mánudagur, 2. febrúar 2009

Ekki vann ég í lottó :( Einhverjir 2 unnu þessar 35 millur, sem sagt 17,5 millur á mann. Það gera í dag um 2.625.000.000.....eru þetta ekki um 2,5 milljarðar!!!! Ég held að þetta fólk þurfi ekki mikið að vinna það sem eftir er af lífinu. Ég meina þá þurfi, sumir vilja örugglega lifa sem eðlilegast þrátt fyrir þennan ríkidóm. Ætli ríkið komi ekki líka og taki eitthvað af þessu í skatt. Oh jæja, verði þeim að góðu.

Ilmandi skítafýla úti núna. Bændur hafa verið að bera á og vindáttin héðan af ökrunum er mjög óhagstæð fyrir mig. Er að lofta út og ilmurinn berst inn.....hef reyndar ekkert á móti smá skítafýlu en hún þarf ekkert endilega að vera inni hjá mér.

Julian var 1. daginn sinn í gæslu í dag. Ég ákvað að ná í hann fyrstu 2 vikurnar kl.14, svona meðan að hann er að venjast. Annars verður hann til 15 til að geta tekið þátt í íþróttum og til 16 á þriðjudögum en þá er "Kunst AG" eða myndmennt. Honum líkar vel, búinn að borða og læra heima, allt í góðum málum.

Henrik var með mér í vinnunni í dag, leikskólinn lokaður vegna starfsmannafundar. Seydi bauð okkur á McDonalds áður en við fórum heim. Ég fékk mér hammara með kartöflu"rösti" og beikoni, eitthvað svona vetrartilboð. Núna er ég södd.......ég sem ætlaði að vera með fisk í matinn í kvöld. Geri hann frekar á morgun.

Til hamingju með ríkisstjórnina þið þarna á Íslandi. Hvernig líst fólki á? Ekki spyrja mig um álit, hef lítið vit á þessu fólki og þeirra stefnum. Svo er bara að kjósa rétt í vor er það ekki? :)

Ein spurning til mæðra í lokin: Hefur ykkur stundum langað til að hætta í móðurhlutverkinu? Bara vera þið, KONUR? Mér leið þannig í gær, bara í smá stund samt. Er ég eitthvað skrýtin? Verð ég ekki bara að gefa mér meiri tíma fyrir MIG? Ég held að það sé allavega hluti af lausninni. (Ástæðan var sú að strákarnir hafa verið leiðinlegir að fara að sofa á kvöldin, eilíft spjall og brölt)

Góða viku, gott fólk.

10 ummæli:

  1. Sæl og blessuð. Nei ég skil þig alveg að vilja stundum hætta í móðurhlutverkinu, hef upplifað það. Það er ekki að maður vilji ekki hafa átt börnin sín...stundum vill maður vera maður sjálfur og geta farið og gert eitthvað án þess að hugsa fyrst um 3-5 manns. Ég bíð einmitt spennt eftir að hætta með barnið á brjósti..vil fara að eiga MIG ein!!!! Það er þó fyrsta skrefið. En börnin okkar eru yndisleg og ég vildi ekki án þeirra vera:)

    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða
  2. Æi gott að einhver skilur mig :) Takk Heiðrún......

    Það er einmitt þetta að geta bara ekki hlaupið út eða gert eitthvað þegar ÉG vil.
    En þetta fylgir auðvitað þeirri ábyrgð að hafa ákveðið að eignast börn.
    Segi líka eins og þú. "Ég vildi sko ekki án þeirra vera."

    Viðurkenni samt að stundum væri gott að hafa mömmu,pabba, bróður, systir, vinkonu, frænku/frænda eða bara einhvern til að "hjálpa" mér. Svona fyrir utan Seydi.

    Nú fer ég að finna mér barnapíu!

    SvaraEyða
  3. Ég veit auðvitað ekkert hvernig er að vera í móðurhlutverki...en Inga, jú það er kominn tími á barnapíu! Þú þarft að eiga meiri tíma fyrir bara þig og þó það væri ekki nema bara til að vera með tærnar upp í loftið í smá stund eða kíkja í nudd eða bíó... Bara vinda sér strax í það;)

    Góða viku sömuleiðis:*
    kv. Rakel systir

    SvaraEyða
  4. Elsku Rakel, ég leyfði mér að eyða öðru kommentinu, veit að það er mikilvægt að ég fái mér barnapíu EN.... ;)

    Ég mun samt seint fara í nudd, er einhvern veginn ekki fyrir það að einhver strjúki á mér húðina, nema bakið þá.

    Ég er líka að gæla við það að fá mér frí annað slagið á fös. t.d. Hafa tíma fyrir mig til tvö.

    Rólegt kvöld. Gaurarnir eru sofnaðir og ég ætla að fá mér bjór.

    Knús.

    SvaraEyða
  5. Hæ hæ þú getur gleimt því að hætta í móðurhlutverkinu, mér hefur alla vega ekki tekist það í nærri 40 ár. Nei svona í alvöru eg vildi alveg vera hjá þér tíma og tíma svo þú gætir skroppið út. Hafðu það gott elskan.
    Kveðja og knús. Þín mamma

    SvaraEyða
  6. Æi elsku mamma, ég veit að ég hætti ekkert í þessu "hlutverki" fyrr en ég dey. Verst að vinna ekki í lottó, þú hefðir þá bara flutt til mín ;)

    Ég hef það gott núna. Strákarnir fóru "snemma" að sofa, ég drekk bjór og ét súkkulaði og saltstangir. Spjalla við Hjálmar og kíki á netið. Seydi er að vinna lengur.

    Knús

    SvaraEyða
  7. Algerlega nauðsynlegt að hafa tíma fyrir sjálfan sig stundum og ég held þetta sé fullkomlega eðlileg tilfinning hjá mæðrum sem gleyma stundum svoltið að rækta og næra sjálfið. Best er auðvitað þegar kallinn manns eða barnsfaðir getur bara aðeins tekið til hendinni, tekið börnin með sér og gert e-ð með þeim því þá er maður svo algerlega laus við allt samviskubit líka ;)

    Koma bara upp kerfi þar sem Seydi fer með strákana í "pabba-tíma" og þú færð smá Ingu tíma á meðan.

    Kveðja frá bjartsýna Íslandi með nýja jafnréttisstjórn

    Andrea

    SvaraEyða
  8. Hæ hæ Andrea bumbulína og takk fyrir innlitið.
    Við reynum nú að hafa "pabbatíma" annað slagið en það er erfitt að plana langt fram í tímann hjá okkur. Gerum það frekar "spontan". Með barnapíu er þetta annað mál, þar þarf t.d. að byggja upp ákveðið traust.
    Við Seydi þurfum líka meiri tíma fyrir okkur tvö, ekki bara á vinnutíma ;)
    Hér ríkir líka bara bjartsýni og við erum í góðum málum.

    Farðu vel með þig.

    SvaraEyða
  9. það er varla að ég þori að bæta orði í þennann belg... nú þegar ég hef verið ein með krakkana í viku, með próflestri og barnagæsluveseni þá gætu mín áköll á frið og frí - hljómað sem ég sé þegar búin að tapa mér og æskilegt gæti reynst lesendum að hafa samband við barnavernd....
    (auðvitað eigum við að setja upp okkar eigin tíman og líka hjónatíma, en hjá mér - er það bara svo mikil fyrirvinna að setja slíkar stundir upp að það eitt dregur úr mér alla orku og löngun - svo maður fer að trúa því að það gefi manni jafnmikið að vera bara heima - og þykjast safna orku með eilífa áreitið í eyrunum)

    SvaraEyða
  10. Ég bjóst ekkert við orðum frá þér Stella mín, veit þínar aðstæður núna. Gaman að heyra samt frá þér :)Always.
    Mér líður vel núna í vinnunni, Seydi skrapp með bíl í skoðun, ekkert áreiti núna nema útvarpið og ég drekk te til að hlýja mér á þessari ofnlausu skrifstofu.

    Hafðu það nú gott Stella mín og takk fyrir að eyða tíma til að skrifa hér.

    SvaraEyða