...það er komið í frí, farið eitthvað suður á bóginn býst ég við. Eða jafnvel til Íslands. Ekki veitir nú af smá upplyftingu þar. Allavega er frekar svalt hjá mér núna og skúrir í dag, það gengur á með hálgerðum éljum líka........það dimmdi allt í einu áðan og niður komu heil ósköp af vökva. Gott að vera bara inni núna.
Þegar ég var ung voru ekki til heimilistölvur, tölvuleikir voru á frumstigi (Pacman var rosa framför), gemsar voru framtíðarsýn, sjónvarpsstöðvar af skornum skammti og Lög unga fólksins "highlight" vikunnar. Hið þýska blað "Bravo" var eina leiðin til að sjá hvernig stjörnunar litu út, hvenær þær ættu afmæli og hvernig leit út heima hjá þeim. Plakötin úr Bravo voru ofur vinsæl og prýddu eflaust marga veggi og gera enn í dag. Bravo er eitt stærsta, ef ekki stærsta, unglingablað Þýskalands og víðar. Ég safnaði límmiðum úr Bravo, á suma þeirra m.a.s. ennþá á einhverjum albúmum og dóti. Sum tónlistarmyndbönd hafði ég aldrei séð fyrr en ég kom hingað eða á Youtube. Þessvegna voru sumir flytjendurnir svona hálfgerðir "huldumenn". Hérna hafa undanfarin ár verið þættir um "30 bestu" hitt og þetta, t.d. 30 bestu Nr.1 lög, 30 bestu "One Hit Wonder" osfrv. Stundum koma svo flytjendurnir og syngja í þáttunum. Sum lög hafa alveg misst hellings sjarma bara við það að ég sá flytjandann........sem dæmi er "Words" með F.R. David.
Ég sá alltaf fyrir mér einhver ÆGILEGAN gaur og geggjað flott tónlistarmyndband. En nei, myndbandið er lítið annað en "gaurinn" með gítar og sólgleraugu. Svo er hann Ítali.........ekki að ég hafi neitt á móti þeim en ég bara sá hann öðruvísi fyrir mér. Í huga mínum innanbrjósts :)
Oft má satt kyrrt liggja........
Verið ófeimin við að skilja eftir spor ;) Knús
Hæ hæ, nei vorið er því miður ekki á leið hingað, það er að vísu gott veður í dag en spáin er kólnandi veður næstu daga. Vonandi kemur bara sumar sem fyrst. Kveðja og knús mamma
SvaraEyðahehe, vorið er hér...í uppáhalds borginni minni;)
SvaraEyðaEn Bravoblöðin þín voru alveg málið hérna í denn, ég upplifði mig alveg sem aðalskvísuna að fá að "lesa" um fræga fólkið niðri í herbergi hjá þér;)
knús og koss á þig systir,
R
Ég man sko eftir Bravo. Við Hulda keyptum þetta alltaf og söfnuðum límmiðunum, plakötunum og textunum. Þetta var æðislegt:D
SvaraEyðaleif garrett, my man! átti þetta líka flotta plakat af honum!
SvaraEyðavorið er á stillimynd hjá mér, akkúrat ekkert að gerast...
Vorið er í fríi á Spáni held ég. Bíðum bara........
SvaraEyðaLeif Garrett Stella, hahaha. Hvað ætli hann sé að gera í dag? Best að gúggla hann! Ég man eftir "Grease 2" plakati hjá mér, þ.e. Michelle Pfeiffer og gaurinn.
Límmiðarnir voru ÆÐI. Ég man líka hvað mér þóttu Steffi Graf og Boris Becker ljót... og þeir sem voru að leita að pennavin...strákar með hormottu, oj.
Skýjað,sést smá í blátt, svalt.
Knús
oooh nostalgian hjá þér elskan:-) Maður fer ósjálfrátt að hugsa afturábak. En nostalgían mín á þessum árstíma er aðallega vorið í RE. Vildi að ég væri á leiðinni til þín, helv. kreppuvæl er að gera út af við mig!
SvaraEyðaKnús á línuna,
Helga Jó.
Oh já Helga. Vorið hér er yndislegt, reyndar í pásu núna. Snjókoma í Sauerland!
SvaraEyðaEr ennþá kreppuvæl hjá ykkur? Tekur þetta engan enda????
Komdu bara ;)
ég held að galdurinn felst í því að hætta að hlusta á fréttir og stinga hausnum aðeins ofan í sandinn:-)
SvaraEyðaÞað styttist í að ég kíki á ykkur, hef ekki látið líða svona langt á milli áður og er komin með "heimþrá".
Sjáumst við í sumar? Komið þið ekki eitthvað heim?
Ert þetta þú Helga Jó. mín?
SvaraEyðaJá það er rosa mikið um "krísu" fréttir núna hjá ykkur, hér reyndar líka.
Við komum í júlí. Förum mjög sennilega beint í bústað, kannski vestur. En ég er ekki búin að kaupa miða. Læt vita af mér. Verðum fram yfir Versló :)
Vertu ávallt velkomin.