Stórafmæli í dag! Hundraðasta bloggið mitt hérna á blogspot. Og ég er ekkert að fara að hætta að blogga, sama hvort að einhver les þessa þvælu eða ekki......
Svona í áframhaldi af afmælinu mínu ætla ég að segja hvernig dagurinn var. Eftir morgunmatinn fór Seydi á verkstæðið og ég ætlaði svo að keyra þangað seinna. Við færum svo saman til Essen. Ég byrjaði samt á því að koma við hjá Bärbel vinkonu og þar mátti ég loka augunum til að sjá ekki óvæntu uppákomuna sem beið mín. Þegar ég kom inn í stofu var spilað afmælislag, búið að raða pökkum á borðið, kveikja á kerti og skreyta stól með blómum........þetta gerði hann Florian fyrir mig. Hann er alger dúlla og ég er ein af hinum útvöldu sem hann talar og líkar við. Það er sko ekkert sjálfgefið. Hann hafði m.a.s. keypt handa mér gjöf, lítið "bangsablóm" eða blóm úr bangsaefni. Frá mömmu hans fékk ég handáburð, bók um "súpermömmur" (sem allt kunna og geta, og gera allt til að aðrar mömmur fái samviskubit) og gjafakort í handnudd.........ekkert smá flott hjá þeim mæðginum. Hvað ætli bíði mín á næsta ári? :)
Við mæðgin brunuðum svo á verkstæðið, kláruðum nokkra reikninga þar og keyrðum svo til Essen. Mig hafði langað til að sjá nýja "mollið", Lembecker Platz, í langan tíma. Þó það væri laugardagur ákváðum við að hella okkur í brjáluðu kaupæðismenninguna.
Við vorum nú aðallega að skoða, keyptum okkur reyktar pylsur, komum við í bakaríi og drukkum kaffi. Strákarnir fengu kleinuhringi og Capri Sonne. Löbbuðum svo í gegnum mollið og inní bæ. Mikið um að vera, fullt af fólki, engin kreppa hér, sýnileg allavega.
Í miðum bænum var skautasvell en það var of fullt af mínu leyti, mig langar að skauta hratt þegar ég skauta svo að við létum það duga að leyfa Julian að fara eina ferð á slöngu. Löbbuðum aðeins um áður en við héldum til baka í gegnum mollið og í bílinn.
Brunuðum til Duisburg til "litlu Istanbul". Þar eru milljón tyrkneskir veitingastaðir, milljón tyrkneskar búðir með brúðarföt, milljón tyrkneskar matvörubúðir osfrv. Fórum á staðinn "okkar" og ég fékk mér lamb á teini með hrísgrjónum, svakalega gott. Vantaði bara sósuna en Tyrkir eru ekki miklir sósumenn, allavega ekki heitar sósur.
Þetta var indæll dagur. Ég á bara eftir að fá hjólið mitt. Kannski við náum í það í kvöld.
Gleymdi alveg að segja að Seydi færði mér RISA stóra rós + grænt með,þegar hann kom frá því að kaupa rúnstykki. Vonandi var ekki smurt of miklu ofan á verðið svona á Valentínusardegi...... þeir eiga það til, blómasalarnir blessaðir.
Jæja, ætla að búa til pizzudeig, strákarnir eru að fara að spila Ólsen Ólsen. Ég veit nú ekki alveg hvernig það mun ganga en við sjáum til.
Knús
Mikið eru Barbel & Florian almennileg;) og lítur út fyrir að hafa verið fínn dagur þrátt fyrir lítil slappiaf...
SvaraEyðaKv. R
p.s. ég ætla að halda áfram að lesa;)
Segi það sama og Rakel voðalega hafa þau mæðgin verið almennileg. Svo gaman að fá svona sem kemur á óvart. En gott að dagurinn var ánægjulegur. Núna þegar að ég er búin að fatta þetta blogg mun ég koma reglulega og lesa.
SvaraEyðaKær kveðja Kristey og gengi
þú hefur átt súperljúfan dag - og ekki amalegt að eiga svona góða vini... (og svo klippa honum ;-) )
SvaraEyðaverðum í bandi...
til hamingju með hundraðasta bloggið!
Hæ Inga,
SvaraEyðaalltaf gaman að lesa bloggið þitt og takk fyrir að hafa það opið og leyfa manni að fylgjast með lífi þínu í Þýskalandi.
Síðbúin afmæliskveðja, það er greinilegt að þú hafir átt góðan dag og daga með fjölskyldu og vinum.
kveðja
Jóna Matt
Já stelpur, það er gott að eiga vini þar sem þeir eru af skornum skammti hérna í Þýs. Var að panta mér tíma í handnuddi, fer 27.2.
SvaraEyðaÉg vildi ekkert eiga neinn "slappa af dag" heldur fara eitthvað, nota tækifærið til að sjá þetta nýja moll (sem er enn að stækka í haust). Allt sem ég keypti var peysa á Julian í WE. Já og einn gloss handa mér :)
Það verður seint sem ég loka mínum síðum, þ.e. bloggi og barnalandi. Ég vil að allir geti lesið, jafnvel leyndir aðdáendur, hahaha.
Kuldabolakveðjur úr 3°.
Hey, systir... Ég skal ekki gera athugasemdir við nein færslur á síðuna framar. En ég vil að þú haldir áfram að blogga. Bara skemmtilegt. Ertu búin að finna vinnu handa mér úti? Mikið agalega langar mig í tyrkneskan mat, fæ alltaf vatn í munninn þegar þú nefnir hann, DÖNER..... ohh.... æði.
SvaraEyðakveðja í bili...
HjB
Nú skil ég þig ekki alveg kæri brói?! Afhverju ættir þú ekki að gera neina ath.semdir?
SvaraEyðaEr ekki búin að finna vinnu handa þér, reyndar vanta mörg þúsund kennara en það er víst mjög erfitt að fá stöðu nema vera Þjóðverji OG koma frá sama fylki......allt opinberir starfsmenn. Ég skal leita betur ;)
Knús