laugardagur, 28. febrúar 2009

Febrúarlok

Þetta verður ekki langt í dag. Maginn er ekki alveg að gera sig. Ég sem hélt að þetta væri að lagast en í gær fékk ég aftur krampa, var slöpp og hreinsunin heldur áfram..... Er skárri í dag, get samt ekki borðað mikið og þá bara litla bita í einu. Kannski er líkaminn bara að segja mér að drullast til að borða hollt og lítið í einu?!

Veðrið er grátt en það á víst að birta til í dag og fara í 12°, á morgun enn hlýrra. Kannski verð ég nógu hress til að fara út að hjóla. Þarf bara að setja pedalana á nýja hjólið og herða allar skrúfur. Set Seydi í það verkefni.

Í gær morgun fór ég í handnuddið sem Bärbel gaf mér í afmælisgjöf. Ég lá þar á bekk með teppi yfir mér, rólega músík og góða lykt. Konan nuddaði á mér hendur og setti svo maska sem ég beið með í 20 mín. Náði að slaka aðeins á. Hitti svo Bärbel og við kíktum aðeins í bæinn en ég fór þá að finna aftur til í maganum. Þegar ég kom heim lá ég bara á sófanum þangað til ég þurfti að ná í strákana. Lá svo aftur inni í rúmi og strákarnir voru hér bara sjálfala. Það gekk vel og það var ekkert voðalega mikið útum allt......Skiptir ekki máli.

Er að hugsa um að fara inn í rúm núna og horfa á skíði. Búin að borða, taka Paratabs og magatöflu.

Góða helgi

10 ummæli:

  1. ´ææ ég vona að þetta fari nú að skána, það er andstyggilegt að vera með í maganum :( Ég er búin að vera svona í nokkra daga líka.

    Bestu kveðjur, Alva.

    SvaraEyða
  2. mér líst nú ekkert á hve lengi þessi magaveira ætlar að dvelja hjá þér... svo nú færðu frá mér nafn á bætiefnahylkjum sem ég sver að eru þau allra bestu - þau styrkja magakerfið og sjá um að draga frá það rusl sem á það til að bara planta sér í maganum og neita að skila sér út ; psyllium husk með acidophilus! googlaðu þér til um það og ég veit þú munt sannfærast um að það er allavega þess virði að prófa það (ég fæ engar söluprósentur af þessum efnum) þetta hefur bara reynst vel hér í mínu húsi og ég hef mælt með þessu fyrir aðra - þetta heldur húðinni hreinni - algert undraefni! allavega mín kæra farðu vel með þig og láttu þér batna!

    SvaraEyða
  3. Já þetta fer að verða þreytandi... takk fyrir upplýsingarnar Stella. Ég er reyndar búin að gúggla þetta en finn ekki þar sem bæði er husk og acidophilus. Þarf að leita betur. Varð líka að finna út hvað husk er á þýsku.

    Knús

    SvaraEyða
  4. Blessuð, hérna megin hefurðu sérfræðing í maga- og ristilverkjum, lausnin er enginn hvítur sykur, lítið hvítt hveiti, hrátt grænmeti og brytjuð engiferrót í soðnu vatni, þú drekkur vatnið og getur notað rótina í margar umferðir. Husk eru bara hreinar trefjar og acido.... er líka gott fyrir mallann. Svo skaltu bara poppa upp á gamla móðinn upp úr olíu og ekkert salt. Ef þetta virkar ekki, þá er bara að hafa samband og við leitum nýrra leiða... Unnsa Punns

    SvaraEyða
  5. Góð ráð systir góð EN engifervatn.... og popp með engu, úff. Veit ekki hvort ég legg í það. Barnalæknar strákanna láta þá í "megrun" þegar þeir fá í mallann. Best er epli, bananar, hrísgrjón (ekkert salt), kartöflur en alls ekki kornbrauð t.d.

    Best ég fjárfesti í engiferrót á morgun.

    Takk takk

    SvaraEyða
  6. ...úbb, var ekki búin að kvitta fyrir lesturinn. kvittikvitt;)

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  7. ...úbb, var ekki búin að kvitta fyrir lesturinn. kvittikvitt;)

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  8. ...úbb, var ekki búin að kvitta fyrir lesturinn. kvittikvitt;)

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  9. æji, þetta átti nú ekki að gerast svona, var smá óþolinmóð og skyldi ekkert af hverju þetta kom ekki inn og ýtti þrisvar á!!! sorry

    SvaraEyða
  10. Um að gera að kvitta vel fyrir sig ;) Viltu að ég eyði þessu? Skiptir ekki máli fyrir mig.

    SvaraEyða