fimmtudagur, 19. febrúar 2009

Ég fékk afmælispakka frá Hjálmari í gær. Í pakkanum voru diskarnir "Hér er draumurinn" með Sálinni og súkkulaðisápa frá Guggu........frábært. Setti 1. diskinn aðeins í tækið í gær og fékk algert "flashback". Skemmtilegir tímar þegar ég var að skottast á sveitaböllunum með vinkonunum. Sama hvort ég var bílstjóri eða ekki, það var alltaf gaman. Sveitaböll eru víst varla til í dag. Það finnst mér fúlt. Ekki að ég myndi endilega fara heldur bara fyrir unga fólkið í dag. Ég er ansi hrædd um að ég yrði alger "amma" ef ég færi á sveitaball í dag. Eða bara út yfir höfuð, allavega á Íslandi.

Hérna hef ég þó tækifæri til að fara á "Ü 30" partý eða "Yfir 30" partý. Hef reyndar bara farið einu sinni, um áramótin þegar Hjálmar heimsótti mig. Af hverju er ekki haft svona kvöld annað slagið á Gamla Bauk??? Okkur langar alveg eins til að dansa og dilla okkur eins og unga fólkinu. Fyrir enn eldri eru svo "Ü 50" dansiböll og "Tanztee" fyrir eldri borgara.

Ég hef sko ekkert á móti því að skemmta mér með yngra fólki EN það væri líka gaman að hafa ball bara fyrir mína kynslóð. Finnst ykkur það ekki? Hérna er þetta algert "hit" enda er þetta fólkið með peningana.......eyðir miklu meira en yngri kynslóðin (í drykki). Oftast mæta um og yfir 3000 manns í þessi partý hér í RE. Í Essen er þetta víst enn stærra batterí.

Jæja, hvað um það. Lítið að gera í vinnunni. Yfirmaðurinn bara ekki mættur enn og klukkan orðinn meira en 11. Ég sópaði verkstæðið áðan til að halda á mér hita. Hitastigið er um frostmark úti. Ekkert vor hér og ekki sýnist mér vorið hafa staldrað lengi við á Fróni.

Ég er búin að fá hjólið mitt. Við drifum okkur í metro í fyrrakvöld. Tókum strákana bara með þó að klukkan væri að verða átta. Mér er sko skít sama hvað fólk hefur haldið en börn hér eru vanalega farin að sofa um þetta leyti ;) Þar sem "Karneval" byrjar í dag eru búðir fullar af alls konar búningum og dóti. Við keyptum slökkviliðshatt handa Henrik og Seydi vildi endilega kaupa byssur handa strákunum. Þeir voru alveg sjúkir og keyptar voru 2 byssur og skot....Ég var ekki alveg á því að leyfa þetta en mér fannst svo gaman að sjá hvað Seydi var pabbalegur að skoða byssur og skot, prófa og gantast með strákunum :) OK, þeir fengu leyfi. Margir vinir mínir "í den" áttu byssur og ég sjálf keypti stundum skot til að "sprengja". Ekki veit ég til þess að einhver af þessum vinum mínum hafi skotið manneskju.........hvað þá ég sjálf :D Mér finnst líka bara fyndið að skotin hafa ekkert breyst......ræmurnar góðu eru alveg eins og fyrir 30 árum! Annað "flashback".

Ok, þetta er nóg. Ætlaði sko ekki að skrifa svona mikið en ég bara get ekki hætt þegar ég byrja. Nenni varla að fara yfir þetta til að ath. villur.

Knús. Stórt knús á Hrefnu Ósk sem er 1. árs í dag.

3 ummæli:

  1. hehe ég er ekki viss um að móðir vor verði ánægð með byssukaupin!!! man ekki betur en að byssur væru bannaðar á okkar heimili og lengi vel notaði maður vísifingur í "byssó" þegar maður sá fórnarlamb ...þar til maður fór að fá í láni hjá öðrum;)
    Auðvitað eru byssur ekkert falleg leikföng en eins og þú segir, maður verður kannski ekkert frekar glæpon af því að leika með byssur;)

    Koss og knús í flashbackið;)
    kv. Rakel

    SvaraEyða
  2. Ég notaði nú óspart kindakjálka sem byssur, fékk svo lánað hjá vinum mínum "ekta" byssur. Já og sprengdi þessar skotræmur, eða hvað þetta nú heitir, með steinum!
    Ég er spennt að vita hvað þessa byssur er lengi kúl ;)

    Ég notaði líka vaxliti sem sígarettur, ekki reyki ég í dag.

    Góða nótt sæta

    SvaraEyða
  3. Já það er nú einu sinni öskudagur/karneval og ekkert spennandi að vera kúreki með enga byssu!!!!Þetta þarf að fá að fylgja með eins og prisnessusprotarnir hjá stelpunum. Svo eru börn svo klár að ef þau fá ekki "plat" byssur búa þau sér bara til byssur, eins og þið talið um hér að ofan, t.d. með spýtum, kubbum og fleira.

    Hafið það gott og gaman á Karneval.

    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða