Þá er frumburðurinn orðinn 7 ára! Ekki bara mér finnst tíminn líða hratt, Julian sjálfur sagði að hann hefði sko ekki verið lengi 6 ára....... Ég er eiginlega fegin að afmælisveislan er búin. Ég er einhvern veginn ekki þessi "afmælisveislutýpa". Alltaf eitthvað stress sem fylgir mér í kringum afmæli Julian. Allt annað þegar Henrik á afmæli, oftast allavega, þar sem við erum oft á Íslandi þann dag. Þar þarf ég ekki að pæla í því hverjum ég býð, hvenær og hvert.... þar er fólk sem bakar og græjar rétti fyrir mig. Í ár var vandamálið, hvar á að halda veisluna? hverjum á að bjóða? er hægt að bjóða frændunum saman (mömmurnar talast varla við)? á að bjóða öllum frændum og frænkum? osfrv. Besta lausnin var að leyfa Julian að bjóða þeim vinum sem hann vildi og 3 frændum á innileikvöll. Mömmurnar þurfa þá ekkert að sitja saman. Alltaf sama vesenið í fjölskyldu Seydi......hann og Ibo bróðir hans hafa ekki talast við í nokkur ár! Allavega 2 og hálft. Bilað.
Ég verð að segja að afmælið fór MJÖG vel fram. Engin rifrildi, engin slagsmál. Enda var Benedikt ekki boðið. Honum finnst ægilega gaman að slást......og pabba hans finnst það rosa kúl að hann hafi slegist við strák í 3ja bekk. Eins kúl og það nú er :/
Fór á fund hjá 1. bekk í gær. Fyrst voru allir foreldrarnir saman á sal. Það tók heila eilífð og ég sofnaði næstum því, zzzzzzzzz. Var verið að skýra aðeins út hvernig enskukennslan færi fram og hvers væri ætlast af börnunum í skólanum. Svona yfir höfuð reglur og hegðun. Eftir þessa löngu stund fórum við aðeins yfir í "okkar" stofu og kennarinn sagði okkur stöðuna hjá bekknum, hvað kæmi osfrv. Foreldrarnir ætla að hittast í mars svona til að kynnast. Þetta er ekki eins og á Húsavík þar sem "allir þekkja alla" dæmi. Ég ætla að reyna að fara, bara að láta Seydi vita nógu snemma og hringja svo í hann annað slagið þann daginn!
Oh, ég á eftir að ganga frá eftir kvöldbrauðið (Abendbrot). Bara brauð og álegg í dag. Strákarnir borðuðu pyslubrauð með engum pylsum, bara sósum og lauk.
Kuldaboli er kominn aftur hingað. 9° hiti um hádegi, 2° núna um kvöldmat. Fyrst var úði, svo rigning og núna er hríð. Ekki langt héðan (í Duisburg) brotnuðu tré í vindhviðum, sá það í fréttum.
Knús og kveðjur.
veðurfarið hjá þér er í stíl við það hjá mér... það fór í 15 stiga hita í gær en á að kólna og vera komið í frostið aftur um helgina - nú mígrignir ofan í rennblauta jörðina...
SvaraEyðakveðjur
hér er enn skítakuldi, frá -5 uppí -10, brrr.
SvaraEyðaEn hvað er málið með það að systkyni/bræður/systur tali ekki saman- hvernig er það hægt...úff sem betur fer rífumst við og svo eftir smá er farið að tala um eitthvað annað, ég skil ekki svona langrækni!
by the way...verði þér hálsmenið að góðu:)
kv. Rakel systir
Ég skil ekki svona langrækni heldur. Ibo er svo ROSALEGA þrjóskur. Seydi reyndi að tala við hann einhvern hátíðisdaginn (hjá þeim) en Ibo bara labbaði framhjá og það hnussaði í honum. Ætli okkur verði nokkuð boðið í brúðkaupið sem á víst að vera á þessu ári. Seydi segist samt ætla að fara.....þetta sé nú bróðir hans.
SvaraEyðaVeðrið er stillt eins og er, skýjað og svalt. Spáð snjókomu. Best að fá sér kaffi....
Knús þið duglegu kvittarar.