miðvikudagur, 14. janúar 2009

Það liggur við að ég hermi eftir minni kæru vinkonu, Stellu Ameríkufara, og lýsi eftir lesendum bloggsíðunnar minnar! Allir dottnir í facebook, nema þau gömlu og Unnur ;) Mig grunar nú að einhverjir lesi bloggið mitt en hafi svo sem engu við að bæta eða leggja orð í belg. Það er líka allt í lagi en ég viðurkenni alveg að mér líður eins og Stellu........ég kíki reglulega á síðuna og vonast eftir að fleiri hafi skilið eftir sig spor.

Æi hvað er ég að kvarta?! Ég er ekki miðdepill himingeimsins, ekki ofurbloggari ársins á moggablogginu (það virkaði ekki hjá mér) né eitthvað megabeib sem setur inn pósumyndir af sér reglulega. Ég er bara venjuleg kona sem býr í útlöndum. Ég er ekkert fræg, er ekki í námi, hef ekki afrekað neitt merkilegt. Mér hefur stundum fundist eins og fólki finnist ég "þurfa" að vera að gera eitthvað rosa merkilegt, bara af því að ég bý erlendis??? Hvað segið þið sem búið eða hafið búið erlendis? Reyndar er ég búin að vera hérna svo lengi að líkurnar á því að ég slái í gegn eru sáralitlar, ha ha ha. Birtist reyndar í bæjarblaðinu í fyrra en það var allt og sumt.

Nú er barnaland eitthvað í "öppdeiti", síðurnar virka stundum, stundum ekki. Ætlaði að setja inn myndir áðan. Þið fyrirgefið mér það, þið barnalandsskoðarar.

Snjórinn er farinn, nokkrir skítugir haugar eftir. Ætli það komi nokkuð meiri snjór þennan veturinn??? Fyndið hvað mér fannst "hlýtt" síðustu daga, alveg 5°! Það kom smá vorfílingur í mig, fuglarnir sungu enn hærra og mér fannst ég finna vorilm. Áttaði mig samt á því að það er miður janúar, mánuður í árin 39...... hvað svo tekur við ári síðar, ÚFF! Hvernig ætli mömmu líði að eiga barn sem er að verða fertugt?! Ætli það sé ekki skrýtin tilfinning?

Oh hvað ég væri til í að fara á þorrablót um helgina. Shit ég vildi að ég væri milljónamæringur núna. Myndi bara hoppa til Íslands og skreppa á þorrablót. Ansinn sjálfur. Vona að fólk skemmti sér vel.

Hrikalega eru mörg spurninga- og upphrópunarmerki í þessu bloggi!!!!

Var dugleg í morgun og fór út að labba, þrátt fyrir þoku og frekar drungalegt veður *klapp á bak*. Eitthvað verð ég að gera til losna við þessi a.m.k. 2 kg sem komu á Íslandi. Er reyndar á svipuðu róli og ég var fyrir flensuna miklu. Það var bara svo gott að sjá annan tug á vigtinni..........best að fá sér vatn.

Gott kvöld

10 ummæli:

  1. haha, eina sem stakk mig í augun er að þú kallaðir þig bara einhverja konu - inga, við erum stelpur, að það bara stórmerkilegar - alla vega innan okkar hrings...

    ég alltaf í sömu afneituninni með minn aldur, finn mig ekki eldast og þvertek fyrir að sjá það í speglinum!

    já það er rólegt á blogginu, en ég held það aukist traffíkin er líða fer á árið - bara svona eins og allt mun jafna sig, er það ekki?

    hér er allt á KAFI í snjó - og það á að fara í 30 stiga frost í kvöld, júhú...

    SvaraEyða
  2. Ég veit Stella, mér líður hálf illa þegar ég skrifa þetta orð "KONA"
    Auðvitað erum við stelpur :D

    -30°, úff úff og brrrrrrrrrrr

    Rokin í Aðþrengdar......ný syrpa að byrja, þessi sem gerist 5 árum seinna.

    SvaraEyða
  3. Hæ hæ. Mér líður ágætlega þakka þér fyrir meðan eg er sjálf 60 mínus. Gott ráð hjá Stellu að neita að horfast í augu við spegilinn. Maður er aldrei eldri en maður vill vera og hana nú. Kveðja og knús. Mamma (gamla)

    SvaraEyða
  4. Þú ert sko ekki gömul mamma, þessvegna hlýtur þér að finnast furðulegt að eiga barn með grá hár!
    Þér mun örugglega ekkert líða verr í haust þegar árin 60 eru búin.

    Góða nótt

    SvaraEyða
  5. Sæl Inga og gleðilegt nýtt ár.
    Ég les bloggið þitt oft en kvitta sjaldan. Það er gaman að fá fréttir af þér og þínum. Ég náði tuttugu ára aldrinum fyrir "nokkrum" árum og hef verið tvítug síðan, alla vega finnst mér það. Stefnan er sett á þorrablót og það verður örugglega frábært.
    Bið að heilsa í bæinn þinn.
    Hermína.

    SvaraEyða
  6. Blessuð Hermína og gaman að sjá þig hér :)
    Erum við ekki allar bara 20+?

    Góða skemmtun á þorrablóti :D Ég verð með í anda.

    Kveðja á Víkina

    SvaraEyða
  7. Hæ:)
    kvittikvitt.
    Ætla ég hér með að kvitta við hverja færslu hjá þér en bara sundum með "kvittikvitt" til að sýna lit og hin skiptin með almennilegu commenti. OK;)

    kveðja,
    Rakel
    p.s. fjörutíu er enginn aldur, það er jú tölustafur en segir alls ekki allt, það eru nefnilega ansi stór staðalfrávik upp og niður...sumir eru ellilegir og sumir unglegir óháð aldri...og þú ert svo heppin að vera í seinni hópnum:)

    SvaraEyða
  8. Þú ert indæl elsku Rakel, á fullu í próflestri en gefur þér tíma til að kvitta hjá mér :*

    Og takk fyrir hólið....mér finnst ég ekkert alltaf ungleg, sérstaklega ekki þessar hangandi kinnar á mér! Þið systur eruð nú enn unglegri en ég, hlýtur að vera ættgengt, sjá ömmu t.d. :)

    Knús og gangi þér vel í prófi.

    SvaraEyða
  9. Hæ Inga. Ég les nú enn bloggið þitt en stundum er það orðið nokkurra daga gamalt þegar ég mæti á netið.
    Þú ert víst búin að gera margt merkilegt, það er algert undur að þú skulir geta búið svona langt frá okkur öllum í svo langan tíma, ég gæti það ALDREI, þú átt 100% fleiri börn en ég og listinn gæti verið lengri.
    Þú skalt bara koma á þorrablótið á næsta ári því þá er ÉG í nefndinni, já já, fékk að vita það þegar Viddi kom heim af slökkviliðsvaktinni um nóttina. Aldeilis frábært...
    Ef þú ert með fleiri hrukkur en við systur á klakanum, þá er það út af því að sólin skín meira á þig en okkur...
    Annars er ég bara nokkuð ánægð með þig..
    Bestu kveðjur til ykkar, knús á strákana, 2 yngstu sérstaklega. Unns.

    SvaraEyða
  10. Æ Unnur, var að sjá þetta kvitt núna.
    Þú ert yndi :)
    Já hvað ég væri til í þorrablót á næsta ári. Þú reddar þessu nú.

    Knús

    SvaraEyða