Ég væri til að vera á skíðum á Dalvík núna. Var að líta í vefmyndavélina. Fallegt veður og færið örugglega geggjað. Er reyndar ekkert viss um að ég stæði í lappirnar.......kannski er þetta eins og að kunna að hjóla, það "aflærist" ekki?
Rigning hér, ég varð hundblaut þegar á náði í Julian áðan. Varð blaut í gegnum úlpuna mína. Svona er það að nota ekki regnhlíf en ég er ekki orðin það þýsk að ganga alltaf með regnhlíf á mér. Leiðist það voðalega, finnst ég svo heft. Samt veit ég ekki hvað ég hef týnt mörgum regnhlífum.......eins gott að ég kaupi bara einhverjar druslur á 1 Evru eða svo.
Oh, mér leiðast svoooooo mörg dægurlög þessa dagana. Stundum er ég svo "desperate" á leið í og úr vinnu, að ég set á klassísku stöðina. Ekki að það sé slæmt, það er viss stemming í því að hlusta á klassík,keyrandi í gegnum skóga og framhjá ökrum hérna í Þýskalandi. Passar einhvern veginn við landslagið. En já, það eru svo mörg lög vinsæl þessa daga sem ég bara fæ grænar við að hlusta á. Man nú ekki hvað þau heita öll eða hvaða flytjandi syngur en dæmi eru "Duffy", "Razorlight", "Coldplay", "Polarkreis 18" (þýsk grúbba) ofl. ofl. Ég vil helst heyra bara hressandi, skemmtilega dansmúsík þegar ég keyri. Því miður er ég bara með kassettutæki og það er bilað...........Mér finnst vinsæla músíkin núna, alveg vera í takt við kreppuna. Langdregin, niðurdrepandi og leiðinleg. Svona upp til hópa. En það er bara ég.........
Ísland var í fréttum í gær. Bara örstutt. Sagt frá þessum Breta sem er með ofurgáfu og lærði íslensku á viku. Aðeins sýnt úr þætti sem hann var í. Fyrsta "ekki kreppu" fréttin frá Íslandi í marga mánuði.......
Mig er farið að lengja eftir sól.........sól, sól, skín á mig, BITTE. Þessir gráu dagar eru ágætir annað slagið en ekki of lengi. Ég held ég sé með D vítamín skort. Það var svo indælt að fá smá sól í andlitið á síðasta laugardag. Það liggur við að ég fari í ljós. Ætla samt að prófa brúnkukremið fyrst.
Ég keypti feiti áðan.........ætla að leggja í kleinugerð á næstunni. Trúið þið því? Ég veit ekki hvernig það endar. Ætti kannski að koma heim með brunatæki af verkstæðinu? Hvernig veit ég að feitin er 180°? Þetta á eftir að verða skrautlegt.........meira síðar.
Gott í bili. Knús og kossar
O já Inga, það var æðislegt veður í dag... fullt af fólki í fjallinu og mig langaði svo að kunna á skíði:D Mig langaði reyndar mest að fara út að labba en það gekk ekki upp í dag, þurfti að erindast svo mikið á bílnum. En ég mokaði breiðari göng frá íbúðinni minni niður að göngustígnum svo ég komist með vagninn út á morgun ef veðrið verður aftur svona gott... alveg farin að þrá að komast út, ekki farið með Rakel út í meira en viku, veiktist á mánudaginn síðasta og er enn með hósta en sem betur fer að lagast svo það hlýtur að vera í lagi að fara með hana í vagn á morgun:D
SvaraEyðaLangar ekkert í rigningu núna, held að þá yrði endanlega ófært hér á Dalvíkinni... alltof mikill snjór til þess ennþá. En ég hlakka hins vegar mikið til vorsins og sumarsins hér, því miður alltof langt að bíða.
Líst vel á kleinugerðina þína... langar að prófa þetta einhverntíman:D
Ég held að þú ættir frekar að taka með þér slökkvitæki....
SvaraEyðaUnnur Mjöll.
Vonandi hlánar nú ekki of hratt í öllum þessum snjó! Þú verður að fara að komast út Maja mín, sérstaklega ef veðrið verður svona gott.
SvaraEyðaSlökkvitæki, alveg rétt. Nenni ekki að breyta þessu. Mér finnst nú samt að þú megir kommenta aðeins meira systir góð, eftir langan tíma hefur þú ekkert að segja nema setja út á íslenskuna mína........ Ertu í sjokki eftir norðurferðina á sunnud.?
Knús
einu sinni ætlaði ég að gera kleinur, fékk margar góðar þaulreyndar, frægar og velsannaðar uppskriftir sendar til mín - en guggnaði af því að mér var sagt að nota ekki djúpsteikingarpottinn! ég þori ekki að djúpsteikja í potti á gasinu, vex það í augum...
SvaraEyðaef þú tekur þig til - þá sendir þú mér kleinupoka...
bestu kveðjur
Ég er ekki með gas, bara venjulegar hellur.
SvaraEyðaHeldurðu að kleinurnar mygli ekki á leiðinni yfir hafið?
Ég skal allavega taka mynd til sönnunar.....fáum okkur svo bara kleinur frá ömmu í sumar ;)
Mér fannst brunatæki alveg bráðfyndið orð.
SvaraEyðaNorðurferðin var ekkert mál, það var verra að þurfa að gista á Akureyri, mér líður bara aldrei vel í þeim bæ... Fótboltarígurinn orðinn sálrænn kannski, maður spyr sig.
Annars er bara fínt að frétta, knús á alla. Unnur Mjöll.
Já finnst þér það ekki Unnur? Ég gúgglaði þetta nú og sumir virðast nota þetta um slökkvitæki!?
SvaraEyðaHva, höfðuð þið það ekki næs á Hótel KEA? Eyrin er fín.
Knús
Mér leist vel á kleinurnar hjá þér, hefði alveg verið til í kalda mjólk á Halternerstrase og nýsteiktar kleinur..namminamm:)
SvaraEyðaknús á þig:*
æj...gleymdi að setja inn nafnið á þeim sem skrifar!! þetta er sko ég, Rakel systir;)
SvaraEyðaÆi þú ert svo mikil dúlla Rakel. Já það hefði verið gaman að hafa þig hér í dag. Ég var að fá mér kleinur og kaffi. Er svo farin í bólið.
SvaraEyðaKnús
Hvaða vitleysa er þetta í henni Unni... ekkert vont að sofa á Akureyri... svaf mjög vel þar þessi ár sem ég bjó þar:D
SvaraEyða