Bolludaginn runninn, hvað ætli margir bossar hafi verið "bollaðir" í morgun? Ég man hve gaman það var að búa til bolluvönd í skólanum, þar var mikið vandað til.
Hér er þessi siður öðruvísi. 11.nóvember byrjaði "Karneval" eða 5.árstíðin. Hápunkturinn er svo þessi vika frá síðasta fimmtudegi fram á miðvikudag. Sumir eru fullir allan tímann, þ.e. þess viku.........Fullorðið fólk fer á "Karnevalssitzung" eða nokkurs konar samkundu þar sem fólk er í búningum, mikið drukkið og sagðir furðulegir brandarar í rími. Annars er ég ekki alveg inn í þessu, hef aldrei farið á svona og hef lítinn áhuga.
Fór með strákana í skrúðgönguna sem er alltaf á bolludag eða "Rosenmontag". Vagnar keyra hring í bænum, lúðrasveitir og félög labba með. Nammi er hent af vögnunum og komu strákarnir með þokkalega mikið af ódýru nammi og poppi heim. Við erum hundblaut en það rigndi næstum því allan tímann. Ég ákvað að skella á mig nornahattinum hans Julian, setti á mig skikkju og málaði 3 svarta punkta í andlitið, svartar varir og tennur :) *Abrakadabra* Julian var ekki í búning og Henrik var með brunaliðshattinn sinn.
Ég bakaði vatnsdeigsbollur í gær. Þær tókust svona la la. Ég hrærði ekki nóg áður en eggin komu í deigið. Verð greinilega að baka þær oftast svo þær takist nú á bolludaginn......Það má samt alveg borða þær ;) Átti m.a.s. rabarbarasultu síðan 17 hundruð og súrkál.
Hef ekkert meira að segja. Man ekki eftir neinu spennandi í augnablikinu. Er hálf slöpp, búin að vera með loft í maganum síðan á laugardagskvöldið og einhvern veginn virðist líkaminn vera í alhreinsun. Það þarf enga Jónínu fyrir mig...........samt ekkert langt til Póllands fyrir mig!
Bolla, bolla.
já það var alltaf þvílíka stuðið þegar bolluvöndurinn var gerður og svo maður brunaði inní hjónaherbergi og bollaði þau gömlu þegar dagurinn rann upp:) ...og þá líka borðaði maður 10-15 bollur, ekki eina auma einsog núna, alveg stútfullur ísskápur á Garðarsbrautinni alltaf af bollum, namminamm:)
SvaraEyðaVonandi var stemming í bænum hjá ykkur þrátt fyrir dembuna!!
kveðja, Rakel
og já, vona að maginn fari að komast í lag, vont að vera svona uppþemdur:(
kvitt kvitt, er á hlaupum...
SvaraEyðaJá ég man þegar ég var í Þýskalandi þegar við fórum til Köln á karnevalið þar. Lestarferðið var mjög skemmtileg, man að við hlógum mikið.
SvaraEyðaSkemmtið ykkur á Karnivalinu.
kv,
Heiðrún
Ég át nokkrar bollur á sunnud. og í gær. Bakaði "mini" vatnsdeigsbollur, engar hlussur. Maginn er að koma til :)
SvaraEyðaFór ég með til Köln Heiðrún? Vorum allavega ekki í skrúðgöngunni þar. Var þetta þegar það var tívolí við dómkirkjuna? Verð að kíkja á myndir á eftir heima.
Ekki éta yfir ykkur í dag....