mánudagur, 19. janúar 2009

Var í smá nostalgíukasti hérna í dag, eða varla hægt að segja nostalgía en við vorum að horfa á video af strákunum frá 2005. Mamma og pabbi komu þar fyrir en þau heimsóttu okkur í apríl. Strákarnir hlógu sig máttlausa af sjálfum sér.........je hvað Henrik var (og er) mikil dúlla. Þetta var skemmtileg stund.

Fór í vinnuna í morgun, eins og aðra mánudaga. Skráði einn bíl sem við vorum að selja og afskráði annan, þreif aðeins, þvoði eina vél, gerði kaffi handa tveimur kúnnum og þreif bílinn minn. Hann var orðinn ansi skítugur að innan, oj oj.

Er svo bara heima í dag. Keypti pítubrauð og við borðuðum það með grænmeti og ljúffengri pítusósu frá Gunnari, mmmmmmmmmm Gott að þurfa ekki að elda í kvöld. Borðum bara eitthvað snakk.

HM í handbolta í algleymingi, er m.a.s. sýnt á RTL! Það hefur ekki verið áður. Akkúrat núna eru Þjóðverjar að spila við Alsír. Ég hef verið að kíkja eftir úrslitum á mbl.is og svona en ekkert fundið??? Engin extra síða um mótið en það er sjálfsagt vegna þess að Ísland er ekki með, því miður.

Hryllilegt morð átti sér stað fyrir um viku síðan. 8 ára stelpa af tyrkneskum ættum hvarf í Paderborn á mánudegi og fannst líkið af henni við vatn í Sauerland, 60 km frá Paderborn, að mig minnir á föstudeginum. Hún hafði verið misnotuð.......hún ætlaði bara að skreppa til vinkonu að leika....vinkonan var ekki heima svo hún fór aftur.......og kom aldrei heim :( Hver andskotinn gengur á í hausnum á þeim sem fremur svona glæp? Ég yrði galin ef ég reyndi að skilja það. Gæti aldrei verið sálfræðingur. Ég er fegin að Julian vill að ég labbi með sér næstum því alla leiðina í skólann og ég sæki hann aftur. Maður veit aldrei, þessir pervertar virðast vera allsstaðar. Ég fæ hroll af því að hugsa um svona mál. Vonandi næst pervertinn sem fyrst.

Farið vel með ykkur

6 ummæli:

  1. ahhh já mánudagur - svo sem gott að leyfa öllu að detta í reglulega gírinn... minn mánudagur kemur á morgun, þá fara krakkarnir loks aftur í skólann (annars er spáð snjóstormi...)
    já þessir kolgeggjuðu andskotar leynast allstaðar - og það versta er að sumir komast upp með allt, liggja undir grun, en eru of slungnir til að hægt sé að sanna upp á þá glæpina - samanber nágranna minn sem hefur drepið tvær af sínum fjórum eiginkonum!

    þarf að fara á snjóþotu að leika með krökkunum, get ekki sent þau sjálf niður að jónasartúni - bílferð fylgir hér...

    SvaraEyða
  2. Vonandi sefur þú vært og rótt núna Stella mín. Stundum getur hversdagleikinn verið góður og reglulegi gírinn oft nauðsynlegur.

    Merkilegur dagur hjá ykkur í dag. Hér verður þetta allt sýnt beint í TV, kannski maður kíki seinni partinn.

    Kveðja úr sól og auðri jörð.

    SvaraEyða
  3. Hæhæ er bara rétt að kvitta fyrir innlitið. Kíki af og til inn á bloggið þitt. Fyrir mér ert þú afar merkileg manneskja, þar sem þú hefur sett spor þín í líf mitt (væmoið en satt!!!) Maður þarf ekki alltaf að afreka eitthvað rosalegt til að vera merkilegur! Annars er gaman að fylgjast með þér hérna, reyni að vera duglegri við að kvitta. Eigið góðan dag:)
    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða
  4. Æi Heiðrún þú ert svo sæt í þér þú brosmilda stúlka ;) (Kona er svo konulegt orð, þú skilur)

    Ég fylgist líka með ykkur á barnalandi og á facebook, ofcourse.

    Knús og kveðjur

    SvaraEyða
  5. ji hvað það hefur verið gaman að skoða "gömul" myndbönd af strákunum:) fyndið hvað maður er oft pirraður þegar vidiocamerur eru á lofti en ansi glaður þegar horfa á seinna meir;)

    Hryllilegt með þessa stúlku, meiri viðbjóðurinn sem til er....senda svona lið beint í rafmagnsstólinn þegar það finnst!!
    Það var einmitt í fréttunum áðan að alræmdur ógeðslegur barnaperri sé á reynslulausn og býr núna í breiðholti - REYNSLULAUSN! Alveg furðulegt að slíkt fólk fái sjéns eftir sjéns!

    KNÚS Á ÞIG OG ÞÍNA:*
    rakel

    SvaraEyða
  6. Já Rakel, það var gaman að skoða en því miður er ekki mikið til á spólum. Og þar sem vélin er biluð get ég ekki spilað þetta yfir á spólur. Það er seinni tíma verk að reyna að koma þessu af litlu spólunum á "venjulegar". Eða jafnvel digital leiðina...

    Reynslulausn, reynslulausn, ég er nokkuð á því að það sé ekki hægt að stoppa þessa perverta af, engin lækning til. Já þetta er bara hræðilegt allt saman.

    Knús til baka

    SvaraEyða