Fyrst að ég sit hérna EIN í stofunni er tilvalið að rita nokkur orð. Seydi er enn að vinna og strákarnir ákváðu að fara að sofa á skikkanlegum tíma. Henrik m.a.s. fór rúmlega átta inn í rúm og tilkynnti það að hann væri að fara að sofa zzzzzzzzz
Er að hugsa um að skutla mér á sófann á eftir, jafnvel inn í rúm. Er búin að fá mér te og súkkulaði (Rakel, ég stal einni skeið af tyrkn. eplateinu). Ég viðurkenni að ég er með smá strengi í rasskinnunum eftir "fjallaferðina" í gær (sjá myndir á barnalandi).
Var að skoða myndir frá þorrablótinu í Aðaldal áðan. Mörg kunnuleg andlit og ægilega, frábærlega falleg mynd af Unni systur :):):) Ég fékk næstum því tár í augun af stolti að eiga svona fallega systur. Oh, ég á svo fallegar systur.......
Hef þessi orð ekki fleiri að sinni. Er farin að sjá tvöfalt af þreytu :O (þetta á að vera geyspi mamma)
Gute Nacht
gott að fá svona eina kvöldstund í rólegheit...
SvaraEyðaÓ já það var indælt. Seydi kom seint og um síðir,lenti á kjafteríi hjá vini.
SvaraEyðaSér fram á annað rólegt kvöld, Henrik fór að sofa á undan Óla Lokbrá....bara án þess að láta kóng eða prest vita! Rúmlega sex. Spurning hvort að gaurinn vakni aftur í kvöld. Síðustu nótt komu reyndar báðir gaurarnir svo að nóttin var síður en svo róleg.........
Hugguleg kvöldstund með sjálfri þér...það lýst mér vel á:)
SvaraEyðaVar ekki teið gott - ooo ég alveg dýrka þetta te
en hvar sástu myndir af þorrablótinu í Aðaldal?
kv. Rakel
Myndirnar eru hjá Halla Sig.
SvaraEyðaTeið var fínt, ekki mikið bragð en ég hef nú ansi oft drukkið eplate í Tyrklandi. Það var öðruvísi.
Knús