Í vikunni sat ég við eldhúsborðið, alein og horfði í kringum mig...........horfði og hugsaði. Á einum veggnum hangir afmæliskort frá Helgu Dóru minni, kortið er með mynd eftir Hrafnhildi Jónu.
Gluggakistuna prýðir kanna sem ég fékk gefins í USA. Hún er með mynd af asna og segir "I love Missouri". Í henni geymi ég sogrör. Þarna eru líka tvær marmelaðikrukkur. Ég málaði jarðarberin, kirsuberin og vínberin á þeim. Lakkaði svo lokið gyllt.
Upp á brauðboxinu eru tvær könnur. Önnur þeirra er úr spilavítinu "Circus Circus" í Las Vegas, hin er bekkjarkanna með Class of ´88. Þær geyma ýmislegt dót, penna og gömul debitkort. Uppá skápnum þar fyrir ofan er svo alvöru bekkjarkanna mín. Class of ´88 með nafninu mínu og allt.
Á veggnum beint á móti mér blasa við tvær útsaumaðar myndir eftir Unni systur. Önnur með grænmeti, hin með ávöxtum. Ég þurfti að hringja í Unni til að setja myndirnar aftur saman eftir að hafa þvegið þær..... Við hliðina á myndunum hangir eldgamalt viskustykki með dagatali frá 1970. Þýðir það ekki að ég sé eldgömul líka? :) Mamma átti þetta stykki og ég eignaði mér það.
Fyrir ofan slökkvarann hangir keramik svunta, þar sem stendur "Ísland" á. Mamma sendi mér þetta fyrir löngu, ég átti sjálfsagt að gefa einhverjum þetta en ákvað að eiga sjálf.
Borðið sem ég sat við átti Sabine, konan sem ég vann hjá í 5 ár. Hún átti líka stólana, "búrskápinn" fína og tvo skúffuskápa sem ég nota í eldhúsinnréttingunni.
Gardínurnar eru úr Esar, saumaðar á Garðarsbraut 53. Þjóðverjar eru yfirleitt með ljótar gardínur (fyrir minn smekk). Hvíta, ljóta kappa, keypta út í búð. Helst allar fellingarnar eins! Hefur reyndar aðeins breyst. Unga fólkið þorir meira. En það er enn mikið úrval að "Gardinenweiss" (gardínuhvítu) í hreinlætisvörurekkunum. Ég þarf ekki þannig.
Í eldhúsinu mínu eru sem sagt margar minningar tengdar við ýmsa staði og menn/konur. Líka í stofunni minni en það er efni í annað blogg.......
Seydi er farinn til suður Þýskalands. Fékk far með einhverri konu. Fann farið á netinu. Frábærar svona "farþjónustusíður". Kostar lítið og hann þarf ekki að keyra einn með kerruna aftan í. Fórum aðeins á flóamarkaðinn í morgun. Keyptum lítið nema sælgæti. Seydi keypti svo mikið að skápurinn er að springa........í þessu var "Bounty", "Twix-kex", "Maltesers", "Lindor", "Lindt" súkkulaði og súkkulaðihérar, "Pringles" og eitthvað konfekt. Ég er búin með 1 Maltesers pakka!
Ætla að útbúa eitthvað í gogginn handa mér og strákunum. Best að henda samlokum í grillið.
Eigið gott sunnudagskvöld og nýja viku.
yndislegt að umvefja sig góðum minningum... ég sé stálkönnu sem sigþór gaf mér, greinar í vasa sem arína tíndi - mexíkóskt útskrorið veggdagatal sem ég burðaðist með í fanginu í flugi frá guadalajara um dallast til chicago, vatnslitamálverk eftir anton og enska orðabók sem "afinn og amman" gáfu mér fyrstu jólin í ameríku 1989 - (mest notaða bók hússins)...
SvaraEyðatakk fyrir að deila með okkur, ég er mikið nær þínu eldhúsi fyrir vikið - einn daginn, vittu til, þá kem ég í kaffi til þín...
Vertu ávallt velkomin í kaffi.
SvaraEyðaMig dreymdi þig svona líka í morgun. Fór með þér í matvörubúðina minnir mig. Þú varst svo flott og fín með ljósa háríð í fínni kápu. Því miður man ég ekki mikið en man hvað mér þótt gaman að koma aftur í ameríska matvörubúð! Það er eiginlega einn af mínum draumum, svona í alvörunni ;)
Knús
ja hérna, ég fór nú í amerísku stórmatvörubúðina í gær - með þá hugsun í farteskinu að það væri eins gott að enginn, sem mig þekkti, sæi mig í joggingbuxunum og flíspeysunni með mitt ógreidda hár hrúgað saman með teygju... gaman að ganga um fín í draumum!
SvaraEyða(ég er að sinna heimavinnunni - í alvörunni, kíkji bara á netið þegar ég svona teygi úr mér á leiðinni að tölvunni...)
Þetta hljómar eins og heimþrá Inga mín, allar minningar um allt í kringum þig, en það er ekki sama og að vera heima á Fróni, með öllum sem manni þykir vænt um, þó svo að ég viti að þín fjölskylda er með þér í Þýskalandi. En þú kemur í sumar og átt eftir að vera innanum alla þína. :o) Dagga
SvaraEyðaHæ Dagga. Hljómar kannski eins og heimþrá en er það alls ekki. Ég fór bara allt í einu að horfa í kringum mig einn daginn. Ég er líka meira fyrir hluti sem mér hafa verið gefnir heldur en dauða hluti sem keyptir eru úti í búð.
SvaraEyðaÞó að það væri yndislegt að hafa fjölskyldu og vini hjá sér er ég ekki með heimþrá. Myndi frekar vilja að allir kæmu hingað :)
Kveðja