Ég var eitthvað að "zappa" á fjarstýringunni áðan og lenti á VIVA tónlistarstöðinni og þá var verið að spila "Listen to your heart" með Roxette, oh en ljúft. Ég er búin að ákveða að kaupa diskinn "Look Sharp" aftur en honum var stolið úr bílnum okkar einu sinni.
Ég tók þá eftir því að það var/er verið að spila vinsæl 90´s lög frá Skandinavíu :) En frábært, svo ég er enn að horfa. Búin að sjá m.a. Aha og "It´s my Life" með Doctor Alban.........snilldar danslag. Ég gat varla setið kyrr hérna við tölvuna. Núna var "Open Sesame" með Leila K. að enda. Ég vissi nú ekki að hún væri frá Skandinavíu. Hvað um það, ég er spennt að vita hvað kemur næst. Auglýsingahlé.
Nú langar mig á diskó, með alvöru 80´s og 90´s lögum. Dance till I drop! Ég er nefnilega alger "Europopp" aðdáandi.........alveg elska þessi frábæru danslög. Get alveg misst mig. Já ég verð bara að fara að komast á diskó, eða dansa hérna heima í stofu. Það er bara ekki eins gaman. Hvernig væri að skella einu svona diskói á í sumar? Bara fyrir 30 ára og eldri...... Ég ætti kannski að draga Bärbel með mér á dansiball. Hlýtur að vera eitthvað í gangi fyrir okkur hérna í þessu milljóna héraði.
Voðalega eru þessar auglýsingar leeeeeeeeeeeeengi. Jæja, eitthvað að gerast, bíðum samt aðeins. Kemur ekki Ace of Base, "Happy Nation" júhú. Nostalgía í gangi hérna blogg eftir blogg. Sorry, ég gat ekki hamið mig.....
Knús.
dagur tónlistar í dag - allir í leit endurminninga...
SvaraEyðasnilldar lög allt....eigum við að segja diskó fyrir 28 ára og eldri, til í það????? Var alveg búin að gleyma "open sesame", sé myndbandið alveg fyrir mér;)
SvaraEyðaGóða helgi og koss á þig:*
kv.
Rakel
Já sko 30 og eldri en aðeins yngri mega koma líka. Þannig er það hér ;)
SvaraEyðaÞað nýjasta hér Y100, þ.e. yfir 100 kg. Sá myndir þaðan í blaðinu á netinu, það voru ekkert allir 100 kg. sko. En samt gott að fólk, sem oft fer ekki út á meðal manna, skemmti sér í hópi "sinns líka".
Takk fyrir að gefa þér tíma til að kvitta þrátt fyrir skólastress :*