur til ykkar allra.
    Heiðrún

    SvaraEyða
  4. flott síðan svona...

    gott að vera komin með þig í samband aftur! hér snjóar aftur núna, risastórum flygsum - alveg ekta jólaveður hjá mér í dag, en ég veit að þetta verður skammvinn sæla þar sem spáð er rigningu með tilheyrandi þrumuveðri síðar í dag...

    ég hef bara farið einu sinni heim um jól eftir flutningana miklu og ég fann akkúrat þetta, að vinir voru svo uppteknir í ættingjum sínum að það gafst ekki tími til að sinna MÉR!

    ég stefni á heimferð í sumar, og það langa svo að við ættum ekki að fara á mis við hvor aðra - og ég rata alveg á garðarsbrautina svo vertu viss... þú munt þurfa hella upp á kaffi fyrir mig!

    SvaraEyða
  5. úbbs, gleymdi að nefna nýju myndina af þér - mér finnst þú svo flott svona alveg dökkhærð, berð það svo vel!

    SvaraEyða
  6. Hvernig væri að ég kíkti nú á þig Heiðrún mín? Verð endilega að sjá nýja heimilið þitt og svona. Stefni að heimsókn á þig í sumar :)

    Takk fyrir hólið Stella mín, ég er mjög ánægð með mig svona dökka og "stuttklippta" ;)
    Stefnum jú á sumarferð til Íslands, það verður þá á milli 2. júlí og 14. ágúst. Það er alltaf heitt á könnunni á Garðarsbraut.

    Knús úr snjónum, vorum að koma inn frá því að renna okkur fyrir framan leikhúsið :):):)

    SvaraEyða