laugardagur, 14. febrúar 2009

14.febrúar

Fyrir 39 árum var ég alveg að koma í heiminn, mér skilst að ég hafi fæðst rúmlega 8 og akkúrat núna er klukkan 7:50 á Íslandi. Hérna er hún að verða níu og ég var að skríða á fætur, alltaf gott að sofa lengur. Kallarnir sofa nú ennþá þrátt fyrir að sólin skíni úti. Það liggur smá föl yfir grasi, ég man ekki eftir því að það hafi verið svona kalt hér á afmælinu mínu. Held bara ekki enda kominn miður febrúar og vorið skammt undan.

Núna heyrist eitthvað innan úr herbergi, Julian sýgur upp í nefið. Einhver skítur sem vill ekki fara og heldur ekki verða almennilegt kvef. Dagurinn byrjaði nú gáfulega........ég dottaði í gærkvöld en vaknaði við væl í Henrik. Hann var að pissa, náttbuxnalaus og ég fylgi honum inní herbergi. Það fyrst sem ég sé er GUBBA í rúminu hans........æ æ litli vinurinn. Hann byrjar aftur að kúgast og nær að fara fram á bað og hitta því sem eftir var í klósettið. Æi elsku kallinn. Ég sendi hann inní rúm til pabba síns og fer að þrífa æluna sem var líka á gólfinu og ég hafði stigið í......... Þegar þetta var allt búið, fer ég inní rúm, lít á klukkuna og............hún sýnir 0:00.

Til hamingju með afmælið ÉG!

6 ummæli:

  1. Góð byrjun á afmælisdeginum;)... eða kannski frekar aðdragandinn að afmælisdeginum, byrjaði sennilega ekki fyrr en þú varst lögst:D
    Til hamingju með afmælið elsku Inga mín, njóttu dagsins... og þessa síðasta árs sem þú ert 30 og eitthvað:D Lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en 29!!:D

    SvaraEyða
  2. æjæj, ekki alveg draumabyrjun á afmælisdegi;)
    Vonandi verður hann ekki slappur í dag, leiðinlegt á svona merkisdegi.
    En innilega til hamingju með afmælið í dag og njóttu dagsis... gerðu eitthvað fyrir sjálfan þig og láttu gaurana stjana við þig.

    KNÚS & KOSS Á ÞIG UNGLEGA SYSTIR MÍN.)
    kv. rakel

    SvaraEyða
  3. Obb obb ekki svo góð byrjun á góðum degi en vonandi er hann bara búinn að spýja þessu upp úr sér kallinn. En til hamingju með daginn njóttu hans vel og hafið það öll sem allra best.
    Kv Kristey og gengi.

    SvaraEyða
  4. bestu afmælisóskir...

    SvaraEyða
  5. Til hamingju með daginn sætasta besta!

    Hlýjar kveðjur, Alva.

    SvaraEyða