föstudagur, 9. janúar 2009

Kuldi og snjór

Það var kalt að fylgja Julian í skólann í morgun, eitthvað um -10° en sem betur fer stillt veður. Sólin var að koma upp og öll tré fallega héluð. Það mætti halda að ég ætti heima í Ölpunum núna. Mér líkar þetta vel, gæti vel vanist svona veðri. Allt er eitthvað svo rólegt, allir keyra hægar, labba hægar og allt er eins og pakkað inn í bómull. Nú hafa lúffurnar og 66°N húfan frá Rakel komið sér vel plús þykki góði heimaprjónaði trefillinn frá Unni. Gott að eiga góðar systur :)

Vikan hefur verið góð, strákarnir hlökkuðu til að fara í skóla/leikskóla. Tvo daga fórum við að renna okkur og þess á milli hef ég tekið niður jólaskrautið, þrifið, þvegið, sett upp gardínur, keypt í matinn, gengið frá töskum upp á loft ofl. ofl. Hef farið hér eins og stormsveipur um undanfarna daga. Á eftir að skúra frammi en ætla að blogga aðeins fyrst svona í tilefni föstudags. Veit ekki hvort við förum að renna okkur um helgina, hætta á að brekkan verði FULL. Þar sem mínir strákar eru glannar á þotum gætu orðið slys, svo eru margir á hraðskreiðum trésleðum og sumir kunna ekki að beygja.

Alveg merkilegt hvað sumir eru illa klæddir í kuldanum. Fólk er að renna sér í gallabuxum! Sumir eru á strigaskóm hér á götunum, húfu-, vettlinga- og trefilslaust. Mætti halda að það fengjust ekki kuldaskór í búðunum hérna. Þegar fer svo að hlýna munu örugglega margir liggja í rúminu með einhvern vírus sem herjar á vandmeðfarið ónæmiskerfið.

Ég fæ bara ekki nóg af því að líta hér útum gluggann. Snjór á þökum, héluð tré og sól. För eftir þotur skreyta svo himininn. Ég elska fallegt vetrarveður :)

Óska öllum góðrar helgar. Verið góð við hvert annað.

5 ummæli:

  1. yndislegt!

    hér er mjallarhvítur púðursnjór nýfallinn yfir allt, sem mokað var til í gær - og ilmurinn minnir mig á þvott sem hefur fengið að frjósa út á snúru...

    SvaraEyða
  2. Einmitt Stella! Ég fann þessa lykt hér á mánudaginn, snjólykt er indæl.
    Góða helgi

    SvaraEyða
  3. Fyrirgefðu en er ég ekki að lesa blogg hjá konu sem getur ekki búið á Íslandi af því að þar er svo kalt og kemur snjór á veturna? Unns

    P.S. Sammála frú Stellu með frosnu þvottalyktina.

    SvaraEyða
  4. Þú ert að misskilja Unnur. Eitt af því fáu sem ég sakna frá Íslandi, fyrir utan ykkur, er almennilegur vetur. Veturinn hefur EKKERT með það að gera að mig langi ekki til að búa á Íslandi.

    SvaraEyða
  5. Ég byrjaði nú bara í morgun að ganga frá jólunum ofan í kassa... er sko ekki búin en ákvað að kíkja aðeins á netið meðan Rakel sefur. Hér á Íslandi, amk á Dalvík, er fólk líka illa klætt. Reyndar flestir sem klæða sig vel en um daginn var mjög kalt og við Hildur vinkona vorum að labba heim af mömmumorgni þegar við mættum skólastelpu á leið heim í hnébuxum og strigaskóm með bert á milli!!! Og við vorum að frjósa úr kulda, held þetta hafi verið einn kaldasti dagurinn hingað til. Ég vildi óska að ég ætti hlý föt, þá meina ég góðar snjóbuxur og úlpu, á helling af húfum og vettlingum og treflum en hef enn ekki fundið buxur sem passa mér svo ég er alltaf í innibuxum úti sem er ekki spes í þessum vetri.
    Nú er búið að snjóa helling um helgina og spáð 18-20 stiga frosti á morgun... úfffff hvað það verður kalt... ekki viss um að ég fari mikið út úr húsi þá.

    SvaraEyða