þriðjudagur, 31. mars 2009

*VOR*


Nú held ég að vorið sé endanlega komið. Ég bara trúi ekki öðru. Sá m.a. þessa maríubjöllu í dag, einnig fullt af RISA randaflugum, gult fiðrildi, svart/appelsínugult fiðrildi, fullt af flugum og pöddum. Fuglarnir keppast við að syngja sem hæst. Fólk er skriðið úr híðum, sumir komnir á stuttermaboli (mér finnst heldur svalt til þess). Sólin skein í allan dag, hitinn fór í um 15° og akkúrat núna er sólin að setjast, himinninn er bleikur.

Þegar ég keyrði úr vinnunni í dag fór ég fram úr tæki sem var að slá meðfram veginum. Ilmandi graslykt barst í vit mín.........yndislegt. Fór á leikvöllinn með strákana. Bärbel bauð í bakaríisgotterí en hún á afmæli í dag. Völlurinn var fullur af hlæjandi börnum og göturnar af fólki á gangi, á vespum eða hjólum.

Ég tek það fram að ég er EKKI að blogga um þetta til að ergja þá sem sitja fastir í skafli. Svona var bara dagurinn hjá mér í dag.

Dottin í imbann, fyrst að koma gaurum í ró :)

Ég sendi hér með skilaboð til vorsins um að drífa sig til Íslands.........

fimmtudagur, 26. mars 2009

Alveg að missa mig...

Ég var eitthvað að "zappa" á fjarstýringunni áðan og lenti á VIVA tónlistarstöðinni og þá var verið að spila "Listen to your heart" með Roxette, oh en ljúft. Ég er búin að ákveða að kaupa diskinn "Look Sharp" aftur en honum var stolið úr bílnum okkar einu sinni.

Ég tók þá eftir því að það var/er verið að spila vinsæl 90´s lög frá Skandinavíu :) En frábært, svo ég er enn að horfa. Búin að sjá m.a. Aha og "It´s my Life" með Doctor Alban.........snilldar danslag. Ég gat varla setið kyrr hérna við tölvuna. Núna var "Open Sesame" með Leila K. að enda. Ég vissi nú ekki að hún væri frá Skandinavíu. Hvað um það, ég er spennt að vita hvað kemur næst. Auglýsingahlé.

Nú langar mig á diskó, með alvöru 80´s og 90´s lögum. Dance till I drop! Ég er nefnilega alger "Europopp" aðdáandi.........alveg elska þessi frábæru danslög. Get alveg misst mig. Já ég verð bara að fara að komast á diskó, eða dansa hérna heima í stofu. Það er bara ekki eins gaman. Hvernig væri að skella einu svona diskói á í sumar? Bara fyrir 30 ára og eldri...... Ég ætti kannski að draga Bärbel með mér á dansiball. Hlýtur að vera eitthvað í gangi fyrir okkur hérna í þessu milljóna héraði.

Voðalega eru þessar auglýsingar leeeeeeeeeeeeengi. Jæja, eitthvað að gerast, bíðum samt aðeins. Kemur ekki Ace of Base, "Happy Nation" júhú. Nostalgía í gangi hérna blogg eftir blogg. Sorry, ég gat ekki hamið mig.....

Knús.

mánudagur, 23. mars 2009

Ekki vor....

...það er komið í frí, farið eitthvað suður á bóginn býst ég við. Eða jafnvel til Íslands. Ekki veitir nú af smá upplyftingu þar. Allavega er frekar svalt hjá mér núna og skúrir í dag, það gengur á með hálgerðum éljum líka........það dimmdi allt í einu áðan og niður komu heil ósköp af vökva. Gott að vera bara inni núna.

Þegar ég var ung voru ekki til heimilistölvur, tölvuleikir voru á frumstigi (Pacman var rosa framför), gemsar voru framtíðarsýn, sjónvarpsstöðvar af skornum skammti og Lög unga fólksins "highlight" vikunnar. Hið þýska blað "Bravo" var eina leiðin til að sjá hvernig stjörnunar litu út, hvenær þær ættu afmæli og hvernig leit út heima hjá þeim. Plakötin úr Bravo voru ofur vinsæl og prýddu eflaust marga veggi og gera enn í dag. Bravo er eitt stærsta, ef ekki stærsta, unglingablað Þýskalands og víðar. Ég safnaði límmiðum úr Bravo, á suma þeirra m.a.s. ennþá á einhverjum albúmum og dóti. Sum tónlistarmyndbönd hafði ég aldrei séð fyrr en ég kom hingað eða á Youtube. Þessvegna voru sumir flytjendurnir svona hálfgerðir "huldumenn". Hérna hafa undanfarin ár verið þættir um "30 bestu" hitt og þetta, t.d. 30 bestu Nr.1 lög, 30 bestu "One Hit Wonder" osfrv. Stundum koma svo flytjendurnir og syngja í þáttunum. Sum lög hafa alveg misst hellings sjarma bara við það að ég sá flytjandann........sem dæmi er "Words" með F.R. David.
Ég sá alltaf fyrir mér einhver ÆGILEGAN gaur og geggjað flott tónlistarmyndband. En nei, myndbandið er lítið annað en "gaurinn" með gítar og sólgleraugu. Svo er hann Ítali.........ekki að ég hafi neitt á móti þeim en ég bara sá hann öðruvísi fyrir mér. Í huga mínum innanbrjósts :)
Oft má satt kyrrt liggja........

Verið ófeimin við að skilja eftir spor ;) Knús

föstudagur, 20. mars 2009

Vorjafndægur

Smá vorblogg með vormyndum í dag. Lóan er komin til Íslands og framundan er yndislegur tími vorsins. Ég er sérstaklega hrifin af vorinu hérna í Þýskalandi. Útum allt er eitthvað í blóma, núna eru það krókussar, nokkrar páskaliljur er líka sprungnar út, runnar eru að springa út. Sérstaklega fallegir verða gulu "forsythien" runnarnir.

(Ég tók þessa mynd af Wikipedia)

Ég keyrði framhjá borgarmúrnum í dag og tók myndir af krókussunum þar.



Vertu ávallt velkomið elsku vor. Ég er að venjast því aftur að fleira fólk er á ferðinni, maður þarf að passa sig betur þegar keyrt erum á bíl, eða bara labbandi. Að verða t.d. ekki fyrir hjóli. Svo er líka föstudagur í dag og þá er mikil umferð á bílum og fólki.

GÓÐA HELGI

sunnudagur, 15. mars 2009

Minningar

Í vikunni sat ég við eldhúsborðið, alein og horfði í kringum mig...........horfði og hugsaði. Á einum veggnum hangir afmæliskort frá Helgu Dóru minni, kortið er með mynd eftir Hrafnhildi Jónu.

Gluggakistuna prýðir kanna sem ég fékk gefins í USA. Hún er með mynd af asna og segir "I love Missouri". Í henni geymi ég sogrör. Þarna eru líka tvær marmelaðikrukkur. Ég málaði jarðarberin, kirsuberin og vínberin á þeim. Lakkaði svo lokið gyllt.

Upp á brauðboxinu eru tvær könnur. Önnur þeirra er úr spilavítinu "Circus Circus" í Las Vegas, hin er bekkjarkanna með Class of ´88. Þær geyma ýmislegt dót, penna og gömul debitkort. Uppá skápnum þar fyrir ofan er svo alvöru bekkjarkanna mín. Class of ´88 með nafninu mínu og allt.

Á veggnum beint á móti mér blasa við tvær útsaumaðar myndir eftir Unni systur. Önnur með grænmeti, hin með ávöxtum. Ég þurfti að hringja í Unni til að setja myndirnar aftur saman eftir að hafa þvegið þær..... Við hliðina á myndunum hangir eldgamalt viskustykki með dagatali frá 1970. Þýðir það ekki að ég sé eldgömul líka? :) Mamma átti þetta stykki og ég eignaði mér það.

Fyrir ofan slökkvarann hangir keramik svunta, þar sem stendur "Ísland" á. Mamma sendi mér þetta fyrir löngu, ég átti sjálfsagt að gefa einhverjum þetta en ákvað að eiga sjálf.

Borðið sem ég sat við átti Sabine, konan sem ég vann hjá í 5 ár. Hún átti líka stólana, "búrskápinn" fína og tvo skúffuskápa sem ég nota í eldhúsinnréttingunni.

Gardínurnar eru úr Esar, saumaðar á Garðarsbraut 53. Þjóðverjar eru yfirleitt með ljótar gardínur (fyrir minn smekk). Hvíta, ljóta kappa, keypta út í búð. Helst allar fellingarnar eins! Hefur reyndar aðeins breyst. Unga fólkið þorir meira. En það er enn mikið úrval að "Gardinenweiss" (gardínuhvítu) í hreinlætisvörurekkunum. Ég þarf ekki þannig.

Í eldhúsinu mínu eru sem sagt margar minningar tengdar við ýmsa staði og menn/konur. Líka í stofunni minni en það er efni í annað blogg.......

Seydi er farinn til suður Þýskalands. Fékk far með einhverri konu. Fann farið á netinu. Frábærar svona "farþjónustusíður". Kostar lítið og hann þarf ekki að keyra einn með kerruna aftan í. Fórum aðeins á flóamarkaðinn í morgun. Keyptum lítið nema sælgæti. Seydi keypti svo mikið að skápurinn er að springa........í þessu var "Bounty", "Twix-kex", "Maltesers", "Lindor", "Lindt" súkkulaði og súkkulaðihérar, "Pringles" og eitthvað konfekt. Ég er búin með 1 Maltesers pakka!

Ætla að útbúa eitthvað í gogginn handa mér og strákunum. Best að henda samlokum í grillið.

Eigið gott sunnudagskvöld og nýja viku.

þriðjudagur, 10. mars 2009

Ég væri til að vera á skíðum á Dalvík núna. Var að líta í vefmyndavélina. Fallegt veður og færið örugglega geggjað. Er reyndar ekkert viss um að ég stæði í lappirnar.......kannski er þetta eins og að kunna að hjóla, það "aflærist" ekki?

Rigning hér, ég varð hundblaut þegar á náði í Julian áðan. Varð blaut í gegnum úlpuna mína. Svona er það að nota ekki regnhlíf en ég er ekki orðin það þýsk að ganga alltaf með regnhlíf á mér. Leiðist það voðalega, finnst ég svo heft. Samt veit ég ekki hvað ég hef týnt mörgum regnhlífum.......eins gott að ég kaupi bara einhverjar druslur á 1 Evru eða svo.

Oh, mér leiðast svoooooo mörg dægurlög þessa dagana. Stundum er ég svo "desperate" á leið í og úr vinnu, að ég set á klassísku stöðina. Ekki að það sé slæmt, það er viss stemming í því að hlusta á klassík,keyrandi í gegnum skóga og framhjá ökrum hérna í Þýskalandi. Passar einhvern veginn við landslagið. En já, það eru svo mörg lög vinsæl þessa daga sem ég bara fæ grænar við að hlusta á. Man nú ekki hvað þau heita öll eða hvaða flytjandi syngur en dæmi eru "Duffy", "Razorlight", "Coldplay", "Polarkreis 18" (þýsk grúbba) ofl. ofl. Ég vil helst heyra bara hressandi, skemmtilega dansmúsík þegar ég keyri. Því miður er ég bara með kassettutæki og það er bilað...........Mér finnst vinsæla músíkin núna, alveg vera í takt við kreppuna. Langdregin, niðurdrepandi og leiðinleg. Svona upp til hópa. En það er bara ég.........

Ísland var í fréttum í gær. Bara örstutt. Sagt frá þessum Breta sem er með ofurgáfu og lærði íslensku á viku. Aðeins sýnt úr þætti sem hann var í. Fyrsta "ekki kreppu" fréttin frá Íslandi í marga mánuði.......

Mig er farið að lengja eftir sól.........sól, sól, skín á mig, BITTE. Þessir gráu dagar eru ágætir annað slagið en ekki of lengi. Ég held ég sé með D vítamín skort. Það var svo indælt að fá smá sól í andlitið á síðasta laugardag. Það liggur við að ég fari í ljós. Ætla samt að prófa brúnkukremið fyrst.

Ég keypti feiti áðan.........ætla að leggja í kleinugerð á næstunni. Trúið þið því? Ég veit ekki hvernig það endar. Ætti kannski að koma heim með brunatæki af verkstæðinu? Hvernig veit ég að feitin er 180°? Þetta á eftir að verða skrautlegt.........meira síðar.

Gott í bili. Knús og kossar

laugardagur, 7. mars 2009

Sólin er að setjast eftir fínan dag, veðurlega séð allavega. Hitinn fór í 9° og það var bara nokkuð hlýtt í sólinni enda er hún farin að vera andi hátt á lofti. Vorið er eitthvað að hika, spáð kólnandi næstu daga. Annars er ekki alltaf að marka þessa spá.

Strákarnir eru eins og kýr að vori. Bara læti, hávaði (einhver furðuhljóð í ömurlegri tóntegund) og galsi. Jeminn hvað ég er þreytt í hausnum stundum, þetta er hávaðamengun...... Akkúrat núna er Julian, 7 ára, að garga "banana, banana" með einhverri óþekkjanlegri rödd! Núna er það "halló, halló, dadaradada"........Er ekki hægt að skrúfa fyrir svona???

Kallinn er þó ekki að ergja mig með sínum bílakaupssamtölum.........þessi bílasölumenn eru spes tegund. Hann hringir í mig kl. 23 í gærkvöld, kominn til Erfurt í A-Þýskalandi, nær ekki í þann sem hann ætlaði að kaupa bíl af, vantaði símanúmer á hóteli til að gista á............Á meðan hringir þessi kall og Seydi kaupir bílinn, keyrir af stað heim, sefur smá í bílnum og kemur hingað að verða 9 í morgun með rúnstykki og "Mett". Eins og hann hefði ekki getað fundið hótel sjálfur.......ég er viss um að hann vildi bara heyra í mér :) Reyndar var hann með kerru aftaní, ekki hægt að leggja hvar sem er. Þessir bílasölukallar.........

Mamma gaf mér tösku í afmælisgjöf. Hún var með miða frá Garún Garún (því miður búin að henda miðanum). Það stendur "Iceland" mörgum sinnum á henni. Kannski þekkir einhver þessar töskur. Fást t.d. á pósthúsinu á Húsavík. En allavega. Ég get svarið það að ég sá stelpu með svona tösku á hjólinu sínu, nema það stóð "Berlin" á henni...........nú spyr ég mig. Eru þessar töskur búnar til hjá Garún Garún EÐA er þær bara keyptar að utan og þetta merki sett á???? Rennilásinn er líka merktur. Forvitni mín er vakin.

Jæja, pakkapastað soðið. Best að fá sér í gogginn. Veit ekki hvort að hávaðaseggjunum þóknast svona matur.

Góða helgi.

miðvikudagur, 4. mars 2009

Vorið er komið og grundirnar gróa...

Ég hef nú ekki verið neitt voðalega virk hérna á blogginu undanfarið. Hef látið það sitja á hakanum enda lítið að frétta nema magakveisa og tilheyrandi. Ég ældi þó bara einu sinni og það fyrir meira en viku......sem betur fer.

Dreif mig nú til læknis á mánudagsmorguninn. Mátti sitja þar í 2 tíma og bíða enda átti ég ekkert pantaðan tíma, já og svo var bara 1 læknir í staðin fyrir 3. Ætli þeir séu ekki bara líka veikir? En þetta hafðist og þegar ég var loksins að komast að, kominn inn í eitt af herbergjunum kemur aukalæknir og biður mig að koma í annað herbergi. Hann sé vanari að vinna þar. Ég get svarið það að þessi læknir var orðinn smá "ruglaður". Var sennilega að nálgast sjötugt, leit samt út fyrir að vera eldri (svona miðað við pabba) og hann var ekki alveg að kunna á tölvuna. Spurði hvað væri að mér, ég lýsti því og hann lét mig hafa töflur og dropa. Basta. Skoðaði mig ekkert nánar enda þessi pest að ganga og töflurnar virkuðu strax. Ég tók eftir því að hjálparstúlkurnar voru alveg við það að hlæja að greyið kallinum þegar hann kom fram til að segja þeim hvaða lyf ég ætti að fá. Þær voru löngu búnar að sjá það á receptinu eða í tölvunni.

Sumir læknar eru smá ringlaðir þó þeir viti alveg hvað þeir séu að gera. Annar barnalæknir strákanna (er komin á eftirlaun núna) var svona. Hún vissi sko alveg hvað hún var að gera en það var ekki mikið verið að dúllast við hlutina eða spjalla við krakkana. Mætti kalla hana frekar hryssingslega. En hún er hætt og sú nýja er fín. Hinn barnalæknirinn er alger snilld (ekki þessi nýja). Hún er sennilega frá Póllandi og er með svo skemmtileg
a hreim. Svo talar hún hægt og eins og hún sé með hægum hraða. Nei, það er eiginlega ekki hægt að lýsa henni. Seydi hélt að hún væri að leika þegar hann heyrði í henni fyrst. Ég sagði að hún væri bara svona :)

Jæja, vorið er komið. Set inn mynd til að sanna mál mitt. Það á reyndar að koma kuldakast um helgina. Einhver "Íslandslægð" á leiðinni.......sennilega þessi sem þið upplifðuð síðustu daga. Allavega mörg ykkar.


Er þetta ekki orðið gott bara. Knús