Ég bara verð að koma þessu frá mér......
Fann áðan að mér var bumbult, fannst húðin vella eitthvað meira en vanalega, já mér fannst ég bara FEIT! Fór á vigtina-geri það nú vanalega ekki á kvöldin-en ég bara varð.......leist ekkert á töluna sem var þarna.....fór úr því sem ég var í........leist heldur ekki á töluna. Ansans hvað það munar um þessi 3 kg sem ég var léttari þegar ég flaug til Íslands um jólin. Ég finn mikinn mun á bara 1 kílói. Nú verð ég minnka nartið. Ég borða súkkulaði á hverjum einasta degi (svo ég muni). Var að enda við að borða 5 "mon cheri" bita. Nú drekk ég bara vatn það sem eftir er kvöldins. Æi já, var víst að borða 2 kúlur af ís sem Seydi kom með frá ísstaðnum góða.
Ég VEIT að ég þarf að komast í einhverja rækt, þó ekki væri nema labba meira. Ég er að hugsa um að hætta fyrr í vinnunni annað slagið og labba aðeins áður en ég sæki gaurana. Hjólaði nú töluvert í dag. Veðrið bauð upp á útiveru, 10° hiti og sól annað slagið. Því miður er spáð kólnandi aftur. Ég var alveg að venjast þessu vorveðri.
OK, þá er ég búin að koma þessu frá mér. Varð að koma þessu "á blað".
Ætla að horfa á mynd í TV og drekka vínberjasafa, nei ekkert vín, bara vínberjasafa með kolsýru.
Góða helgi
þetta er bara svona smávetrarlag á kroppinn til að maður þurfi ekki að fara í ullarundirbrók...
SvaraEyðaég lofa sjálfri mér á hverjum vetri að passa mig - blikka augunum og það er orðið of seint, gormurinn í vigtinni vælir, og ég skil ekkert í því hvernig mér hefur í hva, tuttugastaogfimmta sinn tekist að fara á bak orða minna...
góða helgi mín kæra
Þeim mun oftar sem ég hugsa um það að losna við þessi kíló, þeim mun meira langar mig í "óhollt". Alveg staðreynd og alveg óþolandi.....
SvaraEyðaKnús
Ég er líka þannig að ef ég ákveð að "fara í megrun" eða "borða hollara" langar mig bara í eitthvað óhollt. Byrja oft vel í svona 3-5 daga, kannski viku, en svo fer allt í klessu. Ég er núna byrjuð í leikfimi 2svar í viku og ég er samt ekki að nenna því... líður æðislega þegar ég er búin í tímunum en finnsta agalega erfitt að drífa mig af stað, hef nú nokkuð staðið mig í þessu ennþá, en búin að sleppa einu skipti. En ég get ekki farið að borða hollara þó ég sé byrjuð í ræktinni, hef þó reynt að halda mig við "nammihelgar", borða yfirleitt ekkert nammi á virkum dögum, bara á laugardögum og sunnudögum. Málið er bara að koma sér af stað, með aga... en það er eitthvað sem ég á voðalega erfitt með... svo ég skil þig MJÖG vel:D
SvaraEyðaGleymdi einu... til hamingju með stóra strákinn þinn í gær:D
SvaraEyðaJá við skiljum hvor aðra Maja. Ég er nú ekki það dugleg að fara í leikfimi eða aðra rækt.... aginn er líka mitt "vandamál".
SvaraEyðaTakk fyrir kveðjuna :)